Yfirlit búvélaprófana árið 1991
KVERNELAND – rúllubaggatætari
Skýrsla nr. 614
Gerð: Kverneland UN7860. Framleiðandi: Kverneland-Underhaug, Noregi. Innflytjandi: Jötunn h.f., Reykjavík.
YFIRLIT
Kverneland UN7860 rúllubaggatætarinn var prófaður af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins fyrri hluta árs 1991 og notaður alls við söxun og mötun á um 66 rúllum eða sem svarar 110 m3 af heyi.
Tætarinn er ætlaður til að tæta niður og mata allar gerðir af rúlluböggum með þvermál allt að 150 cm. Hann er tengdur á þrítengi dráttarvéla og vegur um 714 kg. Hnífabúnaðurinn er knúinn frá aflúrtaki dráttarvélar, en baggahólfið frá vökvakerfi hennar. Utan um hnífaöxul er blásturshús og myndar búnaðurinn blástur sem blæs heyinu frá tækinu til hægri hliðar í allt að 2 m fjarlægð. Afköst eru mjög breytileg eftir stillingu tækisins og heygerð, oft á bilinu 30-70 kg þe./mín, en mældust mest um 120 kg. Aflþörf er á sama hátt breytileg, 30-40 kW (41-55 hö), en mældust mest um 50 kW (68 hö). Þungamiðja tækisins er nokkuð langt frá dráttarvél og því verður að ætla minnst 50-60 kW (68-82 hö) dráttarvél með góðri framþyngingu til að fullnýta getu tækisins. Athugun á söxunarhæfni tætarans leiddi í ljós mikla söxun heysins þar sem fremur gróft hey saxast þannig að um 60% er með minni strálengd en 8 cm. Könnun á dreifigæðum sýndi að þau eru að jafnaði viðunandi en verða ójöfn þegar heyið veltur óreglulega í baggahólfinu. Notkun tætarans er heldur óþjál inni á fóðurgangi nema rými sé mikið, og gólf þurfa að hafa mikið burðarþol. Tækið er traustlega smíðað og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum.
ELHO – áburðardreifari
Skýrsla nr. 615
Gerð: Elho EL 700 Framleiðandi: Elho, Finnlandi. Innflytjandi: Glóbus hf. Reykjavík.
YFIRLIT
Áburðardreifarinn Elho EL 700 var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1991 og gerðar mælingar á dreifieiginleikum hans.
Áburðardreifarinn er þyrildreifari með eina dreifiskífu sem knúin er frá aflúttaki. Dreifarinn er tengdur á þrítengi dráttarvélar. Hann rúmar um 650 kg af áburði og vegur sjálfur 137 kg. Þetta rýrir framþunga lítilla og meðalstórra dráttarvéla talsvert og getur verið nauðsynlegt að þyngja þær að framan. Dreifarinn er lágbyggður og með nokkuð víðum áburðargeymi. Hleðsla hans er því tiltölulega auðveld. Dreifarinn getur dreift nokkuð jafnt ef 10 m bil er milli ferða. Hann dreifir þó lengra til hægri en vinstri. Grind í áburðargeymi hindrar að kekkir í áburðinum loki útrennslisopi. Dagleg hirðing dreifarans er auðveld, m. a. vegna þess hve létt er að velta áburðargeymi frá þegar dreifarinn er tengdur og þegar komast þarf að dreifibúnaði til þrifa. Dreifibúnaður er úr ryðfríu efni. Stillikvarði fyrir dreifimagn er fremur ónákvæmur og leiðbeiningar um stillingar á útrennslisopi reyndust fjarri því að gilda fyrir grófkorna íslenskan áburð. Nokkurt gagn má hafa af mælistauk sem fylgir dreifaranum við stillingar á dreifimagni. Engar bilanir komu fram á reynslutímanum.
GALLIGNANI – rúllubindivél
Skýrsla nr. 616
Gerð: Gallignani 9550. Framleiðandi: Gallignani A. S.p.a., Russe, Ítalíu. Innflytjandi: Orkutækni h.f. Reykjavík.
