|
|
Landamerki (jarðamörk)
|
| Staða landamerkjasöfnunar nóvember 2005. |
Október 2004.
Á liðnu sumri hefur talsvert bæst við landamerkjauppdráttinn.
Í apríl héldu starfsmenn Nytjalands upp í Kjós og hittu heimamenn í Félagsgarði og fengu hjálp þeirra við að draga inn landamerki jarða í hreppnum. Mæting var mjög góð og það náðist að ljúka við uppdrátt flestra jarða.
Vikuna 7. til 11. júní fór Fanney vestur í Ísafjarðardjúp og heimsótti ábúendur í Súðavíkurhreppi og í gamla Nauteyrarhreppi. Heilsárs búseta er víða strjál á þessu svæði. Mikilvægt var því að fá aðstoð frá ábúendum við að færa inn landamerki nálægra eyðibýla. Þótti því vænlegra að heimsækja bændur í stað þess að boða þá til fundar.
Dagana 14. til 16. júní voru ábúendur í Mýrdalshrepp boðaðir til fundar í skólahúsinu á Ketilsstöðum til þess að aðstoða við gerð landamerkjauppdráttar. Það tókst að ljúka við uppdrátt flestra jarða að undanskildum jörðum í Reynishverfi.
Dagana 21. til 23. júní voru Björn og Fanney í Bjarkarlundi og hittu þar búalið í Reykhólahrepp. Talsvert vantaði uppá að það tækist að ljúka uppdrætti allra bújarða, en því hefur verið fylgt eftir með því að senda staðkunnugum myndir með ósk um að þeir dragi inn landamerki eftir því sem kostur er.
Landamerki í Rangárþingi-Eystra hafa verið færð inn í gagnagrunn Nytjalands. Sveitarfélagið stóð fyrir skráningu þeirra, en skráningin er liður í gerð stafræns gagnagrunns fyrir sveitarfélagið og skipulagsgerð.
26. júní. 2003.
Undanfarnar vikur og mánuði hafa Fanney Gísladóttir og Björn Traustason haldið landamerkjafundi með landeigendum þar sem landamerki bújarða á Austurlandi hafa verið skráð. Vettvangsferðirnar eru orðnar fimm talsins og í þeim hafa verið heimsótt alls 14 sveitarfélög í Suður- og Norður-Múlasýslu og ef gamla hreppaskiptinging er viðhöfð er fjöldinn 24. Dagana 24.-28. mars héldu þau fundi í Djúpavogshreppi, Breiðdalshreppi, Stöðvarhreppi, Fáskrúðsfirði og Seyðisfirði. Austur-Hérað var tekið fyrir 7.-9. apríl og Fellahreppur þann 10. Dagana 28. og 29. apríl voru haldnir fundir í Fjarðarbyggð, en 30. apríl og 1. maí á Vopnafirði. Í fjórðu ferðinni 2. til 6. júní var fundað í Norður-Héraði, á Borgarfirði eystri og í Mjóafirði. Í fimmtu og síðustu ferðinni 24. júní héldu Fanney og Björn fund í Fljótsdalshreppi.
Fundirnir hafa gengið mjög vel og hefur mæting verið góð í flestum tilvikum. Ekki er búið að taka saman nákvæman fjölda jarða sem skráður var í þessum ferðum, en þær eru rúmlega 700.
Við þökkum öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóginn og vonum að afraksturinn eigi eftir að nýtast áðurnefndum sveitarfélögum og landeigendum.
3. des. 2002.
Í nóvember fóru Fanney Gísladóttir og Björn Traustason í tvær vettvangsferðir þar sem landamerki bújarða voru skráð.
Dagana 4.-8. nóvember héldu þau fundi í Kolbeinsstaðahreppi á Snæfellsnesi og Broddaneshreppi, Bæjarhreppi, Kaldrananeshreppi og Hólmavíkurhreppi í Strandasýslu. Fundirnir gengu allir að óskum og voru landamerki allflestra bújarða í þessum hreppum skráð, rúmlega 70 jarðir voru skráðar.
Dagana 25.-29. nóvember fóru þau Fanney og Björn í Suður-Þingeyjarsýslu, nánar tiltekið í Hálshrepp, Grýtubakkahrepp og Svalbarðsstrandarhrepp. Þar eru margar jarðir og er enn talsverð vinna eftir við
að fylla upp í götin, en vel gekk að skrá landamerki þeirra bújarða sem þegar eru komnar í gagnagrunninn. Fjöldi jarða sem skráðar voru í þessum hreppum er tæplega 150.
23. okt 2002.
Starfsmenn Nytjalands fóru í sumar um austurland til að staðfesta gróðurflokkun sem gerð var á tveimur gervihnattamyndum síðastliðinn vetur. Flokkunin virðist hafa tekist vel og verður farið yfir niðurstöður í vetur.
28. maí 2002.
Nytjalandshópurinn hefur unnið að því undanfarin misseri að safna gögnum um mörk bújarða og koma þeim inn á hnitsettar myndir. Gögnum, sem legið hafa fyrir hjá ýmsum aðilum, hefur verið safnað saman og eins hefur Nytjalandshópurinn farið út um sveitir og leitað til heimamanna um aðstoð við að draga inn landamerkin. Mjög vel hefur gefist að boða ábúendur á tiltekinn stað og biðja þá um að leiðbeina við að draga landamerkjalínurnar inn á mynd í tölvu. Til hliðsjónar eru hafðar landamerkjalýsingar sem til eru fyrir flestar jarðir frá síðustu áratugum 19. aldar. Þátttaka bænda hefur verið mjög góð og samstarfið almennt gengið afar vel. Nú hafa mörk um 4000 jarða verið skráð í gagnagrunn Nytjalands.
Auk landamerkjaskráningarinnar vinnur Nytjalandshópurinn að gerð landkostakorts. Sveitarfélög munu brátt fá aðgang að þessum gögnum og geta þá nýtt sér þau við áætlana - og skipulagsgerð.
14. maí 2002.
Í aprílmánuði söfnuðu starfsmenn Nytjalands gögnum um jarðamörk í Eyjafjarðarsýslu. Teiknuð voru inn mörk um 350 jarða, en í sýslunni eru um 480 lögbýli, það af er búið á um 300 jörðum.
7. febrúar 2002.
Dagana 22.-26. janúar söfnuðust 210 jarðamörk í Dalasýslu.
22. janúar 2002.
Nú sendur yfir söfnun landamerkja í Dalasýslu. Fanney og Björn verða þar vikuna 22.-31. janúar 2002 og halda fundi með bændum.
8. janúar 2002.
Landamerkjasöfnun í Fljótshlíð 8.-9. janúar.
|
|
|