|
|
Vettvangsvinna
Safna gögnum
Vettvangsvinnan er unnin með því að fara um hverja gervitunglamynd og skrá (merkja inn á myndina) alla gróðurflokka.
Staðfesta flokkun
Þegar flokkun á mynd er lokið, þá eru 800-1000 punktar settir tilviljunarkennt á myndina. Farið er í alla punktana með aðstoð GPS tækis og með sjónrænu mati er skorið úr um það hvort flokkun sé rétt eða röng. Einnig er tekin ljósmynd sem er geymd í gagnagrunni.
Til að gera þessa vinnu aðgengilegri og ekki eins tímafreka er landsvæði valið sem er ekki lengra en 700 metra frá vegum (vegaþekja frá Landmælingum). Þetta er gert svo hægt sé að fara í 10-30 punkta á dag, í staðinn fyrir 1-5 punkta. Einn punktur gæti verið 5 km frá vegi sem þýddi í raun 10 km göngutúr.
|
|
|