YFIRLIT
Rúllubindivélin Gallignani 9550 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1991. Vélin var aðeins reynd á fyrri sláttar uppskeru og bundnir um 200 baggar.
Rúllubindivélin er dragtengd og knúin frá aflúttaki og með vökvaþrýstingi dráttarvélar, og vegur um 2660 kg. Hún tekur hey á öllum þurrkstigum upp úr sláttuskárum eða múgum og vefur saman í þétta sívalningslaga rúllubagga. Baggarnir eru 1,2 m breiðir og þvermál 1,6-1,7 m eftir þéttleika á garnbindingu. Rúmmál þeirra er því 2,4-2,7 m3. Þyngd þeirra við 30% þurrefnisinnihald er um 950 kg, 50% þurrefnisinnihald um 750 kg, og við 80% um 470 kg. Nettó afköst við bindingu forþurrkaðs heys, voru um 20 baggar á klst eða um 7,5 tonn af þurrefni á klst. Hægt er að stilla vélina á mismunandi þjöppunarstig en fyrrgreindar tölur miðast við mestu þjöppun. Aflþörf vélarinnar á tengidrifi er oft um 43 kW (58 hö) en mældist mest um 52 kW (71 hö). Vélin var ekki mæld í grænfóðri. Eigin þyngd vélarinnar er fremur mikil þannig að eigi að fullnýta afkastagetu hennar má ætla að þurfi minnst um 60 kW (81 hö) dráttarvél. Bindivélin er tiltölulega lipur í notkun og daglegt viðhald fremur einfalt. Baggar eru að jafnaði vel lagaðir en nokkuð háð ökulagi. Sópvinda vélarinnar er fremur há sem getur verið til baga í smágerðu heyi1). Í upphafi reynslutímans vann garnhnýtibúnaður vélarinnar ekki eðlilega vegna vanstillingar. Vélin virðist traustbyggð og ekki kom fram óeðlilegt slit eða bilanir á reynslutímanum.
GALLIGNANI – rúllupökkunarvél
Skýrsla nr. 617
Gerð: Gallignani G90 S. Framleiðandi: Gallignani A., S.p.a., Russe, Italíu. Innflytjandi: Orkutækni h.f. Reykjavík.
YFIRLIT
Gallignani G90 S rúllupökkunarvélin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1991. Var hún notuð alls um 44 klst við pökkun á 511 böggum. Prófunartíminn var venju fremur skammur, vélin aðeins reynd á fyrri sláttar böggum.
Pökkunarvélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Hún er dragtengd og knúin af vökvakerfi dráttarvélar og vegur um 1570 kg. Vélin er með lyftubúnaði sem tekur baggana upp af jafnsléttu upp á pökkunarborð. Á borðinu er bagganum snúið og velt um leið og þannig má stjórna þéttleika vafninga, en jafnframt er búnaður til að stjórna mismunandi strekkingu á filmunni. Þegar bagginn er fullpakkaður er pallinum snúið í sturtustöðu og bagganum velt aftur af vélinni. Vélin er með sjálfvirkan skurðbúnað fyrir plastfilmuna. Nettó afköst vélarinnar eru oft á bilinu 20-35 baggar á klst allt eftir aðstæðum og vafningafjölda. Ætla má að 30 kW (41 hö) sé lágmarksstærð dráttarvélar fyrir pökkunarvélina. Við fjórfalda pökkun er filmunotkun um 0,9-1,0 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar 70-80 m af filmu á hvern bagga, en er eðlilega háð þurrkstigi og baggastærð. Vélin er á belgmiklum hjólbörðum sem bera hana vel við erfiðar aðstæður. Ef hey slæðist úr böggunum við pökkun vill það safnast fyrir á pökkunarborði og jafnvel setjast undir burðarbeltin ef það er ekki hreinsað jafn óðum. Í lok reynslutímans var ekki unnt að sjá óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram. Vélin er traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.
