|
|
Forsagan
Á árinu 1998 var skipulagi Rannsóknastofnunar landbúnaðarins breytt. Lagðar voru niður hinar 8 deildir stofnunarinnar og mynduð í staðinn 6 svið; búfjársvið, búrekstrarsvið, bútæknisvið, fóðursvið, jarðræktarsvið og umhverfissvið.
Almennar rannsóknir á plöntusjúkdómadeildinni voru fluttar undir jarðræktarsvið. Er þar átt við rannsóknir á skaðvöldum sem landlægir eru orðnir og ekki er verið með opinberum aðgerðum að takmarka útbreiðslu þeirra. Skilgreind var ný eining er heitir Plöntueftirlit RALA.
Hlutverk plöntueftirlitsins er að sinna ýmsum stjórnsýslu- og eftirlitsverkefnum sem landbúnaðarráðuneytið hefur falið stofnuninni með reglugerðum og varða plöntuheilbrigði. |
|
|