Yfirlit búvélaprófana árið 1997
MacHale - rúlluhnífur
Skýrsla nr. 682
Gerð: Bale splitter 994. Framleiðandi: McHale Engineering Limited, Írlandi.
Innflytjandi: Vélar og Þjónusta hf.
YFIRLIT
McHale rúlluhnífurinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins veturinn 1996-97 og einnig sumarið 1997. Hann var notaður við skurð á um 100 rúllum sem voru breytilegar að gerð bæði hvað snertir heygerð og þurrkstig.
McHale heyrúlluhnífurinn er ætlaður til að taka rúllur úr stæðum, flytja þær til og skera þær í sundur í tengslum við fóðrun eða í tengslum við heymötun. Hann vegur 235 kg. Hnífurinn er ætlaður til meðhöndlunar á öllum stærðum af rúllum með breytilegt þurrkstig og heygerðir. Tengja má heyhnífinn bæði á þrítengi dráttarvélar en einnig má fá hann með búnaði til að setja á moksturstæki dráttarvéla. Taka má rúllurnar með þrítengibeislinu úr stæðum sem eru ekki hærri en tvær baggahæðir en ef hnífurinn er tengdur á moksturstæki má taka úr stæðum sem staflað er með hefðbundnum hætti með dráttarvélum. Í flestum tilvikum gekk skurður mjög greiðlega jafnvel þó rúllurnar væru illa farnar þ.e. höfðu skemmst í geymslu. Fyrir kemur að bagginn rennur undan hnífnum og nær hann þá ekki að skera alveg í sundur. Þarf þá að slaka hnífnum upp og færa baggann innar á greipina en það dugar í flestum tilvikum til að skurðurinn nái alveg í gegn. Við vinnumælingar kom fram að mjög lítill hluti tímans fer í sjálfan heyskurðinn eða um 22 % en um 41 % tímans fer í að færa rúllurnar að dreifingarstað og um 37% við að losa böndin af rúllunum. Gera má ráð fyrir að eftir skurð fari um 2,5 mín fari í að dreifa úr skornum rúllum t.d. á fóðrunarstað. Þau afköst samsvara nettó um 100 kg/þe á mín eða um 12 hb. Varðandi lágmarksstærð á dráttarvélum má nota 30- 40 kW (40-50 hö) ef hnífurinn er tengdur á þrítengi en vélar frá um 50 kW (um 70 hö) ef ámoksturtækjum er beitt. Þar sem hnífurinn er tengdur dráttarvél eru oft nokkur vandkvæði við notkun innanhúss t.d. við gjafir er að koma við dráttarvél þar sem rýmið er takmarkandi þáttur.Við góðar aðstæður getur tækið létt vinnuna verulega umfram það að skera rúllurnar með hefðbundnum heyskera eða rafmagnsskera en eftir sem áður þarf að dreifa heyinu á gjafastað með handafli að verulegum hluta.Tækið er sterklega smíðað og ekki komu fram neinar bilanir á reynslutímanum.
ELHO - pökkunarvél
Skýrsla nr. 683
Gerð: Elho 1410 Framleiðandi: OY ELHO AB Bennäs, Finnlandi
Innflytjandi: Globus Vélaver hf. Reykjavík .
YFIRLIT
Ehlo 1410 pökkunarvélin kom til prófunar seinni hluta sumars 1996 og var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins en prófun var lokið sumarið 1997. Hún var notuð alls við pökkun á 770 böggum við breytilegar aðstæður.
Pökkunarvélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Hún er dragtengd, knúin af vökvakerfi dráttarvélar og vegur um 1.450 kg. Vélin er með lyftubúnaði sem tekur baggana upp af jafnsléttu upp á pökkunarborð. Á borðinu er bagganum snúið og velt um leið og má þannig stjórna þéttleika vafninga. Jafnframt er búnaður til að stjórna strekkingu á filmunni en strekkibúnaðurinn er bæði fyrir 50 og 75 cm breiðar plastfilmur. Þegar bagginn er fullpakkaður er pallurinn stöðvaður í sturtustöðu og bagganum velt aftur að fallpalli. Með pallinum má láta baggann falla hægt niður á jörðu. Vélinni er stjórnað með handföngum sem komið er fyrir innan seilingar frá ökumanni. Vélin er með handstýrðum skurðarbúnaði fyrir plastfilmuna. Afköst vélarinnar eru breytileg eftir aðstæðum, svo sem vafningafjölda og baggastærð. Mælingarnar sem gerðar voru sýndu að nettóafköst voru oft um 30 baggar á klst þegar pakkað var sexfalt með 75 cm plastfilmu. Ætla má að 30 kW (41 hö) sé lágmarksstærð dráttarvéla fyrir pökkunarvélina og að vökvaflæði þurfi að vera 25-30 l/mín. Við fjórfalda pökkun er filmunotkun um 0,9-1,0 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar 70-80 m af 75 cm breiðri filmu á hvern bagga en er eðlilega háð filmustrekkingu og baggastærð. Vélin er á belgmiklum hjólbörðum sem bera hana vel við allar algengar aðstæður. Fallbretti er á vélinni til að hlífa böggunum sem er verulegur kostur. Pökkunarborðið er vel opið gagnvart heyslæðingi úr böggunum þannig að hann veldur sjaldan töfum. Til bóta væri að stjórnstengur vélarinnar væru liprari og baggalyftan nær pökkunarborðinu. Við pökkun á stórum og óreglulegum böggum væri til bóta að vera með aukabelti á pökkunarborði. Ekki var unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Vélin er traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.
SLAM - sláttuvél
Skýrsla nr. 684
Gerð: Slam BR/P 280. Framleiðandi: Slam Farm Machinery Industries Ítalíu.
Innflytjandi: Garðar Skaptason & Co Reykjavík .
YFIRLIT
Slam BR/P 280 sláttuvélin kom til prófunar í júní 1997 og var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1997. Vinnubrögð hennar voru könnuð og hún var notuð við breytilegar aðstæður alls í 45 klst. Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og lyft upp í flutningsstöðu með vökvaafli til hliðar við dráttarvél. Þyngd hennar er um 517 kg. Sláttuþyrlan reyndist að jafnaði slá hreint og jafnt og var stubblengd í sláttufari að meðaltali um 58 mm með frávikshlutfall um 25% við ökuhraðann 6,0 - 16,7 km/klst. Hægt er að hafa áhrif á sláttunánd með því að stilla lengd yfirtengis og steypa vélinni mismikið. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins þrátt fyrir mikla vinnslubreidd. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er 2,85 m. Ætla verður a.m.k. 50 kW (68 hö) dráttarvél fyrir þyrluna til að nýta afkastagetu hennar. Sláttuþyrlan er tiltölulega lipur í stjórnun en þó þarf að lyfta henni með tveimur handtökum í stöðustillingu við milliakstur eins og við spilduenda. Þyngd hennar getur í flutningi raskað þungahlutföllum meðalstórra dráttarvéla einkum ef henni er lyft mjög hátt í flutningsstöðu. Ending hnífa var innan eðlilegra marka. Hlífðardúkar vélarinnar eru vel úr garði gerðir en gormar á múgfjöl eru of veikbyggðir. Dagleg umhirða er fljótleg og aðgengilegt að komast að sláttubakka. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiriháttar bilanir komu fram á reynslutímanum.
KVERNELAND - pökkunarvél
Skýrsla nr. 685
Gerð: Kverneland UN 7335 Framleiðandi: Kverneland Underhaug AS, Noregi
Innflytjandi: Ingvar Helgason hf. Reykjavík .
YFIRLIT
Kverneland UN 7335 rúllupökkunarvélin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1997. Var hún notuð alls við pökkun á 590 böggum. Vélin var reynd bæði á fyrri og seinni slætti, og auk þess við grænfóðurbagga.
Pökkunarvélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Frá hendi framleiðenda er vélin einfaldari og léttari en dýrari gerðir frá þeim en jafnhliða reynt að halda vinnugæðum á sama stigi. Hún er dragtengd, knúin af vökvakerfi dráttarvélar og vegur um 875 kg.. Vélin er er með lyftubúnaði sem tekur baggana upp af jafnsléttu upp á pökkunarborð. Ekki er samtímis hægt að snúa pökkunarborði og hafa bagga í lyftunni. Hægra burðarhjól vélarinnar er fært út og aftur fyrir lyftu þannig að ekki þarf mótþyngingu við baggalyftu. Á borðinu er bagganum snúið og velt um leið og má þannig stjórna þéttleika vafninga. Jafnframt er búnaður til að stjórna strekkingu á filmunni en strekkibúnaðurinn er bæði fyrir 50 og 75 cm breiðar plastfilmur. Þegar bagginn er fullpakkaður er pallurinn stöðvaður í sturtustöðu og er bagganum velt aftur af niður á grassvörðinn. Vélin er með sjálfvirkum skurðarbúnaði fyrir plastfilmuna. Afköst vélarinnar eru breytileg eftir aðstæðum, svo sem vafningafjölda og baggastærð. Mælingarnar sem gerðar voru sýndu að nettóafköst voru að meðaltali 45-50 baggar á klst þegar pakkað var sexfalt, en brúttóafköstin má ætla um 35-40 baggar á klst. Ætla má að 30 kW (41 hö) sé lágmarksstærð dráttarvéla fyrir pökkunarvélina. Við fjórfalda pökkun er filmunotkun um 0,9-1,0 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar 70-80 m af 75 cm breiðri filmu á hvern bagga en er eðlilega háð filmustrekkingu og baggastærð. Vélin er á nægilega belgmiklum hjólbörðum til að bera hana við allar algengar aðstæður. Vélin er mjög lágbyggð þannig að baggarnir falla úr lítilli hæð en hins vegar tekur vélin niðri ef aka þarf yfir miklar ójöfnur í flutningi. Pökkunarborðið er vel opið gagnvart heyslæðingi úr böggunum þannig að hann veldur sjaldan töfum. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar bilanir komu fram á reynslutímanum. Vélin er traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.
STOLL - múgavél
Skýrsla nr. 686
Gerð: Stoll drive 655 AS. Framleiðandi: Wilhelm Stoll Machinefabrik Gmbh, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf, Reykjavík .
YFIRLIT
Stoll drive 655 AS var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1997. Hún var notuð alls í beinum prófunum um 17 klst en auk þess var hún notuð við rakstur á samtals um 500 ha spildum sem ætla má að svari til um 80 klst notkun.
Stjörnumúgavélin er tengd á lyftuarma dráttarvélar með þverbita, dragtengd og knúin frá aflúttaki. Hún vegur um 1190 kg með tveimur rakstarstjörnum sem raka saman og mynda einn múga. Múgavélin reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Mælingar sýndu að dreifarmagn í rakstrarfari er að jafnaði innan við 100 kg þe./ha við ökuhraðann 6,8-11,3 km/klst á forþurrkuðu heyi. Á sléttu landi má þó aka nokkru hraðar og halda viðunandi rakstrargæðum og af sjónmati að dæma rakar vélin tiltölulega vel niðurbörðu og blautu heyi. Við allar algengar aðstæður reyndist vélin fylgja vel ójöfnum á yfirborði landsins einkum vegna þess að hún er með liðtengdum stjörnum við aðalburðarbitann og því fylgja þær vel landinu. Hún getur rakað frá girðingum og skurðbökkum. Beislisbúnaður vélarinnar gefur svigrúm til að vinna með vélinni í beygjum og múgar verða ekki með kröppum beygjum vegna þess hve burðarhjól vélarinnar eru aftarlega. Rakstrarfar vélarinnar er aðeins breytanlegt eftir aðstæðum en oft um 6,35 m með múganum. Við sömu stillingu á stjörnum halda múgarnir ávallt sömu breidd sem er verulegur kostur við mötun t.d. í rúllubindivélar. Hæfilegur ökuhraði er nokkuð breytilegur en er oft um 8-12 km/klst. og afköst að jafnaði um 5-6 ha/klst. Við vélina má nota minni gerðir dráttarvéla þar sem hún er dragtengd og mótoraflið að jafnaði nægilegt. Múgavélin er tiltölulega lipur í notkun jafnvel á minni spildum og tenging er einföld.. Múgavélin virðist traustlega byggð og engar bilanir komu fram né óeðlilegt slit á reynslutímanum sem var óvenju langur.
STOLL - múgavél
Skýrsla nr. 687
Gerð: Stoll R 415 4DS. Framleiðandi: Wilhelm Stoll Machinefabrik Gmbh, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf, Reykjavík .
YFIRLIT
Stjörnumúgavélin Stoll R15 4DS var prófuð sumarið 1997. Var hún notuð til múgunar og snúnings á múgum við mismunandi skilyrði og gerðar mælingar og athuganir á notagildi hennar og verkhæfni. Hún var notuð alls í 32 klst.
Stjörnumúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúttaki. Hún vegur um 520 kg. Múgavélin reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Mælingar sýndu að dreifarmagn í rakstrarfari er að jafnaði innan við 20 - 80 kg þe./ha við ökuhraðann 5,1-14,7 km/klst á forþurrkuðu heyi. Á vel sléttu landi má að jafnaði aka allt greitt og halda viðunandi rakstrargæðum. Af sjónmati að dæma rakar vélin tiltölulega vel niðurbörðu og blautu heyi. Við allar algengar aðstæður reyndist vélin fylgja vel ójöfnum á yfirborði landsins einkum vegna þess að hún er með veltiöxlum og þremur landhjólum sem fylgja tindaferlinum tiltölulega vel. Hún getur rakað frá girðingum og skurðbökkum. Liður í beisli vélarinnar gefur svigrúm til að vinna með vélinni í beygjum allt að 20° til hvorrar handar. Rakstrarfar vélarinnar er aðeins breytilegt eftir aðstæðum en oft um 3,2 m að breidd. Hæfilegur ökuhraði er nokkuð breytilegur en oft um 8-12 km/klst. og afköst að jafnaði um 2,5-3,0 ha/klst. Vélin rýrir framþunga meðalstórra dráttarvéla nokkuð í flutningsstöðu og getur þurft að þyngja þær til að uppfylla ákvæði um þungahlutföll svo sem algengt er um lyftutengdar múgavélar. Múgavélin er lipur í tengingu og notkun. Splittfestingar á rakstrarörmum vélarinnar eru mjög liprar og fljótlegt að færa þá á standa sem eru ofan á vélinni til að minnka breidd hennar í flutningsstöðu. Múgavélin virðist traustlega byggð og engar bilanir komu fram né óeðlilegt slit á reynslutímanum.
STOLL - heyþyrla
Skýrsla nr. 688
Gerð: STOLL Z 550 D. Framleiðandi: Wilhelm Stoll Machinefabrik Gmbh, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf, Reykjavík .
YFIRLIT
Heyþyrlan STOLL Z 550 D var reynd af Rannsóknastofnun landbúnaðarins Bútæknideild, sumarið 1997 og notuð alls í 38 klst. Heyþyrlan er tengd á þrítengi dráttarvélar og drifin frá aflúttaki hennar. Hún vegur 360 kg. Í flutningsstöðu eru ytri stjörnunum lyft upp í lóðrétta stöðu með vökvatjökkum. Hæfni heyþyrlunnar til heysnúnings reyndist góð og ójöfnum lands fylgir hún vel. Vinnslubreidd vélarinnar er allt að 6,0 m og afköst við heysnúning reyndust að jafnaði 4,8 ha/klst. en mest um 6,2 ha/klst. Heymúgum dreifir vélin í 6-7 m breiðan samfelldan flekk en í stöku tilvikum bar á röst við ytri landhjól vegna frákasts frá miðstjörnum. Á fljótlegan hátt má breyta afstöðu landhjóla til að skekkja vélina miðað við stefnu dráttarvélar til að hindra hliðarkast heysins t.d. meðfram skurðbökkum og girðingum en jafnframt til að kasta heyinu inn á spildur. Liðir í beislisbúnaði vélarinnar auðvelda vinnu með henni í beygjum en þeir læsast sjálfkrafa þegar vélinni er lyft. Aflþörf heyþyrlunnar á tengidrifi má ætla að sé um 20 kW (30 hö). Vélin er venju fremur létt og lipur í notkun og má því ætla að aka megi af öryggi með vélina í flutningsstöðu ef lágmarksstærð (þyngd) dráttarvélar er frá um 35 kW (um 48 hö) en ef þörf krefur verður að nota viðeigandi þyngingu til að uppfylla kröfur um þungahlutföll dráttarvéla. Þótt heyþyrlan sé léttbyggð virðist hún nægilega traust og á reynslutímanum varð einungis vart smávægilegra bilana.
KRONE - heyþyrla
Skýrsla nr. 689
Gerð:KRONE KW 7.70/6x7 Framleiðandi: Bernhard Krone Gmbh, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf, Reykjavík.
YFIRLIT
Heyþyrlan KRONE KW 7.70/6x7 var reynd af Rannsóknastofnun landbúnaðarins Bútæknideild, sumarið 1997 og notuð alls í 32 klst . Reynslutíminn var fremur skammur en ætla má að þyrlan hafi verið notuð sem svarar yfirferð á um 230 ha lands.
