Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
- Forsagan
- Innflutningur
- Útflutningur
- Kartöfluútsæði
- Sjúkdómar og meindýr
- Skyldar vefslóðir
- Viðarumbúðir
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning




Reglugerð

nr. 110/1992, um innheimtu eftirlitsgjalds af innflutningi plantna*.

1. gr.

Þegar fluttar eru inn vörur, sem falla undir eftirtalin tollskrárnúmer í viðauka I við lög nr. 96/1987 um breyting á lögum nr. 55 30. mars 1987, tollalögum, skal greiða eftirlitsgjald í ríkissjóð og skal það notað til að standa undir kostnaði Rannsóknastofnunar landbúnaðarins við eftirlit með innflutningi plantna og plöntuafurða.
Greiða skal 2% eftirlitsgjald af vörum sem falla undir neðangreind tollskrárnúmer:
0601.10000602.40000602.90590603.1003
0601.20010602.90100602.90790603.1004
0601.20020602.90200602.90910603.1009
0601.20030602.90300602.90920604.9101
0601.20090602.90410602.90930604.9102
0602.10000602.90450602.90990604.9109
0602.20000602.90490603.10010701.1000
0602.30000602.90510603.10020701.9000

Greiða skal 1% eftirlitsgjald af vörum sem falla undir neðangreind tollskrárnúmer:
0702.00010704.90050707.00120709.6002
0702.0002*0704.90090707.00210709.6003
0703.10010705.11110707.00220709.6009*
0703.10090705.11120708.10000709.7000
0703.20000705.11910708.20000709.9001
0703.90010705.11990708.9000*0709.9002
0703.90090705.19000709.10000709.9003
0704.10000705.21000709.20000709.9004
0704.20000705.29000709.30000709.9009
0704.90010706.10000709.4000
0704.90020706.9001*0709.5100
0704.90030706.9009*0709.5200
0704.90040707.00110709.6001

* Fært til samræmis við breytta tollskrá.
2. gr.
Eftirlitsgjald skv. 1. gr. skal lagt á tollverð vöru og skulu ákvæði IV. kafla tollalaga nr. 55/1987 gilda eftir því sem við getur átt.
Að því leyti sem ekki er kveðið á um vöruflokkun, gjalddaga, innheimtu, lögvernd, viðurlög, refsingu og aðra framkvæmd innheimtu sérstaks eftirlitsgjalds skulu gilda eftir því sem við getur átt ákvæði laga nr. 55/1987 svo og reglugerða og annarra fyrirmæla sem sett eru samkvæmt þeim.

3. gr.
Tollstjórar annast innheimtu sérstaks eftirlitsgjalds samkvæmt reglugerð þessari og standa skil á þeim til ríkissjóðs eftir þeim fyrirmælum sem fjármálaráðuneytið setur um skil innflutningsgjalda, sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 530/1975 um reikningsskil innheimtumanna ríkissjóðs.
4. gr.
Landbúnaðarráðuneytið sker úr ágreiningi um gjaldskyldu samkvæmt reglugerð þessari.
5. gr.
Reglugerð þessi sem sett er skv. heimild í lögum nr. 59 15. maí 1990 um breytingu á lögum nr. 51 29. maí 1981, um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum, öðlast gildi 1. maí 1992 og tekur til þeirra vara sem um ræðir í 1. gr. og ótollafgreiddar eru á þeim tíma.

a) Breytt tollskrár-númer eftir gildistöku tollskrár 1996.

 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur

Viðarumbúðir