Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
- Búvélaprófanir
- Bútæknitenglar
- Gjaldskrár
- Lög og reglugerðir
- Sértækar greinar
- Rekstur - stjórnun
- Tölvutækni við bústörf
- Heimildasafn
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa


Yfirlit búvélaprófana árið 1987


JYDELAND - fóðurvagn

Skýrsla nr. 562

Gerð: Jydeland Combi Unik. Framleiðandi: Jydeland, Tirstrup, Danmörku. Innflytjandi: Búnaðardeild SÍS, Reykjavík.

 

YFIRLIT

Jydeland fóðurvagninn var prófaður af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins veturinn 1986-87 og notaður alls við fóðrun á um 200 m3 af votheyi.

Fóðurvagninn er ætlaður til innanhúsflutninga á votheyi og dreifingar á fóðurgang. Hann samanstendur af burðargrind, drifbúnaði, flutningakassa og dreifibúnaði. Hann vegur tómur um 530 kg og rúmar um 300 kg af votheyi. Vagninn er aðeins hægt að nota á fínskorið eða saxað hey. Heppilegast er að nota vagninn í tengslum við vélrænan losunarbúnað úr turnum en einnig gengur vel að hlaða hann með rafmagnstalíu og gripklóm. Þurfi að handmoka í vagninn verður að lyfta heyinu um 1,5 m (frá gólfhæð). Ekki er hægt að dreifa úr blokkum sem skornar eru úr stæðum. Jafnleiki dreifingar á fóðurgang er háður stjórnun á ökuhraða. Ef ekið er með jöfnum hraða er dreifingin alls ófullnægjandi. Með stjórnun á ökuhraða má fá viðunandi jafnleika, en hins vegar er erfitt fyrir ökumann að fylgjast með útmötuninni. Við dreifingu á fóðurgang í fjósi mældist meðalfrávikið um 6 kg heys á bás, við meðalgjöf um 28 kg á bás. Ætla má að vinnumagnið við heydreifinguna sé allt að helmingi minna en dreifing með handverkfærum auk vinnuléttis.

Vagninn er fremur lipur í notkun, jafnvel á þröngum göngum, en stýrisbúnaður er þungur með fullfermi. Hámarkshraði vagnsins er 1,5 m/s (5,4 km/klst) og getur hann ekið upp allt að 12 gráðu halla. Tveir rafgeymar eru á vagninum til að knýja drifbúnaðinn og fylgir hleðslutæki til að sjá þeim fyrir orku. Viðhald vagnsins er einfalt og ekki komu fram bilanir á reynslutímanum.

Í heild virðist vagninn traustbyggður og vann eðlilega allan reyslutímann.


JF – múgsaxari

Skýrsla nr. 563

Gerð: JF FC 80. Framleiðandi: J. Fraudendahl A/S, 6400 Sönderborg, Danmörku. Innflytjandi: Glóbus h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

JF FC 80 múgsaxzarinn var prófaður af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1986 og notaður alls um 40 klst.

Múgsaxarinn er ætlaður til söxunar á heyi og grænfóðri um leið og það er tekið upp úr múgum í flutningatæki. Hann er tengdur með ramma við hægri hlið dráttarvélar og vegur um 940 kg. Afköst saxarans ráðast að mestu af mótorafli dráttarvélar, þurrefnisinnihaldi heysins og skurðlengd. Hægt er að hafa nokkur áhrif á skurðlengd heysins með því að breyta stillingum saxarans. Fræðileg skurðlengd er 5, 10 og 20 mm. Afköst saxarans minnka með aukinni söxun og sömuleiðis minnka þau með auknu þurrefnisinnihaldi heysins. Við algengar aðstæður voru afköstin 15-17 tonn á klst. Talsvert ber á því að loftblástur nái ekki að koma heyinu upp á vagn, sér í lagi ef innmötun er ójöfn og unnið er í hliðarvindi. Söxun með múgsaxaranum er mikil og er það kostur við votheysgerð. Ef saxarinn er stilltur á 10 mm söxun má gera ráð fyrir að um 55% heysins sé með stubblengd undir 30 mm. Múgsaxarinn er fremur lipur í notkun, en hann er aflfrekur og verður að ætla minnst 50 kW (68 hö) dráttarvél fyrir hann eigi að ná viðunandi afköstum.

Á reynslutímanum brotnuðu 11 hnífar í hnífatromlu er aðskotahlutur barst í tromluhús. Aðrar bilanir urðu ekki og í heild reyndist múgsaxarinn traustbyggður.


BCS - sláttuþyrla

Skýrsla nr. 564

Gerð: BCS 405. Framleiðandi: BCS SpA, Mílanó, Ítalíu. Innflytjandi: Orkutækni h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

Sláttuþyrlan BCS 405 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1986 og notuð alls um 95 klst. Hún er með sláttuskífum, tengd á þrítengi dráttarvélar og er lyft upp með vökvaátaki í flutningasstöðu. Hún er mjög léttbyggð og vegur aðeins 277 kg. Raunhæf vinnslubreidd vélarinnar reyndist allt að 2,05 m og afköst að jafnaði 1,2+-1,8 ha/klst við venjulegar aðstæður og ökuhraða 8-12 km/klst. Slátttur vélarinnar reyndist viðunandi góður við flest skilyrði. Hæfileg stubblengd í sláttufari (20-50 mm) reyndist í um 50% tilvika við ökuhraða 5,5-7,1 km/klst, en í 35% tilvika við ökuhraða 9,7-13,1 km/klst. Vélin fylgir ójöfnum landsins nokkuð vel þrátt fyrir mikla vinnslubreidd, þó rýrir þar sláttugæðin á ósléttu landi hve léttur ytri endi skífubakkans er. Gera verður ráð fyrir minnst 25 kW (34 hö) dráttarvél til sláttar með vélinni eigi að nýta afkastagetu hennar. Vélin hefur mjög góða aflnýtni. Á reynslutímanum brotnuðu hlífafestingar tvisvar og hlífðardúkur yfir sláttubúnaði var svo til ónýtur í lok reynslutímans. Hnífaslit var óeðlilega mikið í upphafi reynslutímans, en eftir að skipt var um hnífagerð var það eðlilegt. Að öðru leyti virðist sláttuþyrlan vera nægilega traustbyggð og aðrar bilanir komu ekki fram.


STEYR – dráttarvél

Skýrsla nr. 565

Gerð: Steyr 8090A. Framleiðandi: STEYR-DAIMLER-PUCH AG., Steyr, Austurríki. Innflytjandi: Boði s.f., Hafnarfirði.

 

YFIRLIT

Dráttarvélin Steyr 8090A var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, sumarið 1986. Hún var notuð við ýmis bústörf, alls um 120 klst. Vegna skorts á mælibúnaði eru tölur um orku, eldsneytiseyðslu, afköst og lyftigeru vökvakerfis o.fl. unnar úr erlendum prófunarskýrslum. Dráttarvélin er búin fjórhjóladrifi og vegur um 3,4 tonn. Hámarksafli vélar mælt á aflúttaki er 57 kw (77 hö) en við mælingu á sveifarás 60 kw. Vélin skilar hámarksafli við staðlaðan hraða aflúttaks þ.e. 1000 eða 540 sn/mín.

Vélin reydist gangörugg og framur sparneytin, eyðslan oft á bilinu 230-300 g/kWt. Gírkassi hefur fjögur samhæfð hraðastig og auk þess millihraðastig við áframakstur. Til viðbótar er svo hátt og lágt drif þannig að alls eru 16 hraðastig áfram og 8 afturábak. Framhjóladrif eykur eðlilega dráttarhæfni vélarinnar og má ætla að á grónum sverði sé sá munur 30-40%. Gerð og afstaða dráttar- og tengibúnaðar er innan þeirra marka sem alþjóðlegur staðall kveður á um (ISO). Auk þess er vélin búin sérstöku beisli fyrir vagna hvort heldur þeir eru há- eða lágtengdir. Vökvakerfið hefur bæði stöðustillingu og sjálfvirka átaksstillingu. Lyftigeta á þrítengibeisli er allt að 25,5 kN (um 2,6 t). Snúningsradíus vélarinnar er um 5,3 m (án hemlanotkunar).

