Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
- Forsagan
- Innflutningur
- Útflutningur
- Kartöfluútsæði
- Sjúkdómar og meindýr
- Skyldar vefslóðir
- Viðarumbúðir
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning

Innflutningur

    Plöntueftirlitið er sá opinberi, óháði aðili sem í umboði landbúnaðarráðuneytisins annast eftirlit og vottun vegna plöntuheilbrigði við inn- og útflutning plantna og plöntuafurða.
    Sem ráðgjafi fyrir landbúnaðarráðuneytið við undirbúning laga og reglugerða um sjúkdóma og meindýr á plöntum og sem sá aðili sem hefur með höndum eftirlit með inn- og útflutningi plantna ber Plöntueftirlitinu að fylgjast með reglum viðskiptalanda okkar og vera í nánu sambandi við eftirlitsaðila í þeim löndum.

    Einnig ber Plöntueftirlitinu að fylgjast með því hvaða nýir skaðvaldar gætu borist með plöntum frá hinum mismunandi löndum.

    Lög og reglugerðir
    Upplýsingar um innflutning plantna og plöntuafurða
    Fróðleikur

    Plöntueftirlit RALA annast þátt stofnunarinnar í framkvæmd eftirfarandi laga og reglugerða:

      • Laga nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum ásamt breytingu á þeim lögum nr. 59/1990
      • Reglugerðar nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum ásamt breytingum við þá reglugerð nr. 091/1998 og nr. 393/1999. Meginverkþættir eru skoðun plöntusendinga, skoðun og samþykkt heilbrigðisvottorða með slíkum sendingum, umsögn um undanþágur frá ákvæðum reglugerðarinnar og útgáfa heilbrigðisvottorða við útflutning plantna og plöntuafurða.
      • Reglugerðar nr. 110/1992 um innheimtu eftirlitsgjalds af innflutningi plantna. Það gjald sem innheimtist skal renna til Plöntueftirlitsins og standa undir öllum kostnaði við það að undanskildum kostnaði vegna útflutningsvottunar og innlends útsæðis.
      • Reglugerðar nr. 719/2000 um undanþágu aðflutningsgjalda af aðföngum til ýmissar atvinnustarfsemi. Plöntueftirlitið skal votta að vara sú sem flutt er inn falli undir ákvæði reglugerðarinnar sem heimila niðurfellingu aðflutningsgjalda vegna framleiðslu jarðyrkjuafurða.
      • Einnig má benda á reglugerð nr. 583/2000 um innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda, sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út.


    Hér að neðan er tilgreint úrval greina og sumar þeirra er að finna í sameiginlegu greinasafni íslensks landbúnaðar á: landbunadur.is

      Landbúnaðarráðuneytið 2000. Efldar varnir gegn plöntusjúkdómum og meindýrum. Skýrsla vinnuhóps landbúnaðarráðherra. febrúar 2000.
      Sigurgeir Ólafsson 1997. Plöntuheilbrigði og EES. Bændablaðið 3(2): 18.
      Sigurgeir Ólafsson 2001. Um innflutning á plöntum og plöntuafurðum. Morgunblaðið 22. júní: 48.
      Sigurgeir Ólafsson 2002. Um innflutning á jólatrjám og greinum


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur

Viðarumbúðir