Heyþyrlan er tengd á þrítengi dráttarvélar og drifin frá aflúttaki hennar. Vélin hefur 6 stjörnur og eru þær ytri liðtengdar við bolinn en í tengingunni eru tvöfaldir hjöruliðir fyrir aflfærslu til ytri stjarnanna. Hún vegur um 930 kg. Í flutningsstöðu er ytri stjörnunum lyft upp með vökvatjökkum þannig að ystu stjörnurnar leggjast upp og inn yfir vélina . Á hjólabúnaði eru fjórar stillingar til að breyta halla stjarna í vinnslu. Hæfni heyþyrlunnar til heysnúnings reyndist góð og ójöfnum lands fylgir hún vel. Vinnslubreidd vélarinnar er allt að 7,7 m og afköst við heysnúning má ætla að séu jafnaðarlega um 6-7 ha/klst. Heymúgum dreifir vélin í 6-7 m breiðan samfelldan flekk og næst bestur árangur með því að láta fjórar stjörnur vinna saman og kljúfa múgana. Úr ekilssæti má breyta afstöðu landhjóla til að skekkja vélina miðað við stefnu dráttarvélar og fá fram hliðarkast heysins t.d. meðfram skurðbökkum og girðingum en jafnframt til að kasta heyinu inn á spildur og jafnvel jafna heyþykkt í flekk. Liðir í beislisbúnaði vélarinnar auðvelda vinnu með henni í beygjum en þeir læsast sjálfkrafa þegar vélinni er lyft. Hliðasláttardempun á vélinni er stillanlega. Aflþörf heyþyrlunnar á tengidrifi má ætla að sé um 30 kW (41 hö). Vélin er tiltölulega lipur í notkun þrátt fyrir mikla vinnslubreidd. Til að aka megi af öryggi með vélina í flutningsstöðu og uppfylla kröfur um þungahlutföll dráttarvéla þarf að setja framþyngingu á meðalstórar afturdrifsvélar. Heyþyrlan virðist í alla staði traustlega byggð og á reynslutímanum varð einungis vart smávægilegra bilana.
KUHN - sláttuvél
Skýrsla nr. 690
Gerð: Kuhn, GMD 602. Framleiðandi: Kuhn S.A. Saverne Cedex Frakklandi. Innflytjandi: Ingvar Helgason hf. Reykjavík.
YFIRLIT
Sláttuþyrlan Kuhn GMD 602 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1997 og notuð alls um 37 klst. Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og færð um 90° aftur í flutningsstöðu með vökvaafli. Þyngd hennar er um 618 kg. Sláttuþyrlan reyndist að jafnaði slá hreint og jafnt og var stubblengd í sláttufari að meðaltali um 60 mm með frávikshlutfall um 24% við ökuhraðann 6,0 - 16,7 km/klst. Hægt er að hafa áhrif á sláttunánd með því að stilla lengd yfirtengis og steypa vélinni mismikið. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins þrátt fyrir mikla vinnslubreidd. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er 2,4 m. Ætla verður a.m.k. 46 kW (63 hö) dráttarvél fyrir þyrluna til að nýta afkastagetu hennar. Sláttuþyrlan er tiltölulega lipur í stjórnun og unnt að lyfta henni með einu handtaki í stöðustillingu við milliakstur eins og við spilduenda. Á vélinni er sérstakur vökvabúnaður sem stilla má þannig að sláttubakki hvíli á sverði með þeim þunga sem óskað er hverju sinni. Búnaðurinn kemur að sérlega góðum notum þar sem svörður er laus í sér eins og á grænfóðurökrum. Verði vélin fyrir óeðlilegri fyrirstöðu virkar sami búnaður sem öryggislás og lyftir vélinni sjálfkrafa yfir mótstöðuna og sláttubúnaður fellur í fyrra horf án þess að stöðva áframakstur. Þyngd vélarinnar getur í flutningi raskað þungahlutföllum meðalstórra dráttarvéla þannig að þyngja þarf vélarnar að framan til að uppfylla reglugerðarákvæði. Hlífðardúkar vélarinnar eru vel úr garði gerðir svo og múghjól. Dagleg umhirða er fljótleg og aðgengilegt að komast að sláttubakka. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar bilanir komu fram á reynslutímanum. Sláttuþyrlan virðist vera traustbyggð og vönduð að allri gerð.
TELLEFSDAL - pökkunarvél
Skýrsla nr. 691
Gerð: Tellefsdal, Mini-Wrap 404. Framleiðandi: Tellefsdal AS, Noregi. Innflytjandi: Vélar og Þjónusta hf., Reykjavík.