Ökumannshúsið er vandað og uppfyllir öryggiskröfur. Upphitunar- og loftræstibúnaður í húsi vann á fullnægjandi hátt. Hávaði í ekilshúsi er neðan þeirra marka, sem talin eru skaðleg. Afstaða sætis til fótolíugjafar veldur því, að vinnustaða ökumanns er ekki eins og best verður á kosið. Dráttarvélin virðist vönduð að allri gerð og á reynslutímanum komu ekki fram neinar bilanir á dráttarvélinni, en hann var of skammur, til þess að unnt sé að dæma örugglega um endingu og slitþol vélarinnar.


OMC – heyhnífur

Skýrsla nr. 566

Gerð: OMC AS/85. Framleiðandi: OMC, Correggio, Ítalíu. Innflytjandi: Orkutækni h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

OMC heyhnífurinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins veturinn 1986-1987. Heyskerinn hentar vel til heyskurðar bæði á votheyi og þurrheyi. Hann er knúinn með einfasa rafstraum með 900 W mótor. Skurðhraðinn er um 1,0 m/mín við votheysskurð en að 3,4 m/mín í lausu þurrheyi. Skurðdýptin er 40-50 cm. Rafmagnsnotkun er að jafnaði 3-5 amper og benda mælingar til að afl mótors sé á mörkum þess að vera nægilegt í föstum stæðum. Vinnustaða við notkun á tækinu er fremur góð og tiltölulega auðvelt að stjórna því, en þó er til nokkurra óþæginda titringur á handföngum við skurð í föstum stæðum. Í þéttu votheyi þarf að ýta tækinu niður með nokkrum þunga og sömuleiðis þarf þá töluvert átak til að lyfta því upp úr skurðfari. Heyskurðurinn verður yfirleitt hreinn og hægt að skera alveg út að veggjum og öðrum hindrunum. Ekki virðist sérstök slysahætta bundin við notkun tækisins ef notkunarreglum er fylgt. Vinna við viðhald á tækinu er lítil. Sérstakar smergilsskífur þarf til að hvetja skurðbúnaðinn. Engar bilanir urðu á reynslutímanum og í heild virðist tækið traustbyggt.


PZ – heyþyrla

Skýrsla nr. 567

Gerð: PZ-Fanex 500. Framleiðandi: P.J Zweegers en Zonen, Geldrop, Hollandi. Innflytjandi: Búnaðardeild Sambandsins, Reykjavík.

 

YFIRLIT

Heyþyrlan PZ-Fanex 500 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins seinni hluta sumars 1986 og sumarið 1987 og notuð alls um 71 klst.

Heyþyrlan er tengd á þrítengi dráttarvélar og drifin frá aflúttaki. Hún vegur 406 kg. Í flutningsstöðu er ytri stjörnum lyft í lóðrétta stöðu og rýrir því lítið þunga á stýrishjólum dráttarvélar. Hæfni heyþyrlunnar til heysnúnings reyndist ágæt og fylgir hún ójöfnum lands nokkuð vel. Heymúgum dreifir vélin í 4,5-5,0 m breiðan flekk. Vinnslubreidd vélarinnar er allt að 4,7 m, og afköst við heysnúning reyndust að jafnaði 2,9-3,3 ha/klst, en mest 4,0 ha/klst. Á mjög handhægan og fljótvirkan hátt má stilla þeyþyrluna þannig, að hún kasti heyinu nokkuð til hliðar, t.d. frá skurðbökkum og girðingum. Liður í beislisbúnaði vélarinnar auðveldar vinnu með henni í beygjum. Heyþyrlan er traustbyggð. Á reynslutímanum brotnaði enginn tindur og engra bilana varð vart.


BÖGBALLE – áburðardreifari

Skýrsla nr. 568

Gerð: Bögballe BL 600. Framleiðandi: Bögballe, 7171 Uldum, Danmörku. Innflytjandi: Búnaðardeild Sambandsins, Reykjavík.

 

YFIRLIT

Áburðardreifareinn Bögballe BL 600 var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins vorin 1986 og 1987 og var notaður alls við dreifingu á um 50 tonnum af áburði.

