Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
- Búvélaprófanir
- Bútæknitenglar
- Gjaldskrár
- Lög og reglugerðir
- Sértækar greinar
- Rekstur - stjórnun
- Tölvutækni við bústörf
- Heimildasafn
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa

Yfirlit búvélaprófana árið 1994

SIMPA - rúllubindivél

Skýrsla nr. 642

Gerð: Sipma 279. Framleiðandi: Sipma s.a., Póllandi. Innflytjandi: Garðar Skaptason, Reykjavík.

YFIRLIT

Sipma 279 rúllubindivélin var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994. Við prófun vélarinnar voru bundnir 533 baggar.

Bindivélin er dragtengd, knúin frá vinnudrifi dráttarvélar. Hún vegur 1.980 kg. Hún tekur hey og grænfóður á öllum þurrkstigum upp úr múgum eða sláttuskárum og vefur í þétta, sívalningslaga bagga. Þeir eru 1,2 m breiðir og 1,25 m í þvermál. Rúmmál þeirra er 1,47 m3. Þyngd bagga er breytileg, einkum eftir þurrkstigi. Af nýlega slegnu grasi má reikna með 650-750 kg böggum, en 350-500 kg af forþurrkuðu heyi (50-60% þe.). Þetta svarar til 150-200 og 200-300 kg af fullþurru heyi. Afköst má ætla 21-25 bagga á klst og mældust 5,5 tonn af þurrefni á klst við bindingu á forþurrkuðu heyi. Nokkuð bar á festum við sópvindu við vissar aðstæður. Til að nýta afkasta- og þjöppunargetu vélarinnar verður að ætla henni 35-45 kW dráttarvél (48-61 hö). Á reynslutímanum skemmdist múggrind ofan við sópvindu, og aðal drifkeðja vélarinnar slitnaði. Vélin er fremur einföld að uppbyggingu og tiltöluleg lipur í notkun.


KVERNELAND - rúllupökkunarvél

Skýrsla nr. 643

Gerð: Kverneland Silawrap UN 7515. Framleiðandi: Kverneland Underhaug AS, Noregi. Innflytjandi: Ingvar Helgason h.f., Reykjavík.

YFIRLIT

Kverneland UN 7515 rúllupökkunarvélin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994. Var hún notuð alls við pökkun á 1.653 böggum. Vélin var reynd bæði á fyrri og seinni slætti, og auk þess við grænfóðurbagga.

Pökkunarvélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Hún er dragtengd, knúin af vökvakerfi dráttarvélar og vegur um 1.500 kg. Vélin er með lyftubúnaði sem tekur baggana upp af jafnsléttu upp á pökkunarborð. Á borðinu er bagganum snúið og velt um leið og má þannig stjórna þéttleika vafninga. Jafnframt er búnaður til að stjórna strekkingu á filmunni en strekkibúnaðurinn er bæði fyrir 50 og 75 cm breiðar plastfilmur. Þegar bagginn er fullpakkaður stöðvast pallurinn í sturtustöðu og er bagganum velt aftur að fallpalli. Með pallinum má láta baggann falla hægt niður á jörðu. Vélin er með sjálfvirkum skurðarbúnaði fyrir plastfilmuna. Afköst vélarinnar eru breytileg eftir aðstæðum, svo sem vafningafjölda og baggastærð. Mælingarnar sem gerðar voru sýndu að nettóafköst voru að meðaltali 33 baggar á klst þegar pakkað var sexfalt, og 43 baggar á klst þegar pakkað var fjórfalt, en þá er miðað við 75 cm plastfilmu. Ætla má að 30 kW (41 hö) sé lágmarksstærð dráttarvéla fyrir pökkunarvélina. Við fjórfalda pökkun er filmunotkun um 0,9-1,0 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar 70-80 m af 75 cm breiðri filmu á hvern bagga en er eðlilega háð filmustrekkingu og baggastærð. Vélin er á nægilega belgmiklum hjólbörðum til að bera hana við allar algengar aðstæður. Fallbretti er á vélinni til að hlífa böggunum en það er verulegur kostur. Pökkunarborðið er vel opið gagnvart heyslæðingi úr böggunum þannig að hann veldur sjaldan töfum. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Vélin er traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.