DEUTZ-FAHR – rúllubindivél
Skýrsla nr. 618
Gerð: Deutz-Fahr GP 2.30 OPTICUT. Framleiðandi: Deutz-Fahr, Þýskalandi. Innflytjandi: Þór hf, Reykjavík.
YFIRLIT
Deutz-Fahr GP 2.30 OPTICUT er rúllubindivél með hnífabúnaði. Hún var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1991. Við prófun vélarinnar voru bundnir 449 baggar. Auk þess voru bundnir um 1500 baggar með henni á reynslutímanum.
Bindivélin er dragtengd, knúin frá vinnudrifi dráttarvélar. Hún vegur 1940 kg. Hún tekur hey og grænfóður á öllum þurrkstigum upp úr múgum eða sláttuskárum og vefur í þétta, sívalningslaga bagga. Þeir eru 1,22 m breiðir og um 1,24 m í þvermál, þannig að rúmmál þeirra er um 1,47 m3. Þyngd bagga er breytileg, einkum eftir þurrkstigi; oft um 600-650 kg af nýlega slegnu grasi og 500 kg af forþurrkuðu heyi (50-60% þe.). Þetta svarar til 150-160 og 330-340 kg af fullþurru heyi. Afköst má ætla 22-26 bagga á klst. og mældust 6,8 tonn af þurrefni á klst. við bindingu á forþurrkuðu heyi. Í vélinni eru hnífar sem skera heyið við mötun. Vélin er lipur í notkun og vinnur örugglega við allar venjulegar aðstæður. Aflþörf vélarinnar með skurðbúnaði er um 45 kW (61 hö) ef miðað er við algenga þjöppun heysins um 160 kg þe/m3.Ef nýta á afkasta- og þjöppunargetu vélarinnar til fulls verður að ætla henni 60-70 kW dráttarvél (82-95 hö). Vélin virðist traustbyggð og vönduð. Bilanir voru engar og ekkert óeðlilegt slit kom fram.
KRONE – rúllubindivél
Skýrsla nr. 619
Gerð: KRONE 130. Framleiðandi: KRONE, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta, Reykjavík.
YFIRLIT
Rúllubindivélin KRONE KR 130 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1991. Með henni voru bundnir 550 baggar á reynslutímanum.
Bindivélin er dragtengd, knúin frá vinnudrifi dráttarvélar. Hún vegur 1690 kg. Hún tekur hey og grænfóður á öllum þurrkstigum upp úr múgum eða sláttuskárum og vefur í sívalningslaga bagga. Þeir eru 1,21 m breiðir og um 1,27 m í þvermál, þannig að rúmmál þeirra er um 1,53 m3. Þyngd bagga er breytileg, einkum eftir þurrkstigi, en gæti verið 550-650 kg af nýlega slegnu grasi og 400-500 kg af forþurrkuðu heyi (50-60% þe.). Þetta svarar til 150-570 og 260-280 kg af fullþurru heyi. Afköst má ætla 28-32 bagga á klst. við góðar aðstæður og mældust 7,0 tonn af þurrefni á klst. við bindingu á forþurrkuðu heyi. Við vissar aðstæður reyndust festur við mötun tíðar og binding því tafsöm1). Bindibúnaður vann ekki af öryggi og voru tafir af hans völdum alltíðar4). Vélin er lipur í notkun, en ökumaður þarf að fylgjast vel með mötun hennar. Ætla verður 35-45 kW (48-61 hö) dráttarvél fyrir bindivélina. Engar bilanir urðu á reynslutímanum. Festing botnplötu reyndist ótrygg, en að öðru leyti virðist vélin traustbyggð.
KRONE – heyþyrla
Skýrsla nr. 620
Gerð: Krone KW 440-4. Framleiðandi: Krone GmbH, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta h.f., Reykjavík.
YFIRLIT
Heyþyrlan Krone KW 440-4 var reynd af Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Bútæknideild, sumarið 1991 og notuð alls um 63 klst.
