|
|
Útgáfa

Hér er að finna ýmsar útgáfur Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og einnig þær sem eru unnar í samvinnu við aðra. Allar greinar starfsfólks og neðangreind rit er að finna í sameiginlegu greinasafni samstarfsaðila um landbúnaðarvef www.landbunadur.is
Smellið á titil ritraða til að fá fram lista yfir útgefin rit og tengla í þau þeirra sem eru aðgengileg rafrænt.
Ársskýrsla Rala
Skýrsla um starfssemi Rannsóknastofnunar landbúnaðarins nær til tveggja ára í senn og er í gefin út bæði sem prentuð útgáfa og rafræn. Hér að neðan er að finna rafræna útgáfu ársskýrslunnar og er unnið að því að gefa út eldri ársskýrslur á sama hátt eftir því sem auðið er.
Búvísindi
Tímaritið (Íslenskar landbúnaðarrannsóknir þar til 1985) veitir viðtöku fræðilegum greinum um landbúnað og skyld efni en efnisval í ritið miðast einkum við viðfangsefni þeirra stofnana sem að því standa. Ritstjóri Búvísinda er Friðrik Pálmason og útgáfustjóri Tryggvi Gunnarsson. - Ritið er gefið út a.m.k. einu sinni á ári af Rannsóknastofnun landbúnaðarins, ásamt Bændasamtökum Íslands, Bændaskólanum á Hvanneyri, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins, Tilraunastöð háskólans í meinafræði og Veiðimálastofnun.
Fjölrit Rala
Hér er um ritröð að ræða sem stofnunin hefur gefið út frá 1976 og er einkum ætluð til kynningar á bráðabirgðaniðurstöðum rannsókna. Ennfremur eru ársskýrsla og verkefnaskrá RALA gefin reglulega út í ritröðinni. Fjölrit RALA er að finna í greinasafni landbúnaðarins.
Ráðunautafundir voru haldnir árlega af Landbúnaðarháskólanum, Bændasamtökum Íslands og Rannsóknastofnun landbúnaðarins. í því tilefni var gefið út "Rit Ráðunautafundar" og eru greinar úr ritinu að finna í sameiginlegu greinasafni samstarfsaðila um landbúnaðarvef www.landbunadur.is
Árið 2004 leysti Fræðaþing landbúnaðarins Ráðunautafundinn af hólmi, greinar frá því er einnig að finna hér.
Gagnagrunnur um efnainnihald matvæla var byggður upp hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins á ár unum 1988-1998. Á þessari vinnu byggðist útgáfa á næringarefnatöflum (handbókum um efnainnihald matvæla) í samvinnu við Námsgagnastofnun. Upplýsingar úr honum voru einnig notaðar til uppbyggingar á gagnagrunninum www.matarvefurinn.is hjá MATRA - samstarfsverkefni Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Iðntæknistofnunar.
Nytjaplöntur á Íslandi
Kemur út árlega í byrjun árs. Í ritinu eru skráðar tegundir og yrki, sem mælt er með til ræktunar á Íslandi í landbúnaði, uppgræðslu og garðyrkju, þ.m.t. grasflatir. Að útgáfunni standa auk RALA, BÍ, LBH og Garðyrkjuskóli ríkisins.
Jarðvegsrof á Íslandi var gefið út á vegum sameiginlegs verkefnis Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Landgræðslu ríkisins. Nánari upplýsingar er að finna á verkefnavefnum www.rala.is/kvasir
DESERT - Verkefni á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Landgræðslu ríkisins. Vefsíða verkefnisins er á ensku. www.rala.is/desert - Desertification in Iceland
Að auki er m.a. að finna eftirfarandi verkefnavefi á vefþjóni Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Andosol
Endurheimt votlendis
Nytjaland
Rade
Hrosshagar
Kvasir
Ýmir
|
|
|