Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
- Gagnagrunnar
- Metrabók
- Valdir tenglar
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning

Leiðbeiningar um leit í Metrabók

    Gögn bókasafnsins eru skráð í tölvukerfið Metrabók.

    Leita má í skránni af Internetinu og athuga þannig hvaða efni er til á safninu.

    Fyrir miðju er reitur þar sem leitarorð er skrifað. Leita má að:

    - nafni höfundar (erlent ættarnafn, íslenskt skírnarnafn)
    - titli (heiti bókar)
    - efnisorði (orði sem lýsir því viðfangsefni sem leitað er að)

    Sé leitað að ákveðinni bók er sleginn inn í leitarreitinn titill hennar eða höfundur.
    Sé leitað að gögnum um ákveðið efni er best að slá inn efnisorð.
    *Síðan er smellt á LEITA, og leitar þá tölvan að öllum færslum í skránni.



    Upp kemur listi yfir færslur sem koma til greina. Til að sjá hvar bók er staðsett í safninu er smellt á viðkomandi línu. Ítarupplýsingar um bókina birtast í reit fyrir neðan og aftast í textanum kemur staðsetningin innan [hornklofa]. Efst til vinstri er flettireitur til að velja leitaraðferð eftir því hvað á við. Sjálfgefið er Allt en þá leitar tölvan hvar sem er í skránni. Nauðsynlegt getur verið að þrengja leitina, t.d. ef margar færslur koma upp við fyrstu leit. Hægt er að leita eingöngu að höfundum, titlum eða efnisorðum.
 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur