Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
- Kornræktartilraunir
- Tilraunastöðin Korpa
- Saga Korpu
- Útgáfa
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning

Saga Korpu



    Fyrsta tilraunastöðin á landinu var stofnuð af Búnaðarfélagi Íslands í austurjaðri Vatnsmýrarinnar í Reykjavík árið 1899 og gekk undir nafninu Gróðrarstöðin í Reykjavík. Starfsemin var flutt þaðan austur að Sámsstöðum í Fljótshlíð vorið 1927 og leikur því nokkur vafi á því hvort Tilraunastöðin á Korpu er arftaki Gróðrarstöðvarinnar.
    Tilraunastarfsemi á vegum Atvinnudeildar Háskólans og síðar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins hófst þegar Áskell Löve var ráðinn til starfa árið 1945. Atvinnudeildin fékk aðstöðu í gamla Kópavogstúninu og þar voru gerðar tilraunir sumurin 1945 og 1946. Vitað er að þar voru borin saman afbrigði af kartöflum og eins grasstofnar.

    Vorið 1947 fékk Atvinnudeildin ábúð á jörðinni Úlfarsá, áður Kálfakoti, í Mosfellssveit og tilraunir voru gerðar þar næstu þrjú árin. Haldið var nokkrum búskap á jörðinni. Jörðin var og er landlítil og landið þar að auki talið óhentugt til tilrauna. Þó jókst umfang tilrauna verulega þessi ár. Tilraunaskýrslur fyrirfinnast ekki frá Kópavogs- og Úlfarsárárum stöðvarinnar. Þó er vitað að á Ulfarsá voru gerðar stofnaprófanir á grasi, kartöflum, rófum, káli og jarðarberjum.

    Vorið 1950 var tilraunastöðin flutt að Varmá í Mosfellssveit. Varmá var gömul bújörð, húsalaus með öllu, og var tekin á leigu til 99 ára. Þar var komið upp í snatri vinnuskúr og verkfærageymslu. Sturla Friðriksson tók við af Áskatli, sem sérfræðingur í jarðrækt. Tilraunastarfsemin stóð með nokkrum blóma í tíu ár á Varmá. Meðal nýmæla í rannsóknum þess tíma voru kalrannsóknir og kynbætur á kartöflum og rófum. Þar hófust líka á þessum árum tilraunir með fóðurkál, repju og rýgresi til grænfóðurs.
    Árið 1958 rifti Mosfellshreppur ábúð Atvinnudeildarinnar á Varmá, en samningar tókust við Reykjavíkurborg um leigu á landspildu úr Korpúlfsstöðum. Það leiguland var girt og ræst fram sumarið 1960. Bygingarframkvæmdir voru hafnar vorið 1961 og stóðu með hléum í átta ár. Varmárlandi var skilað árin 1960-1962 og tilraunir fluttar að Korpu, en það nafn hlaut stöðin þegar hún fluttist í Korpúlfsstaðaland. Húsakostur á Korpu er bærilegur; vinnuaðstaða, vélageymsla og gróðurhús.

    Korpuland var leiguland lengi framan af, en árið 1983 fékk ríkissjóður það til eignar í makaskiptum, er Reykjavíkurborg fékk land undir byggingar úr ríkisjörðinni Keldum. Tilraunastöðin hefur aldrei verið sérstök rekstrareining eins og tilraunastöðvarnar voru í öðrum landshlutum. Korpa hefur ávallt heyrt beint undir jarðræktardeild og jarðræktarsvið frá síðastliðnu vori.
 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Viðfangsefni

Hvítsmári

Rauðsmári

Kornrækt

Nytjaplöntur á Íslandi

2004
2003 - 2002
2001 - 1999