YFIRLIT
Tellefsdal, Mini-Wrap 404 pökkunarvélin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1997. Var hún notuð alls við pökkun á smáböggum og beindust athuganir einkum að vinnubrögðum tækisins og notagildi fremur en endingu og slitþoli.
Vélin er ætluð til að pakka smáböggum allt að 500x500x1100 mm inn í plastfilmu aðallega til votheysgerðar. Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin af vökvakerfi hennar og vegur um 380 kg. Hún er ekki með lyftibúnaði sem tekur baggana upp frá jafnsléttu heldur verður að setja þá upp á pökkunarborð með handafli. Á borðinu er bagganum snúið og velt um leið. Þannig er plastfilmu vafið utan um hann. Veltuhraðanum má breyta í hlutfalli við snúningshraða og fá þannig fram mismunandi þétta vafninga. Þegar bagginn er fullpakkaður er pallinum snúið í upphafsstöðu og borðinu velt aftur um 72° þannig að bagginn veltur af því. Festa þarf filmuna með handafli bæði í upphafi og og skera á hana í lokin. Afköst vélarinnar mældust á bilinu 33-46 baggar á klst eftir því hvort pakkað var fjórfalt eða sexfalt filmulag utan um baggana. Þungamiðja vélarinnar er nokkuð langt fyrir aftan tengitappa og því má ætla að 45 kW (60 hö) dráttarvél sé af lágmarksstærð fyrir pökkunarvélina. Hægt er að nota plastfilmu sem er allt að 500 mm að breidd en við prófunina var notuð 250 mm breið filma m.a. vegna þess að hún féll betur að bagganum við pökkun. Við fjórfalt filmulag var plastfilmunotkunin um 3,5 kg á rúmmeter heys en um 4,7 kg við sexfalda. Hey sest ekki fyrir á borðinu. Notagildi tækisins er fyrst og fólgið í því, að með góðu móti er unnt að hjúpa hey í smáar viðráðanlegar einingar með hóflegum tilkostnaði t.d. þar sem ekki er unnt að meðhöndla stærri bagga eða geyma.Vélin er traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.
GALLAGHER - spennugjafi
Skýrsla nr. 692
Gerð: Gallagher Smartpower MX2500. Framleiðandi: Gallagher Electronics Ltd., Nýja - Sjálandi. Innflytjandi: Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki.
YFIRLIT
Gallagher Smartpower MX2500 spennugjafinn var tekinn til prófunar veturinn 1998 og gerðar mælingar á ýmsum eiginleikum hans.
Spennugjafinn er ætlaður til að gefa háspennuslög með reglulegu millibili inn á rafgirðingar. Hann er gerður fyrir 220 V rafmagn, og hefur tvö úttök. Mælingar voru gerðar á átta raffræðilegum eiginleikum sem segja til um getu spennugjafans til að rafmagna rafgirðingar og koma til móts við breytilegt álag.
Helstu niðurstöður eru þær að spennugjafinn gefur frá sér 12,8 J af orku, sem er 53% af þeirri orku sem honum er ætlað að gefa samkvæmt upplýsingum framleiðanda. Hámarksspennan er hæst meðan álag er minnst en lækkar svo við aukið álag og má skýra sambandið með lógariþma jöfnu. Samkvæmt henni er spennan 3,0 kV við 72W og 2 kV við 20W . Ætla má því spennugjafinn geti haldið nægilega hárri spennu á löngum girðingum, allt að 43 km af fimm strengja girðingum séu þær í sæmilegu lagi, og viðnámið ekki minna en um 72W . Slaglengdin er mjög stöðug, um 0,3 ms. Bil á milli slaga alveg óbreytt þó að álagið breytist þ.e. 1,3 sek sem þýðir að fjöldi slaga á mínútu er u.þ.b. 46. Hámarksstraumurinn vex jafnt og þétt þar sem spennan fellur hlutfallslega hægar er viðnámið lækkar og sömu sögu er að segja um meðalstrauminn í hverju slagi. Hleðslan sem vex nokkuð jafnt með minnkandi viðnámi. Straumhleðslan vex mjög ört með auknu álagi þ.e. minna viðnámi sem bendir til þess að öryggi í hverju slagi er mjög mikið.