Áburðardreifarinn sem er þyrildreifari er tengdur á þrítengi dráttarvélar og knúinn frá aflúttaki hennar. Rúmar hann um 414 L af áburði (um 500 kg(. Dreifarinn er lágbyggður með víðum áburðargeymi og hleðsla hans því tiltölulega auðveld. Fullhlaðinn rýrir dreifarinn framþunga lítilla og meðalstórra dráttarvéla verulega, svo nauðsynlegt er að þyngja þær aukalega að framan. Við dreifingu á grófkorna áburði (Græði 1 og Græði 8) var jafnleiki dreifingar viðunandi góður ef skörun dreififerða var hæfileg. Mikilvægt er að dreifiskífa sé í réttri hæð svo og hrði aflúttaks. Jöfnust dreifing fékkst við vinnslubreidd er svarar til 11-12,5 m. Stilla má dreifimagn af viðhlítandi nákvæmni og einnig er unnt að beina dreifigeisla nokkuð til hliðanna. Harðir kekkir í áburðinum geta sest í útrennslisop dreifarans og truflað dreifingu, en annars var rennsli áburðarins um opin jafnt og þétt. Dreifarinn er fremur auðveldur í hreinsun og daglegu viðhaldi því fljótlegt er að lyfta áburðargeymi frá dreifibúnaði. Dreifibúnaður dreifarans er út áli og því laus við ryðmyndun. Engra bilana varð vart á reynslutímanum.


UNDERHAUG - rúllupökkunarvél

Skýrsla nr. 569

 

Gerð: Underhaug 7510. Framleiðandi: Underhaug Fabrikk A.S., Nærbö, Noregi. Innflytjandi: Búnaðardeild Sambandsins, Reykjavík.

 

YFIRLIT

Underhaug 7510 rúllupökkunarvélin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins seinni hluta sumars 1986 og sumarið 1987. Var hún notuð við pökkun á um 1050 rúlluböggum en það svarar til um 90 klst notkun.

Vélin er ætluð til pökkunar á rúlluböggum í plastfilmu til votheysverkunar. Hún er dragtengd, knúin frá vökvaúttaki og vegur um 1560 kg. Vélin er með lyftibúnaði sem tekur baggana upp frá jafnsléttu upp á pökkunarborð. Á borðinu er bagganum snúið og um leið velt og þannig er plastfilmu vafið utan um hann. Veltuhraðanum má breyta í hlutfalli við snúningshraða og fá þannig fram mismunandi þétta vafninga. Að lokinni pökkun er böggunum sturtað af vélinni ýmist beint á tún eða í stæður. Vinni einn maður við pökkunina þarf hann tvívegis að fara af dráttarvél að pökkunarvél við pökkun á hvern bagga. Afköst vélarinnar voru oft um 12-15 baggar á klst. Við 75% skörun var plastfilmunotkunin 0,97-1,09 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar 69-78 m. Við minni skörun, t.d. 50%, aukast afköstin nokkuð (16%) og plastfilmunotkunin minnkar verulega. Ekki liggja fyrir athuganir á því hve þétt þarf að vefja baggana við ólík geymsluskilyrði, en ætla má að 75% skörun sé nauðsynleg við útigeymslu á böggunum. Pökkunarvélin er traustbyggð og örugg í notkun og á reynslutímanum komu ekki fram bilanir eða gallar.


KIMADAN – mykjudæludreifari

Skýrsla nr. 570

Gerð: Kimadan 130 S-4000. Framleiðandi: Maskinfabriken Kimadan, Danmörku. Innflytjandi: Boði h.f., Hafnarfirði.

 

YFIRLIT

Kimadan mykjudæludreifarinn var prófaður af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins árið 1987 og notaður alls um 116 klst.