D&L-rúllubaggavagn

Skýrsla nr. 644

Gerð: D & L rúllubaggavagn. Framleiðandi: Dekk og Lakk, Reykholti, Borgarfirði, Ísland

YFIRLIT

D&L rúlluvagninn var prófaður af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins veturinn 1993-1994. Vagninn var einkum notaður við flutning á rúllum um lengri vegalengdir og voru eknir alls um 860 km með vagninn auk flutnings á rúllum innan bús.

Vagninn er dragtengdur, hvort heldur aftan í dráttarvél eða bifreið, og tekur eina rúllu í ferð. Hann er einkum ætlaður til að flytja heyrúllur í tengslum við gjafir yfir vetrartímann hvort sem er við inni- eða útifóðrun. Einkum kemur hann að notum þar sem ekki eru til staðar hleðslutæki á dráttarvél og flytja þarf heyið langar vegalengdir. Hann vegur um 200 kg. Við hleðslu eru rúllur teknar upp af jafnsléttu og lyft upp með handspili. Gerðar voru athuganir á vinnu við að hlaða vagninn og afhlaða. Að jafnaði reyndist sá heildartíminn um 8,5 mín á rúllu. Við hleðslu þarf að gæta nokkurrar nákvæmni til að armar greiparinnar rati rétta leið. Vagninn er léttur í drætti og má aka með hann á vegum í samræmi við reglugerð um gerð og búnað ökutækja. Ef heyið er lítið forþurrkað eða um grænfóðurrúllur er að ræða eru þær oftast það útflattar að greipin kemst ekki undir þær nema með einhverjum tilfæringum. Engar bilanir komu fram á reynslutímanum utan að tannhjólabúnaður í vindunni gaf sig. Vagninn er einfaldur í notkun og viðhaldi og virðist vera vönduð smíði.


JÖLA - áburðardreifari

Skýrsla nr. 645

Gerð: Jöla 60 S. Framleiðandi: Jöla Maskinfabriken Brædstrup Danmörku. Innflytjandi: Vélboði hf., Hafnarfirði.

YFIRLIT

Jöla 60 S áburðardreifarinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994, og notaður við dreifingu á um 28 tonnum af áburði, auk þess sem gerðar voru mælingar á dreifieiginleikum hans.

Jöla 60 S er þyrildreifari með eina dreifiskífu sem knúin er frá aflúttaki. Dreifarinn er tengdur á þrítengi dráttarvélar. Hann rúmar um 525 kg af áburði og sjálfur vegur hann 175 kg. Þetta rýrir nokkuð framþunga lítilla og meðalstórra dráttarvéla svo að nauðsynlegt getur verið að þyngja þær að framan. Dreifarinn er lágbyggður og með nokkuð víðum áburðargeymi. Hleðsla hans er því tiltölulega auðveld. Dreifarinn getur dreift nokkuð jafnt ef 12 m bil er á milli umferða. Hann dreifir þó heldur meira til hægri en til vinstri. Grind í áburðargeymi hindrar að kekkir í áburðinum loki útrennslisopi, en jafnframt reyndist svo grófkornaður áburður, sem notaður er hérlendis, renna illa niður í gegnum grindina.

Dagleg hirðing dreifarans er auðveld, m.a. vegna þess hve létt er að velta áburðargeymi frá þegar dreifarinn er tengdur og þegar komast þarf að dreifibúnaði til þrifa. Dreifibúaðurinn er úr ryðfríu efni. Mikilvægt er að dreifiskífan sé í réttri hæð og sem næst lárétt, og einnig að hraði aflúttaks sé hæfilegur. Dreifarinn virðist vera vandlega gerður og engar bilanir urðu á reynslutímanum.