HOTLINE - spennugjafi
Skýrsla nr. 693
Gerð: Hotline P1000 super pegrine. Framleiðandi: A.E.C. Electric Fencing Ltd., Englandi. Innflytjandi: Mjólkurfélag Reykjavíkur, Reykjavík.
YFIRLIT
Hotline P1000 Super Peregrine spennugjafinn var tekinn til prófunar vorið 1997 og gerðar mælingar á ýmsum eiginleikum hans.
Spennugjafinn er ætlaður til að gefa háspennuslög með reglulegu millibili inn á rafgirðingar. Hann er gerður fyrir 220V, og hefur tvö úttök. Mælingar voru gerðar á átta raffræðilegum eiginleikum sem segja til um getu spennugjafans til að rafmagna rafgirðingar og koma til móts við breytilegt álag.
Helstu niðurstöður eru þær að spennugjafinn gefur frá sér 5,3 J af orku, en ekki er gefið upp frá framleiðanda hver hámarksorkan á að vera. Hámarksspennan er hæst 7,3 kV meðan álag er minnst en lækkar svo við aukið álag. Það er í samræmi við upplýsingar framleiðanda. Spennan er 2 kV við 40W og 3 kV við 90W á kraftmeira úttakinu, en 2 kV við 220W og 3 kV við 1200W á kraftminna úttakinu. Ætla má að spennugjafinn geti haldið nægilega hárri spennu á nokkuð löngum girðingum, jafnvel 20 km af fimm strengja girðingum séu þær í sæmilegu lagi, og viðnámið ekki minna en um 90W . Slaglengdin fellur með minnkandi viðnámi á kraftmeira úttakinu en er nálægt 0,16 ms á kraftminna úttakinu og nokkuð stöðug. Bil á milli slaga er að mestu óbreytt þó að álagið breytist þ.e. 1,1 sek sem þýðir að fjöldi slaga á mínútu er u.þ.b. 55. Hámarksstraumurinn vex jafnt og þétt þar sem spennan fellur hlutfallslega hægar er viðnámið lækkar og sömu sögu er að segja um meðalstrauminn í hverju slagi. Hleðslan vex nokkuð jafnt með minnkandi viðnámi. Straumhleðslan "Fibrillation energy" vex mjög ört með auknu álagi þ.e. minna viðnámi sem bendir til þess að öryggi í hverju slagi er mjög mikið.
ELECTRIC SHEPHERD - spennugjafi
Skýrsla nr. 694
Gerð: Electric Shepherd ESB 300. Framleiðandi: Electric Shepherd Products Ltd., Englandi. Innflytjandi: Vélar og Þjónusta, Reykjavík.
YFIRLIT
Electric Shepherd ESB 300 spennugjafinn var tekinn til prófunar vorið 1997 og gerðar mælingar á ýmsum eiginleikum hans.
Spennugjafinn er ætlaður til að gefa háspennuslög með reglulegu millibili inn á rafgirðingar. Hann er gerður fyrir 220V rafspennu, og hefur tvö úttök. Mælingar voru gerðar á átta raffræðilegum eiginleikum sem segja til um getu spennugjafans til að rafmagna rafgirðingar og koma til móts við breytilegt álag.
Helstu niðurstöður eru þær að spennugjafinn gefur frá sér 8,0 J af orku, en ekki er gefið upp frá framleiðanda sú orka sem honum er ætlað að skila. Hámarksspennan er hæst meðan álag er minnst. Spennan er 2 kV við um 54 W og 3 kV við um 117 W á úttakinu með hærri spennuna, en 2 kV við 922 W og 3 kV við >1000 W á úttakinu með lægri spennuna. Ætla má því spennugjafinn geti haldið nægilega hárri spennu á löngum girðingum á aflmeira úttakinu, jafnvel 25 km af fjölstrengja girðingum séu þær í góðu lagi, og viðnámið ekki minna en um 120 W . Aflminna úttakið gagnast hins vegar ekki nema á stuttum girðingum með hátt viðnám, s.s. við randabeit. Slaglengdin fellur með auknu álagi. Bil á milli slaga helst hins vegar nær alveg óbreytt þó að álagið breytist 1,3 sek sem þýðir að fjöldi slaga á mínútu er u.þ.b. 46. Hámarksstraumurinn vex jafnt og þétt þar sem spennan fellur hlutfallslega hægar er viðnámið lækkar og sömu sögu er að segja um meðalstrauminn í hverju slagi. Hleðslan vex nokkuð jafnt með minnkandi viðnámi. Straumhleðslan "Fibrillation energy" vex mjög ört með auknu álagi þ.e. minna viðnámi sem bendir til þess að öryggi í hverju slagi er mjög mikið.
