|
|
Votlendi
Í flokkinn votlendi falla gróðurlendin mýri, hallamýri og flói. Fjölbreytileiki votlendis er mikill. Helsta einkennistegundir mýra á láglendi eru mýrarstör, mýrelfting og kvistgróður, en á hálendi er eru það stinnastör og kvistgróður. Aðrar algengar tegundir eru tjarnarstör, vetrarhvíðastör og gulstör. Helstu einnkennsiplöntur flóa eru klófífa en aðrar algengar tegundir eru gulstör hengistör, hrafnastör og vetrakvíðastör. Allt land sem flokkast sem votlendi einkennist af miklum gróðri, misfjölbreyttum, en ævinlega þéttum sverði. Uppskera er oftast mikil. Votlendi er stundum þýft. Í sumum tilvikum kann að koma upp spurning um það hvort tjarnir í votlendi skuli teljast vatn eða sem hluti votlendisins. Slíkt verður að meta eftir stærð tjarnanna og þá einnig hvort útslag myndanna gefi tilefni til þess að ákvarða flokkunina. Rétt er að hafa í huga að úrkoma hefur áhrif á hversu mikið vatn er á yfirborði í votlendinu.
|
|
|