Dreifarinn er dragtengdur og knúinn frá aflúttaki dráttarvélar. Hann er ætlaður til að dæla upp, flytja og dreifa þynntri mykju og for. Dráttarbeisli hans má tengja bæði í dráttarkrók eða fast beisli á dráatarvél. Neða við tankinn er snekkjudæla og sogar hún mykjuna í gegnum sig og dælir ýmist upp í tankinn eða aftur um dreifistút. Sogbarki er tengdur fremst á hlið dælunnar. Við blöndun í haughúsum má ná viðunandi árangri. Þrýstingur mykjunnar úr hræribarka er það mikill að með réttum vinnubrögðum brotnar mykjan eða taðið vel upp. Nokkuð erfitt er að fara um með hræribarkann og er það minnst tveggja manna tak. Afköst dælunnar eru háð þurrefni mykjunnar og lyftihæð. Í vatni og þunnri mykju eru afköst hennar um 1500-1800 l/mín. Við dreifingu á sauðataði og mykju má þurrefnisinnihald ekki vera meira en 10-12% til að fá viðunandi dreifigæði. Í flestum tilvikum hefur það í för með sér verulega vatnsblöndun. Ef mykjan er þykkari tæmir dreifarinn sig ekki að fullu. Sé mykjan eða taðið hæfilega vatnsblandað verða dreifigæðin all góð og dreifibreidd þá um 7-9 m. Ætla verður 40-50 kW (55-68 hö) dráttarvél fyrir dreifarann. Á reynslutímanum þurfti að skipta um gúmmíhólk sem er utan um dælukólfinn. Í heild er mykjudæludreifarinn traustbyggður og ekki kom fram óeðlilegt slit eða bilanir umfram það er að framan greinir.

 


KRONE - heyhleðsluvagn

Skýrsla nr. 571

Gerð: Krone Turbo 2500. Framleiðandi: Krone GmbH, V-Þýskalandi. Innflytjandi: Hamar h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

Krone Turbo 2500 heyhleðsluvagninn var prófaður af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1987 og notaður alls 90 klst.

Vagninn er ætlaður til hirðingar á heyi og grænfóðri. Rúmmál vagnsins er um 18 m3 og hann vegur tómur um 2,4 tonn. Sópvindan vísar aftur og er lyft með vökvaátaki frá dráttarvél. Hleðslubúnaðurinn vann yfirleitt greiðlega, en þó er hætt við mjög slæmum festum í hleðslustokk ef innmötun er of hröð. Hleðslutími við þurrheyshirðingu var að jafnaði 5,9 mín/tonn og votheyshirðingu 3,1 mín/tonn. Hlassþungi var að jafnaði 1,3 tonn af þurrheyi, en 1,8 tonn af votheyi. Hægt er að hafa allt að 35 hnífa í einni röð í hleðslustokknum og er þá bil á milli þeirra um 40 mm. Sé öllum hnífunum beitt verður söxun heysins veruleg, en hún stuðlar að betri verkun við votheysgerð. Losun vagnsins tekur minnst um 1,7 mín, auk þess sem nokkurn tíma tekur að bakka að losunarstað, opna og loka afturenda heygrindar. Ætla verður minnst 38 kW (52 hö) dráttarvél fyrir vagninn eigi að fullnýta rými hans og afköst. Vegna lítillar sporvíddar hjólbarða er bagninn mjög valtur. Einnig er burðaröxullin of framarlega undir vagninum.

Á reynslutímanum komu fram suðugallar í festingum heygrindar að framanverðu. Aðrar bilanir urðu ekki á reynslutímanum og í heild reyndist vagninn traustbyggður.


JF – heyþyrla

Skýrsla nr. 572

Gerð: JF-RV510. Framleiðandi: J. Freundendahl A/S, 6400 Sönderborg, Danmörku. Innflytjandi: Glóbus h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

Heyþyrlan JF-RV510 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1987 og notuð alls um 60 klst.

