Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
- Tilraunastöð
- Útgáfa
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning

Maísræktun á jaðarsvæðum - ný fóðurjurt á Íslandi?


Þóroddur Sveinsson
Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Möðruvöllum

15. 10. 2003

Vorið 2003 var að frumkvæði Véla & Þjónustu hf flutt inn írsk sáðvél sem sáir maís undir plastfilmu. Fyrirtækið fékk erlenda sérfræðinga til landsins sem höfðu kynnt sér íslenskar aðstæður m.t.t. maísræktunar og þeir voru sannfærðir um að hér væri hægt að rækta maís. Í vor var maís sáð undir plasti hjá 19 bændum í samtals um 16 – 18 ha. Að sögn starfsmanna Véla & Þjónustu og bændanna sjálfra voru flestir akrarnir dæmdir ónýtir í byrjun ágúst. Um mánuði seinna komu hins vegar fréttir, í ýmsum fjölmiðlum, um góðan árangur í maísræktinni. Þess vegna taldi RALA ástæðu til að gera hlutlausa úttekt á ræktuninni og taka saman og kynna erlendar upplýsingar um maísræktun á jaðarsvæðum. Niðurstöður þeirrar samantektar eru í meðfylgjandi PDF skjali. Skjalið er 21 síða og er efni hennar skipt upp í eftirfarandi kafla;

        Inngangur - 3
        Tegundalýsing - 3
        Ræktunarsaga - 6
        Flokkun - 7
        Kynbætur - 7
        Ræktun á jaðarsvæðum - 8
        Ræktun undir plasti – reynsla frá Evrópu - 11
        Ræktun maís undir plasti á Íslandi - 13
        Umræður - 18
        Ályktanir - 20
        Heimildir - 21

    Mais.pdf

     

     Leit á vef
    Sameiginlegur vefur