FELLA - stjörnumúgavél

Skýrsla nr. 646

Gerð: Fella TS 425 DN. Framleiðandi: Fella - Werke GmbH, Þýskalandi. Innflytjandi: Globus hf. Reykjavík.

YFIRLIT

Fella TS 425 DN stjörnumúgavélin var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994 og notuð alls í um 62 klst.

Stjörnumúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúttaki. Hún vegur um 615 kg. Múgavélin reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Magn dreifa í rakstrarfari mældist að jafnaði 78,3 kg þe./ha við ökuhraða 4,6-10,9 km/klst. Við bestu aðstæður er dreifarmagnið um 40 - 50 kg þe./ha. Þrátt fyrir mikla vinnslubreidd reyndist vélin fylgja vel ójöfnum á yfirborði landsins. Hún getur rakað frá girðingum og skurðbökkum. Liður í beislisbúnaði vélarinnar gefur svigrúm til að vinna með vélinni í beygjum. Rakstrarfar vélarinnar er allt að 3,2 m að breidd. Hæfilegur ökuhraði var oftast um 8-12 km/klst og afköst að jafnaði um 2,5 ha/klst. Vélin rýrir framþunga meðalstórra dráttarvéla verulega og getur þurft að þyngja þær til að uppfylla ákvæði um þungahlutföll á dráttarvélum. Múgavélin er lipur í tengingu og notkun, virðist traustbyggð og engar bilanir komu fram á reynslutímabilinu.


FELLA - sláttuvél

Skýrsla nr. 647

Gerð: Fella SM 270. Framleiðandi: Fella-Werke GmbH Nürnberg Þýskalandi. Innflytjandi: Globus hf., Reykjavík.

YFIRLIT

Sláttuvélin Fella SM 270 með knosara var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994. Hún var notuð alls í u.þ.b. 36 klst.

Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og gengur sláttubúnaðurinn út hægra megin við dráttarvél og er lyft upp í flutningsstöðu lóðrétt hægra megin aftan til við dráttarvél. Þyngd hennar er 844 kg. Sláttuvélin reyndist að jafnaði slá hreint og jafnt. Stubblengd í sláttufari var að meðaltali 54 mm og fráviksstuðull 28% við ökuhraða á bilinu 4,4-12,7 km/klst. Hægt er að stilla sláttunánd bæði með meiðum undir skífubakka og með lengd yfirtengis. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins þrátt fyrir mikla vinnslubreidd. Vinnslubreidd sláttuvélarinnar er 2,52 m. Knosarinn er tengdur á burðargrind vélarinnar og má á fljótlegan hátt taka hann af sláttuvélinni. Velja má um 5 mismunandi knosunarstig.

Ætla verður að minnsta kosti 50 kW (68 hö) dráttarvél fyrir sláttuvélina til að fullnýta afkastagetu hennar. Vélin er tiltölulega lipur í stjórnun en þyngd hennar getur í flutningi raskað þungahlutföllum meðalstórra og minni dráttarvéla. Hnífaslit á reynslutímanum var innan eðlilegra marka. Hlífðardúkar vélarinnar eru vel úr garði gerðir og frákast knosarans er ekki mikið opið. Dagleg umhirða er fljótleg. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Sláttuvélin virðist vera traustbyggð og vönduð að allri gerð.


NIEMEYER - sláttuvél

Skýrsla nr. 648

Gerð: Niemeyer SM 260, Framleiðandi: H. Niemeyer Söhne GmbH & Co., Þýskalandi. Innflytjandi: Búvélar hf., Reykjavík.

YFIRLIT

Sláttuvélin Niemeyer SM 260 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994. Hún var notuð alls í um 32 klst.

Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og lyft upp í flutningsstöðu lóðrétt hægra megin aftan við dráttarvél. Þyngd hennar er 560 kg. Sláttuvélin reyndist að jafnaði slá hreint og jafnt og var stubbhæð í sláttufari að meðaltali 50 mm og fráviksstuðull 28% við ökuhraða á bilinu 4,4-12,7 km/klst. Hægt er að stilla sláttunánd með lengd yfirtengis. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins þrátt fyrir mikla vinnslubreidd. Vinnslubreidd sláttuvélarinnar er 2,60 m.

Ætla verður að minnsta kosti 40 kW (54 hö) dráttarvél fyrir sláttuvélina. Vélin er tiltölulega lipur í stjórnun en þyngd hennar getur í flutningi raskað þungahlutföllum meðalstórra dráttarvéla. Hnífaslit á reynslutímanum var innan eðlilegra marka. Hlífðardúkar vélarinnar eru vel úr garði gerðir en nokkuð stuttir. Dagleg umhirða er fljótleg. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Sláttuvélin virðist vera traustbyggð og vönduð að allri gerð.


NIEMEYER - stjörnumúgavél

Skýrsla nr. 649

Gerð: Niemeyer RS 340 - D - Super. Framleiðandi: H. Niemeyer Söhne GmbH & Co., Þýskalandi. Innflytjandi: Búvélar, Reykjavík.

YFIRLIT

Niemeyer RS 340-D-Super stjörnumúgavélin var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994 og notuð alls í um 51 klst.

Stjörnumúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúttaki. Hún vegur 415 kg. Múgavélin reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Magn dreifa í rakstrarfari mældist að jafnaði 58,3 kg þe./ha við ökuhraða á bilinu 4,6-10,9 km/klst. Við bestu aðstæður er dreifarmagnið um 30 - 40 kg þe./ha. Vélin reyndist fylgja vel ójöfnum á yfirborði landsins. Hún getur rakað frá girðingum og skurðbökkum. Liður í beislisbúnaði vélarinnar gefur svigrúm til að vinna með vélinni í beygjum. Rakstrarfar vélarinnar er allt að 2,7 m á breidd. Hæfilegur ökuhraði var oftast um 8-12 km/klst og afköst að jafnaði um 2,2 ha/klst. Vélin rýrir framþunga meðalstórra dráttarvéla nokkuð og getur þurft að þyngja þær til að uppfylla ákvæði um þungahlutföll. Múgavélin er lipur í tengingu og notkun. Vélin virðist traustbyggð og bilanir voru engar á reynslutímabilinu.


GREENLAND - rúllubindivél

Skýrsla nr. 650

Gerð: Greenland RF - 120. Framleiðandi: Greenland GmbH & Co. KG. Gottmadingen Þýskalandi. Innflytjandi: Ingvar Helgason h.f. Reykjavík.

YFIRLIT

Greenland RF-120 rúllubindivélin var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994. Við prófun vélarinnar voru bundnir 1.035 rúllubaggar.

Bindivélin er dragtengd, knúin frá vinnudrifi dráttarvélar. Hún vegur 1.960 kg. Vélin tekur hey og grænfóður á öllum þurrkstigum upp úr múgum eða sláttuskárum og vefur í þétta, sívalningslaga bagga. Þeir eru 1,2 m breiðir og 1,26 m í þvermál. Rúmmál þeirra er 1,49 m3. Þyngd bagga er breytileg, einkum eftir þurrkstigi. Af nýlega slegnu grasi má reikna með 600-650 kg böggum, en 350-450 kg af forþurrkuðu heyi (50-60% þe.). Þetta svarar til 120-150 og 180-250 kg af fullþurru heyi. Afköst má ætla 35-40 bagga/klst. þegar bundið er með garni, en 40-45 bagga/klst. þegar bundið er með neti. Mældust afköstin allt að 7,4-8,4 tonn af þurrefni á klst. við bindingu á forþurrkuðu heyi. Nokkuð bar á festum við sópvindu við vissar aðstæður. Til að nýta afkasta- og þjöppunargetu vélarinnar verður að ætla henni 50-60 kW dráttarvél (68-82 hö). Á reynslutímanum fór annað burðarhjólið undan vélinni þegar ytri hjólalega gaf sig. Vélin virðist að öðru leyti traustlega smíðuð, og notkun og hirðing tiltölulega einföld.


