Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
- Forsagan
- Innflutningur
- Útflutningur
- Kartöfluútsæði
- Sjúkdómar og meindýr
- Skyldar vefslóðir
- Viðarumbúðir
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning





Reglugerð
um breytingu á reglugerð nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.

1. gr.

F-liður 4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

f) Jarðveg, safnhaugamold, óunninn eða kurlaðan trjábörk og húsdýraáburð. Undanskilin er þó mold, sem að meginhluta samanstenfur af mosa (
Sphagnum), enda sé hún tekin frá óræktuðum svæðum og aldrei verið notuð til ræktunar. Þá er undanskilin mold, sem fylgir rótum plantna eða rótarávöxtum, enda sé hún í óverulegum mæli. Frá löndum þar sem nýsjálenski flatormurinn (Artioposthia triangulata) er útbreiddur skulu plöntur og plöntuafurðir vera alveg lausar við mold nema sérstök yfirlýsing sé um það á heilbrigðisvottorði að plönturnar séu frá ræktunarstað þar sem flatormurinn finnst ekki.
2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum og í samræmi við tilskipun nr. 83/189 EBE um reglur um tilhögun upplýsingaskipta vegna tæknilegra staðla og reglugerða og öðlast gildi þegar í stað. Jafnframt er úr gildi felld reglugerð nr. 123/1995.

Landbúnaðarráðuneytinu, 1. júní 1999.




Guðni Ágústsson.
___________________
Hjördís Halldórsdóttir
.

 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur

Viðarumbúðir