Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
- Búvélaprófanir
- Bútæknitenglar
- Gjaldskrár
- Lög og reglugerðir
- Sértækar greinar
- Rekstur - stjórnun
- Tölvutækni við bústörf
- Heimildasafn
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa

Yfirlit búvélaprófana árið 1980
NEUERO – heydreifibúnaður

Skýrsla nr. 499

Gerð: Neuero QLZ 20. Framleiðandi: Neuero-Landtechnik, Engelbrecht & Lemmerbrock, Þýskalandi. Innflytjandi: Glóbus h.f. Reykjavík

 

YFIRLIT

Heydreifibúnaðurinn Neuero QLZ var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1979. Var hann notaður við dreifingu á um 170 tonnum af heyi. Búnaðurinn er festur í burðarvirki hlöðuþaksins og má koma við í öllum algengum hlöðubyggingum án sérstakra vandkvæða. Séu skammbitar mjög neðarlega á sperrum getur þó reynst nauðsynlegt að breyta þeim. Heyblásara við dreifibúnaðinn má staðsetja hvort heldur er við hlöðuenda eða við hliðarvegg. Hægt er að nota venjulega gerð af blásara við búnaðinn skili hann nægilegu loftmagni, en lengd flutningsröra getur þó orðið meiri en við hefðbundnar innblástursaðferðir. Dreifibúnaðurinn er knúinn af tveimur rafmótorum, annar fyrir hliðardreifingu en hinn fyrir lengdarfærslu röranna. Sé búnaðurinn rétt stilltur, verður dreifingin mjög jöfn og benda mælingar til þess, að betri nýting fáist á súgþurrkunina en með hefðbundnum dreifiaðferðum. Hvert vagnhlass dreifist yfir stórt svæði en það dregur úr líkum þess, að lítið magn af illa þurru heyi geti valdið hitamyndun. Lagskipting heysins verður lárétt, og léttir það vinnu við losun heysins með handafli. Búnaðurinn er einfaldur að byggingu og auðveldur í notkun. Á reynslutímanum komu ekki fram neinar bilanir.


NEUERO – mötunarbúnaður

Skýrsla nr. 500

Gerð: Neuero ZB 6/DA 1/NFB 4. Framleiðandi: Neuero-Landtechnik, Engelbrecht & Lemmerbrock, Þýskalandi. Innflytjandi: Glóbus h.f. Reykjavík.

 

YFIRLIT

Mötunarbúnaðurinn Neuero ZB 6/DA 1/NFB 4 var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1979. Var hann notaður við mötun á um 170 tonnum af heyi.

Aðfærslubandið (biðan), tekur við heyinu af vögnum eða öðrum flutningatækjum og færir það sjálfvirkt til matarans. Færiband hans er alsett oddhvössum tindum er kemba heyið í inntaksop blásara. Afköst við mötun þurrheys (60-70% þ.e.) í blásara mældust að meðaltali 4,4 t/klst, er samsvarar um 3,4 t/klst af fullþurru heyi. Afköst við mötun grass til votheysgerðar reyndust um 5,6 t/klst. Mötun heysins reyndist í flestum tilfellum jöfn og samfelld. Þó var mötun á mjög grófgerðu heyi stundum miður góð. Auðvelt og fljótlegt er að framkvæma stillingar, er hafa áhrif á afköst og jafnleika mötunarinnar. Ekki urðu umtalsverðar bilanir á tækinu á reynslutímanum. Til þess að hægt sé að stunda hirðingu í 3-4 vindstiga kalda og þar yfir, er nauðsyn að tjalda betur umhverfis aftari enda matarans. Mötunarbúnaðinn þarf að umgangast með varkárni, þar eð nokkur slysahætta er fyrir hendi við notkun hans.


PARMITER – votheyshnífur

Skýrsla nr. 501

Gerð: Parmiter. Gerð vökvaskiptis: Kontak. Framleiðandi: P.J. Parmiter & Sons, Wiltshire, England. Innflytjandi: Vélaborg h.f. Reykjavík.

 

YFIRLIT

Parmiter votheysskerinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins árin 1979-1980. Hann var notaður við flutninga og losun á um 460 m3 af votheyi. Parmiter heyskerann má tengja á ámoksturstæki eða á lyftaragálga. Nauðsynlegt er að ámoksturstækin séu búin einhvers konar jafnvægisbúnaði til þess að heyskerinn haldist ætíð láréttur. Hægt er að skera úr allt að 3,5 m háum stæðum. Notkun heyskerans útheimtir rúmgóðar byggingar og gólf með mikið burðarþol. Hvert hlass vóg að meðaltali 330 kg. Þyngsta hlassið vóg 570 kg. Afköst við losun eru góð, um 0,7 mín/100 kg votheys miðað við 8-12 m flutningsvegalengd. Til að ná þessum afköstum er nauðsynlegt að hvetja hnífana með þjöl á eins til tveggja daga fresti. Brottnám skorna bitans gekk greiðlega og óverulegur heyslæðingur verður í flutningi. Skurðflöturinn er samfelldur og sléttur. Ekki varð vart við hita- né myglumyndun í sárinu. Engar umtalsverðar bilanir urðu á reynslutímanum. Engar hlífar eru yfir skurðarhnífnum. Gæta þarf því varúðar við notkun hans.


HEYHITAMÆLIR

Skýrsla nr. 502

Framleiðandi: Örtölvutækni s.f. Reykjavík.

 

YFIRLIT

 

Heyhitamælar frá Örtölvutækni s.f. voru reyndir af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1979. Þeir eru ætlaðir til fjarmælinga á hitastigi í heystæðum. Aðalhlutar heyhitamælisins er mælikassi og hitanemar allt að 8 talsins sem honum eru tengdir með venjulegum rafleiðslum.. Tækið er tengt 220 V rafstraum og sýnir með ljósstöfum hitastigið í hverjum hitanema fyrir sig. Hitanemunum er komið fyrir í heystæðu um leið og hirðing fer fram og verða ekki fjarlægðir þaðan fyrr en heyið er leyst upp oftast við gjafir að vetri. Mælitækið sýnir hitastigið í heyinu á afmörkuðum stöðum, en fjöldi hitanemanna er þó tæpast nægur til þess að gefa öruggt YFIRLIT yfir hitafarið í stórum hlöðum. Hægt er að fá aðvörunarbúnað með mælitækinu, sem gerir viðvart, ef hitastigið fer upp fyrir innstillt hámark. Við þurrheysgerð án súgþurrkunar er notagildi mælitækisins einkum sem aðvörunarbúnaður. Þar sem einungis er blásið hita úr heyjunum má með þessari mælitækni fylgjast með að heyhitinn fari ekki upp fyrir tiltekin mörk. Við góða súgþurrkun með fasttengdum blásara kemur þessi mælitækni einkum að gagni eftir að reglulegum blæstri er hætt til að kanna hvort einhvers staðar eigi sér stað hitamyndun.

Mælitækið reyndist traust og öruggt í notkun og nákvæmni hitanemanna, sem notaðir voru, reyndist fullnægjandi við venjulegar heyhitamælingar.


ZTR - sláttuþyrla

Skýrsla nr. 503

Gerð: ZTR-165. Framleiðandi: Agrostroj n.p., Pelhrimov, Tékkóslóvakíu. Innflytjandi: Glóbus h.f. Reykjavík.

 

YFIRLIT

Sláttuþyrlan ZTR-165 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1976 og notuð alls um 90 klst.

Sláttur vélarinnar reyndist jafn og góður og þess varð lítið vart, að sláttuhnífar særðu grasrót þótt landið væri illa slétt. Sláttufjarlægð er aðeins stillanleg innan þröngra marka. Vinnslubreidd vélarinnar er allt að 165 cm. Algengur ökuhraði við slátt var 7-10 km/klst og meðalafköst reyndust um 1,3 ha/klst. Ætla verður minnst um 40 hestafla traktor fyrir sláttuþyrluna. Vélin er þungbyggð, sem veldur því, að hún er fremur þunglamaleg í tengingu og stillingu. Af sömu ástæðu rýrir vélin framþunga traktors verulega, sé hún í flutningsstöðu. Nokkrir sláttuhnífar brotnuðu á reynslutímanum, en bilanir komu engar fram. Öryggisbúnaður sláttuþyrlunnar reyndist verka á eðlilegan hátt.


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Búvélaprófanir

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2003 2004

Ýmislegt

Ábendingar

Dreifing búfjáráburðar

Dreifing tilbúins áburðar

Dreifing sáðvöru

Dráttavélar

Framræsla

Jarðvinnsla

Heyskapur

Kornrækt

Gripahús

Landnýting

Girðingar

Námskeið

Annað