Heyþyrlan er tengd á þrítengi dráttarvélar og drifin frá aflúttaki hennar. Hún vegur 604 kg. Í flutningsstöðu er ytri stjörnunum lyft upp í lóðrétta stöðu með vökvatjökkum. Hæfni heyþyrlunnar til heysnúnings reyndist góð og ójöfnum lands fylgir hún vel. Heymúgum dreifir vélin í 5,4-6,4 m breiðan flekk. Vinnslubreidd vélarinnar er allt að 4,15 m og afköst við heysnúning reyndust að jafnaði 3,5 ha/klst, en mest 5,0 ha/klst. Á mjög fljótvirkan hátt má stilla heyþyrluna þannig að hún kasti heyinu nokkuð til hliðar, t.d. frá skurðbökkum og girðingum. Liður í beislisbúnaði vélarinnar auðveldar vinnu með henni í beygjum. Heyþyrlan er traustbyggð. Á reynslutímanum varð engra bilana vart.
KRONE – stjörnumúgavél
Skýrsla nr. 621
Gerð: Krone KS380-420/12. Framleiðandi: Maschinenfabriken Bernard Krone GmbH, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta h.f, Reykjavík.
YFIRLIT
Krone KS 380-420/12 stjörnumúgavélin var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1991 og notuð alls um 58 klst.
Stjörnumúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúttaki. Hún vegur 678 kg. Múgavélin reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Magn dreifar í rakstrarfari mældist að jafnaði á um 1,2 kg þe./ha, eða sem svarar 1,4 hb/ha við ökuhraða 5-10 km/klst. Við bestu aðstæður er dreifarmagnið um 0,6 kg þe./ha. Þrátt fyrir mikla vinnslubreidd reyndist vélin fylgja vel ójöfnum á yfirborði landsins. Hún getur rakað frá girðingum og skurðbökkum. Liður í beislisbúnaði vélarinnar auðveldar vinnu með henni í beygjum. Vinnslubreidd vélarinnar er stillanleg en rakstrarfar getur orðið allt að 3,1 m að breidd. Hæfilegur ökuhraði var oft um 8-12 km/klst. og afköst að jafnaði um 2,5 ha/klst. Vélin rýrir framþunga dráttarvéla verulega og getur þurft að þyngja þær til að uppfylla ákvæði um þungahlutföll. Múgavélin er traustbyggð og engra bilana varð vart á reynslutímabilinu.
KVERNELAND – rúllupökkunarvél
Skýrsla nr. 622
Gerð: Kverneland, Silawrap UN7581. Framleiðandi: Kverneland Underhaug AS, Noregi. Innflytjandi: Jötunn h.f., Reykjavík.
YFIRLIT
Kverneland UN7581 rúllupökkunarvélin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1991. Var hún notuð alls við pökkun á um 630 rúlluböggum.
Vélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin af vökvakerfi hennar og vegur um 725 kg. Vélin er með lyftibúnaði sem tekur baggana upp frá jafnsléttu upp á pökkunarborð. Á borðinu er bagganum snúið og velt um leið. Þannig er plastfilmu vafið utan um hann. Veltuhraðanum má breyta í hlutfalli við snúningahraða og fá þannig fram mismunandi þétta vafninga. Þegar bagginn er fullpakkaður er pallinum snúið í upphafsstöðu, griparmur lagður að bagganum, pallinum velt svo að bagginn leggst til hliðar á jörðina og griparmi lyft frá bagganum. Vélin er með sjálfvirkan skurðbúnað fyrir plastfilmuna. Afköst vélarinnar mældust á bilinu 25-29 baggar á klst miðað við sexfalt filmulag á böggum. Þungamiðja pökkunarvélar er í um 2,3 m fjarlægð frá afturöxli dráttarvélar og því má ætla að 45 kW (60 hö) dráttarvél sé lágmarksstærð fyrir pökkunarvélina. Við fjórfalt filmulag var plastfilmunotkunin 0,9-1,0 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar 70-80 m af filmu á hvern bagga. Auðvelt er að ná böggunum inn á pökkunarborðið og þeir skorðast þar örugglega af. Hey sest ekki fyrir á borðinu. Skurðbúnað fyrir filmu þarf að stilla af töluverðri nákvæmni og afstöðumerkingum á vélinni er ábótavant. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiriháttar bilanir komu fram. Vélin er traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.
