Yfirlit búvélaprófana árið 1990
BTB – afrúllari
Skýrsla nr.606
Gerð: BTB afrúllari. Framleiðandi: Bifreiða- og Trésmiðja Borgarness h/h., Borgarnesi.
YFIRLIT
Mötunarbúnaðurinn BTB - afrúllari var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins veturinn og sumarið 1990. Hann var notaður við mötun á um 200 þurrheysrúllum og á um 90 votheysrúllum.
Matarinn er ætlaður til að mata hey úr heyrúllum af breytilegri stærð og ólíku þurrkstigi. Honum er ýmist ætlað að vinna staðbundið eða til dreifingar á heyfóðri beint á fóðurgang. Hann er tengdur á þrítengi dráttarvélar, knúinn með vökvastreymi frá dráttarvél og vegur um 325 kg. Hraða á mötunarbandi má stjórna þreplaust beint frá dráttarvél og einnig má hafa áhrif á hallastillingu tækisins með stillingum á lyftiörmum dráttarvélar. Hann rífur heyið úr böggunum og skilar því í nokkuð samfelldan heystreng. Mælingar voru gerðar á afköstum matarans og voru þau á bilinu 6-10 rúllubaggar á klst allt háð aðstæðum og þurrkstigi rúllanna. Þau afköst samsvara oft um 2,5-3 tonnum af heyi á klst. Við staðbundna notkun á tækinu er hægt að nota minni dráttarvélar hafi þær nægilegt vökvastreymi, en við mötun á fóðurganga á blautum votheysrúllum verður að ætla minnst 45 kW (60 hö) vél fyrir matarann. Ef unnið er við heymokstur nálægt mataranum t.d. mötun í heyblásara þarf að gæta sérstakrar varúðar með tilliti til slysahættu. Nokkuð bar á því að hey vildi vefjast um efri öxla á mötunarbandinu. Matarinn er traustlega smíðaður og ekki var vart neinna bilana á reynslutímanum.
BTB – baggagreip
Skýrsla nr. 607
Gerð: BTB xxx. Framleiðandi: Bifreiða- og Trésmiðja Borgarness h.f., Borgarnesi.
YFIRLIT
BTB baggagreipin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1990. Var hún notuð við flutning á um 650 böggum.
BTB rúllubaggagreipin er ætluð til að taka upp og flytja til rúllubagga af ýmsum stærðum og öllum þurrkstigum, hvort heldur þeir eru í plastumbúðum eða ekki. Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og vegur 76 kg. Nota má minni gerðir dráttarvéla við flutninginn og þá með framþyngingu eftir aðstæðum. Gæta þarf þess, þegar innpakkaðir baggar eru teknir, að keflin renni samsíða á lengdarstefnu baggans til að plastið verði ekki fyrir skemmdum. Þegar gengið er frá böggum í stæður er aðeins hægt að raða í eina hæð nema með sérstökum ráðstöfunum. Afköst við hirðingu eru eðlilega háð vegalengd á tún, þurrkstigi bagga og svo stærð þeirra. Sem dæmi um afköst má nefna að við 800 m vegalengd á tún á forþurrkuðu heyi og böggum sem voru 1,2 m í þvermál voru afköstin 8-9 baggar á klst en það samsvarar að hirt sé af 1 ha á um 2 klst. Þó að keflin snúist ekki um lengdarásinn virðist það ekki koma að sök með tilliti til skemmda á plastumbúðum, jafnvel þó að þau gangi nokkuð inn í bagga sem farnir eru mjög vel til að flytja innpakkaða rúllubagga um skemmri vegalengdir og eins að aka böggum saman á túni. Þá má við heimakstur ná sambærilegum afköstum eins og með dýrari tækjum þar sem vegalengdir eru ekki miklar. Engar bilanir komu fram á reynslutímanum en til bóta væri að staðsetja tengitappa neðar á greipina.
MÖRTL – sláttuþyrla
Skýrsla nr. 608
Gerð: T15V-540R. Framleiðandi: Friedrich Mörtl, V-Þýskalandi. Innflytjandi: Orkutækni h.f., Reykjavík.
YFIRLIT
Sláttuþyrlan T15V-540R var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1990 og var notuð alls um 74 klst.
Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og lyft upp í flutningsstöðu. Þyngd hennar er 407 kg. Sláttuþyrlan reyndist slá jafnt og var stubblengd í sláttufari að meðaltali 45,3 mm við ökuhraða 7-17 km/klst. Sláttur vélarinnar var yfirleitt hreinn og jafn. Bæði er hægt að stilla slátturnánd með meiðum undir skífubakka og lengd yfirtengis. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins þrátt fyrir tiltölulega mikla vinnslubreidd. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er allt að 2,10 m og mældust afköst að jafnaði 1,7-2,2 ha/klst við venjulegar aðstæður og ökuhraðann 10-13 km/klst. Ætla verður að minnsta kosti 40 kW (54 hö) dráttarvél fyrir vélina til að ná fullum afköstum. Endingartími slátturhnífa var eðlilegur.
Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Sláttuþyrlan virðist vera traustbyggð og lipur í notkun miðað við vinnslubreidd.
VERMEER – rúllubindivél
Skýrsla nr. 609
Gerð: Vermeer 504 IS. Framleiðandi: Vermeer Manufacturing Company, USA. Innflytjandi: Búvélar, Reykjavík.
YFIRLIT
Rúllubindivélin Vermeer 504 IS var reynd að Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1990. Með henni voru bundnir 819 baggar á reynslutímanum.
Rúllubindivélin er dragtengd, knúin frá vinnudrifi og vökvakerfi dráttarvélar. Hún vegur 1585 kg. Hún tekur hey og grænfóður á öllum þurrkstigum upp úr sláttuskárum eða múgum og vefur í þétta, sívalningslaga bagga. Baggarnir eru 1,2 m breiðir, en þvermál þeirra er breytilegt, allt að 1,6 m. Þyngd bagga með 1,2 m þvermál er oft um 600 kg af nýlega slegnu grasi, en 400 - 500 kg af forþurrkuðu heyi (55-60% þe.) Þetta svarar annars vegar til um 140 kg og hins vegar 280-320 kg af fullþurru heyi. Afköst við bindingu slíkra bagga má áætla 25-30 og 20-25 bagga á klst. eða um 3,4 og 6,0 tonn af þurrefni á klst. Bindivélin er fremur lipur í notkun, ökumaður verður að fylgjast vel með mötun, sérstaklega þegar byrjað er á nýjum bagga. Ætla verður 40-55 kW (55-75 hö) dráttarvél fyrir vélina. Rétt stilling og umhirða hafa afgerandi áhrif á vinnubrögð vélarinnar og afköst. Vélin virðist traustbyggð. Ekki kom fram óeðlilegt slit eða bilanir á reynslutímanum.
CARRARO – rúllupökkunarvél
Skýrsla nr. 610
Gerð: Carraro RF89. Framleiðandi: Carraro, Vicenza, Ítalíu. Innflytjandi: Vélar og þjónusta h.f., Reykjavík
YFIRLIT
Carraro RF89 rúllupökkunarvélin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1990. Var hún notuð alls um 55 klst við pökkun á 630 böggum.
Vélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin af vökvakerfi hennar og vegur um 780 kg. Vélin er með lyftibúnaði sem tekur baggana upp frá jafnsléttu upp á pökkunarborð. Á borðinu er bagganum snúið og velt um leið. Þannig er plastfilmu vafið utan um hann. Veltuhraðanum má breyta í hlutfalli við snúningahraða og fá þannig fram mismunandi þétta vafninga. Þegar baggin er fullpakkaður er pallinum snúið í upphafsstöðu, griparmi lyft frá bagganum. Vélin er með sjálfvirkan skurðbúnað fyrir plastfilmuna. Afköst vélarinnar mældust á bilinu 14-32 baggar á klst allt eftir aðstæðum og vafningafjölda. Þungamiðja bagga er í um 240 cm fjarlægð frá afturöxli dráttarvélar og því má ætla að 45 kW (60 hö) dráttarvél sé lágmarksstærð fyrir pökkunarvélina. Við 75% skörun var plastfilmunotkunin 0,9-1,0 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar 70-80 m af filmu á hvern bagga. Burðarhjól vélarinnar eru mjög lítil og bera ekki vélina með bagga nema á föstu undirlagi. Skurðbúnaður fyrir plastfilmuna vann ekki eðlilega á reynslutímanum og vökvaslöngur undir pökkunarborði voru nokkuð laskaðar í lok reynslutímans. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiriháttar bilanir komu fram. Vélin er nokkuð traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.
