|
|
Mosavaxið land
Land telst til þessa flokks þar sem mosi þekur um eða yfir 2/3 hluta yfirborðsins og framleiðni annars gróðurs er takmarkaður.
Með mosa vaxa oft grös, starir og smárunnar. Af grastegundum sem vaxa með mosa má helst nefna þursaskegg, túnvingul og blávingul. Stinnastör vex víða með mosa. Af smárunnum sem vaxa gjarnan með mosa má nefna grasvíði, krækilyng, grávíði, bláberjalyng og beitilyng.
Mörkin á milli mosavaxins lands og annarra gróðurflokka geta verið óljós. Mörk mosa og þursaskeggsmóa eru oft harla óskýr, en mosinn er að jafnaði hærra á holtum og meira áveðra.
Mosi er oft rofinn af gróðurvana svæðum. Ef opnurnar í mosanum þekja meira en 50% yfirborðsins þá flokkast landið sem hálfgróið. Almennt gildir að mosi verði að þekja 2/3 hluta yfirborðsins til að svæðið flokkist sem mosi, en ef mosi er ríkjandi á annars gróðurvana landi, þá flokkast svæðið til mosa sé þekja mosans yfir 50%.
|
|
|