DEUTZ-FAHR - stjörnumúgavél

Skýrsla nr. 651

Gerð: Deutz-Fahr KS 3.37 DN. Framleiðandi: Greenland group, Þýskalandi. Innflytjandi: Þór hf. Reykjavík.

YFIRLIT

Deutz-Fahr KS 3.37 DN stjörnumúgavélin var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994 og notuð alls í um 55 klst.

Stjörnumúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúttaki. Hún vegur um 510 kg. Múgavélin reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Magn dreifa í rakstrarfari mældist að jafnaði 87,1 kg þe./ha við ökuhraða 4,6-10,9 km/klst. Við bestu aðstæður er dreifarmagnið um 30 - 40 kg þe./ha. Þrátt fyrir mikla vinnslubreidd reyndist vélin fylgja vel ójöfnum á yfirborði landsins. Hún getur rakað frá girðingum og skurðbökkum. Liður í beislisbúnaði vélarinnar gefur svigrúm til að vinna með vélinni í beygjum. Rakstrarfar vélarinnar er allt að 2,8 m að breidd. Hæfilegur ökuhraði var oftast um 8-12 km/klst og afköst að jafnaði um 2,3 ha/klst. Vélin rýrir framþunga meðalstórra dráttarvéla talsvert og getur þurft að þyngja þær til að uppfylla ákvæði um þungahlutföll á dráttarvélum. Múgavélin er lipur í tengingu og notkun, virðist traustbyggð og engar bilanir komu fram á reynslutímabilinu.


RoCo - rúllupökkunarvél

Skýrsla nr. 652

Gerð: RoCo 500. Framleiðandi: Roche Manufacturing, Írlandi. Innflytjandi: Þór hf., Reykjavík.

YFIRLIT

RoCo 500 rúllupökkunarvélin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994. Var hún notuð alls við pökkun á 376 böggum, sem er venju fremur lítil notkun. Vélin var reynd bæði á fyrri og seinni slætti, og auk þess við pökkun á grænfóðurböggum.

Pökkunarvélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Hún er dragtengd, knúin af vökvakerfi dráttarvélar og vegur um 1.340 kg. Vélin er með lyftubúnaði sem tekur baggana upp af jafnsléttu upp á pökkunarborð. Á borðinu er bagganum snúið og velt um leið og má þannig stjórna þéttleika vafninga. Jafnframt er búnaður til að stjórna strekkingu á filmunni en strekkibúnaðurinn er bæði fyrir 50 og 75 cm breiðar plastfilmur. Þegar bagginn er fullpakkaður er pallurinn stöðvaður í sturtustöðu og er bagganum velt aftur að fallpalli sem dregur mjög úr fallhraðanum, þannig að bagginn fellur hægt niður á jörðu. Vélin er með fjarstýrðum skurðarbúnaði fyrir plastfilmuna.

Nettó afköst vélarinnar eru breytileg eftir aðstæðum, vafningafjölda og baggastærð en í þeim mælingum sem gerðar voru, voru þau að meðaltali 36 baggar á klst þegar pakkað var sexfalt með 50 cm plastfilmu, en afköst voru ekki mæld við fjórfalda pökkun eða með 75 cm filmu. Ætla má að 30 kW (41 hö) sé lágmarksstærð dráttarvéla fyrir pökkunarvélina. Við fjórfalda pökkun er filmunotkun um 0,9-1,0 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar 70-80 m af 75 cm breiðri filmu á hvern bagga en er eðlilega háð filmustrekkingu og baggastærð. Vélin er á nægilega belgmiklum hjólbörðum til að bera hana við allar algengar aðstæður. Fallbretti er á vélinni til að hlífa böggunum en það er verulegur kostur. Pökkunarborðið er vel opið gagnvart heyslæðingi úr böggunum þannig að hann veldur sjaldan töfum. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar bilanir komu fram á reynslutímanum. Vélin er traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.


