Gerð hefur verið sameiginleg stefnumörkun Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri
Í word skjalinu hér að neðan er að finna stefnumörkunina, en formálan þar fyrir neðan
Formáli
Á liðnum árum hefur mikið verið rætt um nánara samstarf milli fagstofnana landbúnaðarins. Hafa ýmis mál verið í deiglunni. Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Bændaskólinn á Hvanneyri hafa löngum unnið saman að ýmsum málum í gegnum tíðina en sáu sér hag af því að efla það samstarf frekar og skapa því meiri festu með sérstökum samstarfssamningi haustið 1997. Meginmarkmið samningsins var að bæta og auka samvirkni í starfsemi stofnanna tveggja og var þar kveðið á um að móta skyldi sameiginlega stefnu í rannsóknum og kennslu landbúnaðarins. Með nýjum lögum um búnaðarfræðslu 1999 birtist ný sýn á fjölþætt hlutverk landbúnaðar og Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri var þar ætlaður skýr þáttur í rannsóknum. Stofnanirnar skynjuðu enn frekar en áður að hlutverki þeirra yrði best borgið með frekari samþættingu starfseminnar. Hafa þær fetað sig eftir þeirri braut og nægir að nefna nýgerða samninga milli Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri (LBH) og Rannsóknastofnunar landbúnaðarins (RALA) um rannsóknir og kennslu í sauðfjárrækt og bútækni. Nú er stigið næsta skref og er hér lögð fram sameiginleg stefnumörkun til næstu fimm ára um rannsóknir og kennslu í þágu landbúnaðarins.
Á sama tíma og þessar tvær stofnanir hafa verið að samþætta starfsemi sína hefur átt sér stað mikil umræða um nánari samvinnu rannsókna, leiðbeininga og kennslu í landbúnaði. Má nefna ýmis nefndarálit sem unnin hafa verið á vegum landbúnaðarráðuneytisins þó að þeim hafi ekki verið fylgt eftir með beinum aðgerðum.
Nýlega birti Rannsóknarráð Íslands áherslur sínar sem ætlað er að stuðla að markvissu vísindastarfi, tækniþróun og nýsköpun. Ráðið hvetur m.a. til þess að skipulag og starfshættir opinberra rannsóknastofnana og háskóla verði endurbætt þannig að „rannsóknahópar verði sameinaðir í nægilega stórar einingar til að þeir geti staðið sig í alþjóðlegu rannsóknaumhverfi“ og að „skyld rannsóknastarfsemi á mismunandi stofnunum sameinist“. Önnur atriði sem ráðið leggur áherslu á er m.a. að háskólar og rannsóknastofnanir starfi saman að menntun og þjálfun ungra vísindamanna, að rannsóknaraðilar komi sér upp gæðamati á eigin rannsóknar- og þróunarstarfsemi og að alþjóðasamstarf á sviði vísinda og tækni verði aukið.
Stefnumörkun sú sem hér birtist er unnin í ljósi samstarfssamningsins frá 28. nóvember 1997, en einnig er tekið mið af áðurnefndum nefndarálitum, skýrslu Rannís frá 2001 um stöðu og horfur í nautgriparækt á Íslandi og Áherslum Rannsóknaráðs Íslands árið 2001. Er það trú okkar að þau vinnubrögð sem hér eru viðhöfð skili jákvæðum árangri fyrir þá mörgu sem stofnanirnar þjóna, starfsmenn þeirra og samfélagið allt
.