Einar Gretarsson

Almennt
Landamerki
Gróðurflokkar
- Flokkunarkerfi
Gögn
Fjarkonnun
Landupplýsingar
Gagnagrunnur
Kort
Hug-/vélbúnaður
Samstarfsaðilar
Starfsmenn
Áhugverðir tenglar

Nytjaland
LBHÍ
Keldnaholt
112 Reykjavík
sími: 433 5000
fax : 433 5201

Heimasíða LBHÍ
 


Graslendi

Grös einkenna graslendi, en í þennan flokka falla einnig svæði þar sem blóm eru ríkjandi og allan jafnan nefnast blómlendi. Graslendi í góðu ástandi einkennist af grösum en sums staðar eru blómjurtir áberandi, s.s. brennisóley og fíflar. Graslendi er alla jafna uppskeruríkt og er það einkum að finna þar sem umhverfisaðstæður eru hagstæðar gróðri. Jarðvegur er fremur þurr. Graslendi þekur oft stór svæði við brekkurætur og gróður ár- og lækjarbakka telst oft einnig til þessa flokks. Graslendi er oft einsleitt land og oft slétt. Gróðurþekjan er yfirleitt mikil en þó getur mosi verið þar áberandi í sverðinum og jafnvel smá saman tekið yfir svo graslendið verður að mosavöxnu landi. Svæði sem blómtegundir eru ríkjandi á, einkennast af þéttum gróðri, mosi er hverfandi og yfirleitt eru nokkrar blómtegundir ríkjandi. Sum blómlendi einkennast af einsleitum gróðri t.d. hvannastóð. Blómlendi eru stundum þýfð. Framræst land þar sem gróðurbreyting hefur átt sér stað, þ.e. votlendistegundir hafa vikið fyrir grösum eru talin til þessa flokks.








 


GRÓÐURFLOKKAR


Lítt gróið

Hálf gróið

Mosi

Rýrt mólendi

Ríkt mólendi

Graslendi

Ræktað land

Kjarr og skóglendi

Hálfdeigja

Votlendi