Vicon - sláttuþyrla

Skýrsla nr. 653

Gerð: Vicon CM 216 Framleiðandi: Greenland , Nieuw - vennep BV Hollandi. Innflytjandi: Ingvar Helgason h.f. Reykjavík.

YFIRLIT

Sláttuvélin Vicon CM 216 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994. Hún var notuð alls í um 38 klst. Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og lyft upp í flutningsstöðu lóðrétt hægra megin aftan við dráttarvél. Þyngd hennar er 385 kg. Sláttuvélin reyndist að jafnaði slá hreint og jafnt og var stubblengd í sláttufari að meðaltali 51mm og meðalfrávik 29% við ökuhraða á bilinu 4,4-12,7 km/klst. Sláttunánd er stillt með lengd yfirtengis. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins. Vinnslubreidd sláttuvélarinnar er 2,15m. Ætla verður að lágmarki 30 kW (41 hö) aflþörf fyrir sláttuvélina til að fullnýta afkastagetu hennar. Vélin er tiltölulega lipur í stjórnun og þyngd hennar ætti ekki að raska þungahlutföllum meðalstórra dráttarvéla í flutningi. Hnífaslit á reynslutímanum var innan eðlilegra marka. Hlífðardúkar vélarinnar eru vel úr garði gerðir. Dagleg umhirða er fljótleg. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Sláttuvélin virðist vera traustbyggð og vönduð að allri gerð.


GALLAGHER - sólarrafstöð

Skýrsla nr. 654

Gerð: Gallagher G485. Framleiðandi: Gallagher Electronics Ltd., Nýja-Sjálandi. Innflytjandi: Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki.

YFIRLIT

Gallagher G485 sólarrafstöðin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1994.

Rafstöðin er ætluð til framleiðslu raforku úr sólargeislum einkum til nota við rafgirðingar. Rafstöðin er 0,2 m2 plata í álramma. Á rammanum eru festingar til að festa rafstöðina á staur. Orkuvinnsla rafstöðvarinnar var mæld við breytilegar aðstæður. Rafstöðin var ekki prófuð við rafgirðingu. Mælingar sýndu að rafframleiðsla byggist að mestu á beinu sólskini, þótt nokkur orka náist í gegnum þunna skýjahulu. Framleiðslan mældist mest 19,5 wött. Á nær heiðríkum degi, 12. september, mældist orkunámið um 430 kJ (0,12 kWst.).

Erfitt er að meta hve langri girðingu sólarrafstöðin annar. Það ræðst mest af veðráttu og ástandi girðingar. Stærð spennugjafa og rafgeyma skiptir líka máli. Reynsla af sólarrafstöðvum við rafgirðingar bendir til að talsvert hagræði sé af notkun þeirra þar sem erfitt er um aðra orkuöflun. Engir hreyfanlegir hlutir tilheyra þessum búnaði, þannig að búast má við góðri endingu og öryggi í rekstri, en rétt er þó að taka fram að ekki liggja fyrir innlendar athuganir í þeim efnum.


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Búvélaprófanir

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2003 2004

Ýmislegt

Ábendingar

Dreifing búfjáráburðar

Dreifing tilbúins áburðar

Dreifing sáðvöru

Dráttavélar

Framræsla

Jarðvinnsla

Heyskapur

Kornrækt

Gripahús

Landnýting

Girðingar

Námskeið

Annað