|
|
Samstarfssamningur
Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Rannsóknastofnunar landbúnaðarins.
Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Rannsóknastofnun landbúnaðarins gera með sér eftirfarandi samstarfssamning:
Háskóli Íslands annast menntun á háskólastigi auk þess að stunda rannsóknir á þeim sviðum sem sérfræði hans nær til. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri annast menntun í búvísindum, auk rannsókna. Rannsóknastofnun landbúnaðarins er sjálfstæð stofnun sem aflar vitneskju um íslenskan landbúnað, afurðir hans og umhverfi með rannsóknum og þróunarstarfi í þeim tilgangi að efla hann og stuðla jafnframt að sjálfbærri nýtingu landsins.
Samstarfsaðilar hafa sameiginlega hagsmuni af því að: ... efla menntun, tækni og færni í rauvísindum tengdum íslenskum landbúnaði, á nýtingu afurða hans og umhverfisþáttum honum tengdum
... að efla rannsóknir á auðlindum landsins og nýtingu þeirra
... að auka þekkingu i íslenskum landbúnaði
... samnýta aðstöðu og færni hvers annars.
Til þess að ná ofangreindum markmiðum munu Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Rannsóknastofnun landbúnaðarins
... leitast við að koma á verkaskiptingu og gagnkvæmri viðurkenningu á námskeiðum til B.S. prófs.
... koma á nyjum sérhæfðum námskeiðum í landbúnaðarvísindum fyrir nemendur beggja skólanna með þátttöku sérfræðinga á öllum stofnununum.
... leitast við að koma á sameiginlegu M.S. námi í búvísindum.
... koma á leiðum til að meta hæfni sérfræðinga til að leiðbeina nemendum í M. S. námi.
... stuðla að útgáfu á kennsluefni og upplýsingamiðlun.
... koma á atvinnuvegatengdu framhalsnámi. Stúdentum í B.S. eða M.S. verkefnum við skólana verður gefinn kostur á því að vinna undir leiðsögn sérfræðinga á öllum stofnununum.
... gera samning um verklega þjálfun stúdenta í ákveðnum greinum eftir þörfum, aðstöðu og færni. ... koma á samstarfi um rannsóknir sem tengjast M.S. námi stúdenta. Lögð verði áhersla á verkefni sem tengjast uppbyggingu nýrrar þekkingar og færni fyrir íslenskan landbúnað og íslenskt þjófélag. Í því sambandi verði náið samstarf um tækjakaup svo að fjármunir nýtist sem best.
... gera samning um símenntun og endurmenntun.
Fjarmögnun og kostnaður
Samið er um skiptingu kostnaðar í hverju tilfelli. Í einstökum samningum milli samningsaðila sem falla undir rammasamning þennan skal kveða á um markmið, gagnkvæmar skuldbindingar, skiptingu kostnaðar og faglegar kröfum eftir því sem við á.
Kynning og almenn umfjöllun
Samningsaðilar skulu gæta þess að þegar fjallað er um verkefni sem falla undir þennan samning sé allra aðila getið.
Gildistími og uppsögn
Samningnum má segja upp um hver áramót. Uppsögn skal tilkynna með a.m.k. fjögurra mánaða fresti.
Framkvæmd
Skipuð verður framkvæmdanefnd sem vinna á að markmiðum samningsins. Í henni sitja tveir fulltrúar frá hverjum samningsaðila.
Reykjavík 2. september 1997
Magnús B. Jónsson rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri
Páll Skúlason rektor Háskóla Íslands
Þorsteinn Tómasson forstöðumaður Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
|  |  |
 |
|
|