Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
- Tilraunastöð
- Fiskeldisstöð
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning

Fjárræktarbúið fékk Landbúnaðarverðlaun 2002

Frá veitingu landbúnaðarráðherra:


Fjárræktarbúið á Hesti í Borgarfirði var stofnað árið 1943 að frumkvæði dr. Halldórs Pálssonar síðar búnaðarmálastjóra, sem þá var forstöðumaður Búnaðardeildar Atvinnudeildar Háskólans, jafnframt því að vera sauðfjárræktarráðunautur Búnaðarfélags Íslands. Síðan Rannsóknarstofnun landbúnaðarins tók við af Atvinnudeildinni hefur hún starfrækt Hestbúið og fjölmargir af sérfræðingum hennar haft aðstöðu til rannsókna sinna þar og reyndar sérfræðingar frá öðrum stofnunum einnig, svo sem frá Keldum allt eftir því sem viðfangsefnin hafa gefið tilefni til.

Hestbúið hefur frá upphafi verið alhliða tilraunabú í sauðfjárrækt. Þar hafa jöfnum höndum farið fram grundvallarrannsóknir í lífeðlisfræði, erfðafræði og arfgengi og í fóðurfræði svo nokkuð sé nefnt og beinar sauðfjárkynbætur og margháttaðar framleiðslutilraunir.

Dr. Halldór Pálsson var einn af fremstu vaxtarlífeðlisfræðingum sauðfjár síns tíma í heiminum og hafði þegar rannsakað samhengi vaxtarlags fjárstofna og kjötgæða.

Hann þekkti vel bæði veikleika íslenska fjárins hvað byggingu varðaði og styrkleika á öðrum sviðum og gerði sér glögga grein fyrir hvert bæri að stefna í kynbótum fjárins til bætts vaxtarlags.

Nokkru eftir fjárskipti 1951 eða árið 1957 voru teknar upp nákvæmar afkvæmarannsóknir sem megintæki í kynbótastarfinu. Þáttur í því starfi voru fjölþættari og nákvæmari mælingar á byggingarlagi fjárins bæði lifandi og á föllum þess. Fjölmörg mál voru tekin af föllunum til að lýsa beinabyggingu og vöðvafyllingu. Allt skýrsluhald um féð var líka afar nákvæmt. Hvergi í heiminum mun finnast annað viðlíka gagnasafn frá einu fjárbúi eins og það sem til er frá Hesti. Jafnvel á þetta við um allan íslenska fjárstofninn.

Auk mikils árangurs sem náðst hefur á Hesti með fræðilegum rannsóknum og hagnýtum tilraunum á nær öllum sviðum sauðfjárræktarinnar, hafa beinar kynbætur á búinu skilað hreint ótrúlegum árangri. Vegna útbreiddari sæðingastarfsemi hér á landi en annars staðar þekkist í sauðfjárræktarlöndum breiðast verðmætir eiginleikar fjárins frá Hesti nú um allt land. En upphaf og útbreiðslu sauðfjársæðinga má rekja til starfanna á Hesti.

Áhrif Hestbúsins á sauðfjárræktina í landinu eru enn meiri, en e.t.v. mætti ætla fyrir þá staðreynd að það hefur verið réttnefndur
háskóli í sauðfjárrækt. Þangað hafa bændur komið fjölmargir oft í skipulögðum kynnisferðum, þar hafa búvísindanemar á Hvanneyri á öllum tímum hlotið þjálfun og ráðunautum var þar tíðum safnað saman til kynnis og endurhæfingar og búfjárfræðikennarar hafa stöðugt fylgst þar með.

Nákvæmar starfsskýrslur Hestbúsins hafa allan starfstímann birst árlega í Frey en fræðilegar ritgerðir fjölmargar í vísindaritum.

Fyrir allan þennan einstæða árangur fjölmargra sem að búinu hafa starfað eða stundað þar rannsóknir hlýtur Fjárræktarbúið á Hesti nú landbúnaðarverðlaunin árið 2002.

Stefán Scheving Thorsteinsson sem nú lét nýlega af störfum, hefur starfaði við Hestbúið í hartnær fjóra áratugi og var faglegur forstöðumaður þess öll hin síðari ár. Öll störf sín hefur Stefán unnið af miklum dugnaði og trúmennsku. Ég bið hann að koma hér upp og taka við viðurkenningu til Hestbúsins og allra sem þar hafa starfað. Þorstein Tómasson forstjóra Rala bið ég og að koma og votta viðtökuna.


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur