Einar Gretarsson

Almennt
Landamerki
Gróðurflokkar
- Flokkunarkerfi
Gögn
Fjarkonnun
Landupplýsingar
Gagnagrunnur
Kort
Hug-/vélbúnaður
Samstarfsaðilar
Starfsmenn
Áhugverðir tenglar

Nytjaland
LBHÍ
Keldnaholt
112 Reykjavík
sími: 433 5000
fax : 433 5201

Heimasíða LBHÍ
 

Rýrt mólendi

Rýrt mólendi einkennist af lélegum beitarplöntum á borð við móasef, þursaskegg, lyngtegundir (krækilyng, bláberjalyng, sortulyng, beitilyng, fjalldrapa) og oft er þar mikill mosi og jafnvel fléttur. Lítið er af eftirsóttum beitarplöntum á borð við blómtegundir, grös og starir (t.d. stinnastör).
Rýr mólendi er yfirleitt að finna á þurrlendum móasvæðum eða á melasvæðum sem eru að gróa upp. Þar sem rýrt mólendi kemur fyrir í móum (brúnjörð/móajarðvegur) endurspeglar þessi gróðurflokkur oft land sem hefur hnignað verulega í tímans rás vegna beitar. Þessi gróðurflokkur finnst einnig hátt til fjalla, á sandi og öðrum stöðum þar sem umhverfisaðstæður draga úr framleiðslugetu landsins.
Í stórþýfðu mólendi er gróðursamsetningin oft ólík, annarsvegar upp á þúfnakollunum og hinsvegar í skjólinu milli þúfnanna. Harðgerðustu tegundirnar skipa sér á þúfnakollana en hinar kulvísari í lautirnar.
Þar sem er næðingssamt er oft rof í þúfum áveðursmegin. Ef opnurnar taka yfir helming yfirborðsins eða meira er rétt að flokka svæðið sem hálfgróið land.









 


GRÓÐURFLOKKAR


Lítt gróið

Hálf gróið

Mosi

Rýrt mólendi

Ríkt mólendi

Graslendi

Ræktað land

Kjarr og skóglendi

Hálfdeigja

Votlendi