Einar Gretarsson

Almennt
Landamerki
Gróðurflokkar
Gögn
Rannsóknir
Fjarkonnun
Landupplýsingar
Gagnagrunnur
Kort
Hug-/vélbúnaður
Samstarfsaðilar
Starfsmenn
Áhugverðir tenglar

Nytjaland
LBHÍ
Keldnaholt
112 Reykjavík
sími: 433 5000
fax : 433 5201

Heimasíða LBHÍ
Nytjaland vefsjá
Gagnaskrá


Þrívíddarkort
Skorradalur

Norðurárdalur

Ölfus

Úlfarsfell

Tenging og samstarf við aðra


Bændasamtök Íslands
munu einnig nýta sér grunninn til að miðla upplýsingum til bænda og ráðunauta, auk þess sem miðað er við tengingu grunnanna vegna vottunar sauðfjárframleiðslu og annarra verkefna.
Heimasíða: www.bondi.is

Fasteignamat ríkisins
Samstarf er við Fasteignamatið um að miðla upplýsingum til beggja aðila.
Heimasíða: www.fmr.is

Framkvæmdasýsla ríkisins
Samstarf um hugbúnað sem notaður er til miðlunar upplýsinga á internetinu. Verkefnið EFSR (Eignaupplýsingakerfi Framkvæmdasýslu ríkisins) hefur þróað þennan hugbúnað.
Heimasíða: www.fsr.is

Kirkjubæjarstofa
Samstarf í öflun landamerkja.
Heimasíða: www.kbkl.is/index2.html

Landgræðsla ríkisins
Landgræðslan er að koma á fót gagnagrunni fyrir áætlanir og aðgerðir, sem m.a. auðveldar setrum stofnunarinnar utan höfuðstöðva að nálgast upplýsingar um tiltekin svæði. Gagnagrunnur Nytjalands er mikilvægur fyrir starf L.r., en ýmis gögn L.r. nýtast vel fyrir ýmsa þætti Nytjalandsverkefnisins, t.d. vegna vottunar sauðfjárjarða, (t.d. hrossabeit, landgræðsluáætlanir).
Heimasíða: www.landgr.is

Landmælingar Íslands
Gerður hefur verið samstarfssamningur milli LMÍ og Nytjalands.
Verið er að skoða möguleikann á notkun gróðurgreiningar sem gerð er í verkefninu sem grunn fyir gróðurfar í IS50V hjá LMÍ. Viðræður þess efnis standa yfir. Gott samstarf er um skoðun og kaup á gervitunglamyndum.
Heimasíða: www.lmi.is

Landmótun
Samstarf hefur verið með Landmótun og Nytjalandi við öflun landamerkja.
Heimasíða: www.landmotun.is

Landkostir
Samstarf hefur verið með Landkostum og Nytjalandi við öflun landamerkja.

Náttúrufræðistofnun Íslands
Stafræn gögn um gróðurfar og landamerki á afmörkuðum svæðum voru fengin hjá Náttúrufræðistofnun. Náttúrufræðistofnun hýsir nú gróðurkortagerðina sem áður var rekin á Rala. Gott samstarf er um þau gögn sem safnað hefur verið vegna gróðurkortagerðar og vegna ýmissa annarra verkefna á sviði upplýsingatækni og náttúrufars.
Heimasíða: www.ni.is

Náttúrufarsgagnagrunnurinn
Í vinnslu er náttúrufarsgagnagrunnur sem er samstarfsverkefni nokkurra stofnana ríkisins. Markmiðið er að aðgangur sé greiður að hinum ýmsu gagnagrunnum sem geyma upplýsingar um náttúru Íslands, bæði sérhæfðum upplýsingum fyrir rannsóknaraðila, en einnig fyrir almenning.