|
|
Umhverfissvið
Markmið umhverfissviðs RALA er að efla skilning á auðlindum lands til að leggja grunn að sjálfbærri nýtingu þeirra. Verkefnin felast m.a. í rannsóknum á jarðvegi, gróðri og nýtingu hans, samspili beitar og gróðurs, á hvern hátt landi hnignar og endurheimt landgæða. Það er lögbundið verkefni stofnunarinnar að kanna eðli og orsakir gróðureyðingar og jarðvegsrofs og sinna rannsóknum þar sem gerð er ítala á beitarsvæðum. Með verkefninu Nytjaland er hafin gerð nýrrar jarðabókar fyrir allar bújarðir landsins. Ennfremur er lögð áhersla á rannsóknir á kolefnisbúskap landsins og sviðið tekur virkan þátt í rannsóknum á hnattrænum umhverfisbreytingum.
Markmið og starfsvettvangur umhverfissviðs er í stöðugri endurskoðun í ljósi þróunar og þekkingar á vistkerfum landsins og nýtingu auðlinda. Á umhverfissviði starfa nú um 10 starfsmenn. Unnið er í nánu samstarfi við önnur svið RALA, sem og Landgræðslu ríkisins, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins og fleiri aðila.
Útgefið efni
Listi um útgefið efni á vegum umhverfissviðs er tíundað í Árskýrslu Rala en við bendum einnig á lista er varðar jarðvegsrof og ástand lands á slóðanum http://www.rala.is/desert, sem einkum er ætlaður fyrir erlenda áhugamenn um rannsóknir á þessu sviði.
Sviðsstjóri umhverfissviðs er Ólafur Arnalds Ph.D
|
|
|