|
|
Hálfgróið land
Land í þessum flokki hefur gróðurhulu á bilinu 20 til 50%. Tegundasamsetningin getur verið mismunandi og bæði getur verið um að ræða vinsælar og óvinsælar beitarjurtir.
Land sem telst til þessa flokks hefur litla framleiðslugetu. Uppruni þessara svæða er misjafn, en oftast er jarðvegurinn rýr. Ógróni hluti yfirborðsins getur ýmist verið þakinn grjóti, sandi, mold eða klöpp. Gróður getur verið að nema land á þessum svæðum, en einnig getur verið um gróðurleifar að ræða í röskuðu landi.
Mismunandi landform geta komið fram s.s. holt, melar, áreyrar, sandar, skriður, hraun o.fl. og á sama hátt er gjarnan höfðað til gróðursins með mismunandi nafngiftum s.s. holtagróður melagróður, bersvæðagróður, flagmói o.fl.
|
|
|