Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
- Kornræktartilraunir
- Tilraunastöðin Korpa
- Saga Korpu
- Útgáfa
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning

Fjölært rýgresi

    Fjölært rýgresi er mjög gott fóðurgras sem er mikið ræktað í ýmsum helstu grasræktarlöndunum. Það hefur ekki verið ræktað hér á landi fram að þessu vegna takmarkaðs vetrarþols. Kynbótaframfarir eru þó verulegar og fram koma ný yrki sem færa út ræktunarmörk rýgresis.

    Frá 1995 hafa verið gerðar allmargar tilraunir á RALA með fjölært rýgresi. Auk tilrauna hefur nokkur reynsla fengist af ræktun hjá áhugasömum bændum.

    Sprettan er mikil ef það lifir veturinn vel, en ekki ætti að sá því nema við góð skilyrði, og framræslan þarf að vera í lagi.


    Hólmgeir Björnsson kynnti niðurstöður tilrauna sem gerðar voru 1995-99 á ráðunautafundi í febrúar 2000 og í 6. tbl. Freys vorið 2000. Þessar niðurstöður ásamt breyttum viðhorfum til ræktunar hafa vakið áhuga á ræktun fjölærs rýgresis hér á landi. Síðastliðið vor var flutt inn töluvert fræ, aðallega af Svea en einnig Baristra.

    Því má vænta þess að næsta sumar ( 2001 )verði um hundrað hektarar túns vaxnir rýgresi ef vel tekst til.


    Á Rannsóknastofnun landbúnaðarins eru nú m.a. gerðar tilraunir með nýtingu fjölærs rýgresis síðsumars og rýgresi í blöndu með smára, bæði rauðsmára og hvítsmára. Veðurfar hefur verið fremur hagstætt það tímabil sem tilraunirnar með rýgresi hafa staðið og reynslan því e.t.v. betri en vænta mætti til lengdar.


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Viðfangsefni

Hvítsmári

Rauðsmári

Kornrækt

Nytjaplöntur á Íslandi

2004
2003 - 2002
2001 - 1999