JET 2000 – mykjudæla
Skýrsla nr. 623
Gerð: Jet 2000. Framleiðandi: Jæren Landbrukssenter, Varhaug, Noregi. Innflytjandi: Hannes Sigurðsson, Reykjavík (s.91-654774).
YFIRLIT
Jet 2000 mykjudælan kom til prófunar í júnímánuði 1991. Dælan var notuð alls í 53 klst þar af til áfyllingar í tanka um 535 tonn. Dælan er miðflóttaaflsdæla tengd á þrítengi dráttarvéla og knúin frá aflúrtaki. Hún vegur um 470 kg. Hún er ætluð til dælingar á þynntum búfjáráburði hvort heldur er í flutningatæki eða til blöndunar í áburðargeymslum. Halla dælunnar má breyta frá nær láréttri stöðu í vinnu upp í nær lóðrétta stöðu þá má einnig breyta hæð hennar á burðarramma. Það gefur breytilega möguleika á dælingu um lúgur á áburðargeymslum án þess að hafa sérstaka dælubrunna. Þá má víða koma henni að við losun úr fjárhúsum. Afköst hennar eru verulega háð þykkt áburðarins en voru allt að 3700 l/mín við mjög lágt þurrefnisinnihald áburðarins. Við algenga þykkt, 5-8% þurrefni voru afköst dælunnar 2400-3200 l/mín. Aflþörf dælunnar mældist mest um 23 kW (31 hö). Álagsöryggi stöðvar dæluna ef fastir aðskotahlutir komast í inntaksop hennar og valda því ekki skemmdum. Í lok reynslutímans bilaði lega á dæluöxli við drifhús1). Að öðru leyti varð ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á dælunni í lok reynslutímans. Hún er tiltölulega auðveld í meðförum og virðist traustbyggð.
KR – afrúllari
Skýrsla nr. 624
Gerð: KR-afrúllari. Framleiðandi: Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli.
YFIRLIT
KR afrúllarinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins fyrri hluta árs 1991 og notaður við dreifingu á um 805 votheysrúllum og 48 þurrheysrúllum við breytilegar aðstæður.
Afrúllarinn er ætlaður til að mata hey úr rúlluböggum af öllum stærðum á öllum þurrkstigum. Hann er ýmist tengdur á þrítengi dráttarvéla eða ámoksturstæki og vegur 175 kg. Veltibúnaðurinn er knúinn frá vökvakerfi dráttarvélar. Með tækinu má taka rúllur beint úr stæðum og dreifa úr þeim t.d. á fóðurgang. Mælingar á afköstum við gjafir við algengar aðstæður sýndu að vélavinnan er um 6 mín/hb en það svarar til um 39 mín/tonn þurrefnis. Heildarvinnan við heyfóðrun með tækinu var um 80 mín/tonn þurrefnis. Dreifigæði eru mjög háð þurrkstigi heys, bagga- og heygerð. Á grófu forþurrkuðu heyi í fastkjarna böggum matast heyið í nokkuð samfelldum streng en á smágerðu heyi úr lauskjarna böggum matast aðeins hluti af böggunum jafnt. Á tækið má einnig tengja staurabor og hræritunnu fyrir steinsteypu en ekki gafst færi á að reyna þau með viðeigandi mælingum. Frumathuganir benda til að þau skili vel sínu hlutverki. Í heild má segja að KR afrúllarinn sé einfalt sterkbyggt tæki sem létti verulega vinnu við flutning og dreifingu heys úr rúlluböggum. Engar bilanir komu fram á reynslutímanum. |