PEL - spennugjafi
Skýrsla nr. 695
Gerð: Pel 610. Framleiðandi: Pel Industries Ltd., Nýja - Sjálandi. Innflytjandi: Globus-Vélaver, Reykjavík.
YFIRLIT
Pel 610 spennugjafinn var tekinn til prófunar vorið 1997 og gerðar mælingar á ýmsum eiginleikum hans.
Spennugjafinn er ætlaður til að gefa háspennuslög með reglulegu millibili inn á rafgirðingar. Hann er gerður fyrir 220V rafmagn, og hefur tvö úttök. Mælingar voru gerðar á átta raffræðilegum eiginleikum sem segja til um getu spennugjafans rafmagna rafgirðingar og koma til móts við breytilegt álag.
Helstu niðurstöður eru þær að spennugjafinn gefur frá sér 8,4 J af orku sem er 84 % af því sem framleiðandi gefur upp. Hámarksspennan er hæst meðan álag er 100 W . Spennan er 2 kV við 22 W og 3 kV við 144 W á kraftmeira úttakinu, en 2 kV við 60W og nær ekki 3 kV á kraftminna úttakinu. Ætla má því spennugjafinn geti haldið nægilega hárri spennu á nokkuð löngum girðingum, jafnvel 28 km af fimm strengja girðingum séu þær í sæmilegu lagi, og viðnámið ekki minna en um 144W . Slaglengdin fellur lítið með minnkandi viðnámi á kraftmeira úttakinu og er nálægt 2,0 ms á kraftmmeira úttakinu en heldur lægri , 1,6 ms, á kraftminna úttakinu. Bil á milli slaga er að mestu óbreytt þó að álagið breytist þ.e. 1,2 sek sem þýðir að fjöldi slaga á mínútu er u.þ.b. 50. Hámarksstraumurinn vex jafnt og þétt þar sem spennan fellur hlutfallslega hægar er viðnámið lækkar og sömu sögu er að segja um meðalstrauminn í hverju slagi. Hleðslan vex nokkuð jafnt með minnkandi viðnámi. Straumhleðslan "Fibrillation energy" vex mjög ört með auknu álagi þ.e. minna viðnámi sem bendir til þess að öryggi í hverju slagi er mjög mikið.
Acotronic - spennugjafi
Skýrsla nr. 696
Gerð: Akotronic S8000. Framleiðandi: Ako-Worke, Allgäu, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélaval Varmahlíð hf., Skagafirði.
YFIRLIT
Akotronic S8000spennugjafinn var tekinn til prófunar vorið 1997 og gerðar mælingar á ýmsum eiginleikum hans.
Spennugjafinn er ætlaður til að gefa háspennuslög með reglulegu millibili inn á rafgirðingar. Hann er gerður fyrir 220V rafspennu, og hefur eitt úttak. Mælingar voru gerðar á átta raffræðilegum eiginleikum sem segja til um getu spennugjafans til að rafmagna rafgirðingar og koma til móts við breytilegt álag.
Helstu niðurstöður eru þær að spennugjafinn gefur frá sér 3,8 J af orku, en ekki er gefið upp frá framleiðanda sú orka sem honum er ætlað að skila. Hámarksspennan er hæst meðan álag er minnst. Spennan er 2 kV við um 217 W og 3 kV við um 519 W . Ætla má því spennugjafinn geti haldið nægilega hárri spennu á löngum girðingum á aflmeira úttakinu, jafnvel 13 km af fjölstrengja girðingum séu þær í góðu lagi, og viðnámið ekki minna en um 519 W . Slaglengdin er óstöðug og virðist falla ef viðnámið er minna en 500 W .. Bil á milli slaga helst hins vegar nær alveg óbreytt þó að álagið breytist 1,2 sek sem þýðir að fjöldi slaga á mínútu er u.þ.b. 50. Hámarksstraumurinn vex jafnt og þétt þar sem spennan fellur hlutfallslega hægar er viðnámið lækkar og sömu sögu er að segja um meðalstrauminn í hverju slagi. Hleðslan vex nokkuð jafnt með minnkandi viðnámi. Straumhleðslan "Fibrillation energy" vex með auknu álagi þ.e. minna viðnámi sem bendir til þess að öryggi í hverju slagi er nokkuð mikið. |