PZ ANDEX – stjörnumúgavél
Skýrsla nr.611
Gerð: PZ-ANdes 331. Framleiðandi: P.J. Zweegers En Zonen Geldrop, Hollandi. Innflytjandi: Jötunn h.f., Reykjavík.
YFIRLIT
Stjörnumúgavélin PZ-Andex 331 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1990 og notuð alls um 103 klst.
Stjörnumúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúttaki, hún vegur 340 kg. Múgavélin reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Magn dreifar í rakstrarfari mældist að jafnaði á bilinu 60-120 kg þ.e./ha. (0,7-1,4 hb/ha) við eðlilegan ökuhraða, 8-10 km/klst. Lítillega bar á því þegar múgað var í stóra múga að tindar tækju hey með sér og skildu eftir í rakstrarfari. Einkum bar á þessu í smágerðu heyi. Vélin reyndist fylgja vel ójöfnum á yfirborði landsins. Hún getur rakað frá girðingum og skurðbökkum en dráttarvélin treður heyflekkinn. Mótvindur rýrir rakstrargæði nokkuð svo sem venja er um vélar af þessari gerð. Rakstrarfar vélarinnar er allt að 2,3 m að breidd. Hæfilegur ökuhraði var um 8-11 km/klst og afköst að jafnaði um 1,7-2,1 ha/klst. Múgavélin er lipur í tengingu og notkun. Engar bilanir urðu á vélinni á reynslutímanum.
PZ 300 - múga og snúningsvél
Skýrsla nr. 612
Gerð: PZ Heybob 300. Framleiðandi: P.J. Zweegers En Zonen, Geldrop, Hollandi. Innflytjandi: Jötunn h.f., Reykjavík.
YFIRLIT
Múgavélin PZ Haybob 300 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1990 og notuð alls í um 40 klst.
Múgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúttaki. Þyngd vélarinnar er um 300 kg. Hún er ætluð bæði til múgunar og snúnings á heyi. Við heymúgun er vinnslubreidd vélarinnar um 2,9 m en hægt er að slá tveimur múgum saman og fá þannig múgaþykkt af 4-5 m breiðri rein. Vélin rakar að jafnaði vel og eru múgar vel lagaðir og lausir í sér. Vélin fylgir ójöfnum á landi tiltölulega vel en hættir aðeins til að sópa jarðvegi í heyið þar sem svörður er gisinn. Við heysnúning tekur vélin heyið að jafnaði vel upp og leggur það í jafnan flekk. Vinnslubreidd vélarinnar eru 2,9 m og afköstin oft á bilinu 1,9-2,6 ha/klst. Dreifing úr heymúgum gekk að jafnaði vel fyrir sig og skilar vélin góðum vinnubrögðum. Vélin er lipur og auðveld í notkun, fremur léttbyggð og rýrir því ekki verulega framþunga dráttarvéla. Illgerlegt er að raka frá girðingum eða skurðbökkum með vélinni. Á reynslutímanum sem var tiltölulega skammur komu ekki fram neinar bilanir á vélinn. Vélin sameinar tiltölulega vel þess er krafist er af snúnings- og múgavélum en afköstin verða nokkru minni en við hefðbundnar sérhæfðar vélar.
BÖGBALLE – áburðardreifari
Skýrsla nr. 613
Gerð: Bögballe D 600. Framleiðandi: Bögballe, Danmörku. Innflytjandi: Jötunn hf. Reykjavík.
YFIRLIT
Áburðardreifarinn Bögballe D 600 var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1990 og gerðar mælingar á dreifieiginleikum hans.
Áburðardreifarinn er þyrildreifari með tvær dreifiskífur sem eru knúnar frá aflúttaki. Dreifarinn er tengdur á þrítengi dráttarvélar. Hann rúmar um 600 kg af áburði og vegur sjálfur 306 kg. Þetta rýrir framþunga lítilla og meðalstórra dráttarvéla talsvert svo nauðsynlegt getur verið að þyngja þær að framan. Dreifarinn er lágbyggður og með nokkuð víðum áburðargeymi. Hleðsla hans er því tiltölulega auðveld. Dreifarinn reyndist dreifa vel er 16-17 m voru milli ferða. Grindur í áburðargeymi hindra að kekkir í áburðinum loki útrennslisopi. Dagleg hirðing dreifarans er fremur auðveld. Lokubúnaður er úr ryðfríu efni. Engar bilanir urðu á reynslutímanum, sem reyndar var mjög skammur. Dreifarinn virðist vandlega gerður. |