|
|
Gögn
Í verkefninu Nytjaland eru ýmis landfræðileg gögn notuð. Gögnin skiptast í tvo hluta, raster og vektor gögn. Raster gögn eru gervitunglamyndir og loftmyndir, en vektor gögn eru línuleg eins og vegir, hæðarlínur og vatnafar.
Gervitunglamyndir
Allar gervitunglamyndir eru keyptar af verkefninu og eru þar mest myndir frá gervitunglinu Landsat7 eða 8 myndir. Einnig hafa 5 myndir verið keyptar frá Spot4. Spot myndirnar voru flestar keyptar í samstarfi við Landmælingar Íslands. Yfirlit yfir þessar myndir er hægt að skoða á síðunni Gervitunglamyndir.
Vektor gögn
Gerður var samningur við LMÍ um að Nytjaland hefði aðgang að vektor gögnum sem LMÍ búa yfir um vegi, hæðalínur, stjórnsýslumörk og vatnafar. Stafræn gögn af þessu tagi eru ekki til af öllu landinu, en til stendur að afla þeirra. Yfirlit yfir þessi gögn er hægt að skoða á síðunni Vektor gögn.
Öll vinnsla á landfræðigögnum er í ISNET93 hnitakerfi sem nú er staðlað hnitakerfi á Íslandi.
|
|
|