|
|
Tilraunastöðin Hestur í Borgarfirði
Frá stofnun tilraunabúsins á Hesti, 1944, hafa þar verið stundaðar alhliða sauðfjárrannsóknir. Starfseminni er skipt í tvo meginþætti, kynbætur og erfðarannsóknir og tilraunir. Undir kynbótaþáttinn heyra afkvæmarannsóknir á hrútum, þar sem áhersla er lögð á bætt kjötgæði og vaxtarlag fjárins, aukna frjósemi ánna og vaxtargetu lamba. Fjöldi kynbótahrúta frá Hesti hefur verið notaður á sauðfjársæðingastöðvum landsins og hefur kynbótastarfið á Hesti þannig haft veruleg áhrif á ræktun sauðfjár um allt land.
Undir erfðarannsóknir heyra rannsóknir á erfðum á vöðva- og fitusöfnun, sem m.a. byggist á nákvæmum krufningum lambsskrokka úr sérstökum pörunum. Mæld er fita, vöðvar og bein og einstakir vöðvar t.d. úr hrygg og læri. Einnig hafa farið fram rannsóknir á Þokugeninu og rannsóknir á erfðum ullar- og gærueiginleika o. fl.. Undir tilraunaþáttinn heyra hvers konar flokkatilraunir, s.s. fóður-, beitar- og framleiðslutilraunir, þar á meðal hagkvæmnistilraunir í sauðfjárrækt.
Tilraunabúið á Hesti er í samvinnu við ýmsar stofnanir og aðrar deildir innan RALA. Má þar nefna sérstaklega Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og Háskóla Íslands. Nýlega var gerður sérstakur samstarfssamningur milli RALA og Landbúnaðarháskólans um rannsóknir og kennslu á sviði sauðfjárræktar (sjá hann). Samkvæmt samningum er aðstaðan á Hesti nýtt bæði til rannsókna og kennslu af báðum stofnunum í sameiningu. Tilraunastöð háskólans í Meinafræði að Keldum hefur um áratuga skeið annast rannsóknir á sjúkdómum og afföllum sauðfjárins.
Gestakomur eru tíðar að Hesti. Góð aðstaða er til móttöku gesta og kynningar á starfsemi búsins í kennslustofu og fjárhúsi.
Samkomulag um rannsóknir og kennslu í sauðfjárrækt
Lanbúnaðarverðlaun 2002
|
|
|