Heyþyrlan er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúrtaki. Þyngd vélarinnar er um 430 kg. Hæfni heyþyrlunnar til heysnúninga reyndist viðunandi góð og hún fylgir ójöfnum landsins fremur vel. Í sumum tilvikum bar á röstum eða bylgjumyndunum í flekknum eftir vélina. Heymúgum dreifir vélin á 5-6 m breiðan flekk. Vinnslubreidd vélarinnar er 4,70 m og afköst við heysnúning reyndust að jafnaði 2,8-3,1 ha/klst, en mest 3,6 ha/klst. Heyþyrluna má stilla þannig, að hún kasti heyinu nokkuð til hliðar, t.d. frá skurðbökkum. Pendulliður í beislisbúnaði vélarinnar auðveldar vinnu með henni í beygjum, en aðeins ber á því að hún rási aftan í dráttarvélinni. Í flutningsstöðu er ytri stjörnunum sveiflað aftur og rýrir hún fram þunga dráttarvélar verulega. Á vélinni eru öryggisbogar utan við hringferil tinda. Á reynslutímanum brotnuðu 14 tindar, en aðrar bilanir komu ekki fram.


JF – stjörnumúgavél

Skýrsla nr. 573

Gerð: JF RS 320. Framleiðandi: J. Freundendahl A/S, 6400 Sönderborg, Danmörku. Innflytjandi: Glóbus h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

Stjörnumúgavélin JF RS 320 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1987 og notuð alls um 130 klst.

Stjörnumúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúrtaki. Hún vegur 303 kg. Múgavélin reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Magn dreifa í rakstrarfari mældist að jafnaði á bilinu 45-60 kg þurrefni á hektara. (0,6-0,8 hb/ha) við eðlilegan ökuhraða, 8-10 km/klst. Lítillega bar á því að vélin skildi eftir dreif í rakstarfari hægra megin m.v. ökustefnu. Var það einkum í smágerðu heyi. Vélin reyndist fylgja allvel ójöfnum á yfirborði landsins. Hún getur rakað frá girðingum og skurðbökkum, en dráttarvélin treður heyflekkinn. Mótvindur rýrir rakstrargæðin nokkuð. Ekki er unnt að raka með góðu móti mjög þykka múga með vélinni. Rakstrarfar vélarinnar er allt að 2,7 m að breidd. Hæfilegur ökuhraði var um 8-11 km/klst og afköst að jafnaði um 2,0-2,5 ha/klst. Múgavélin er lipur í tengingu og notkun. Engar bilanir urðu á múgavélinni á reynslutímanum.


MARANGON – sláttuþyrla

Skýrsla nr. 574

Gerð: Marangon Speedy 2500. Framleiðandi: Eugenio Marangon & Figlio SpA, Ítalíu. Innflytjandi: Orkutækni h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

Sláttuþyrlan Marangon Speedy 2500 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1987 og notuð alls um 78 klst.

Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og snúið aftur í flutningsstöðu. Þyngd hennar er um 564 kg og verður því dráttarvél sem ber hana að vera mjög framþung. Sláttuþyrlan reyndist slá jafnt og var stubblengd í sláttufari að meðaltali 46-52 mm við ökuhraðann 7-13 km/klst. Í mjög seigu grasi var sláttur óhreinn og manir talsvert miklar. Einungis er hægt að stilla sláttunánd með lengd yfirtengis. Á illa sléttu landi bar nokkuð á því að sláttuhnífarnir særðu grasrót, en við algengar aðstæður fylgdi vélin vel ófjöfnum landsins. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er allt að 1,98 m og mældust afköst að jafnaði 1,2-2,0 ha/klst við venjulegar aðstæður og ökuhraðann 7-13 km/klst. Við bestu aðstæður urðu afköstin allt að 3,2 ha/klst. Til að ná fullum afköstum verður að ætla minnst 45 kW (61 hö) dráttarvél fyrir sláttuþyrluna en við góðar aðstæður má nota minni dráttarvél með framþyngingu. Hnífaslit var eðlilegt. Hlífðardúkur á vélinni er of léttur og gefur eftir þegar ekið er á móti vindi. Veldur það talsverðri hættu af steinkasti frá sláttuskífum. Engar bilanir komu fram á reynslutímanum.


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Búvélaprófanir

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2003 2004

Ýmislegt

Ábendingar

Dreifing búfjáráburðar

Dreifing tilbúins áburðar

Dreifing sáðvöru

Dráttavélar

Framræsla

Jarðvinnsla

Heyskapur

Kornrækt

Gripahús

Landnýting

Girðingar

Námskeið

Annað