|
|
Samstarfssamningur
Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Rannsóknastofnunar landbúnaðarins.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Rannsóknastonfun landbúnaðarins gera með sér eftirfarandi samstarfssamning.
1. Markmið
Samvirkni í starfsemi stofnananna verður bætt og aukin með því að: vinna að sameiginlegri stefnumótun í rannsóknum og kennslumálum landbúnaðarins. tilraunaaðstaða sem til er og fyrirhugað er að koma upp í náinni framtíð nýtist sem best í rannsóknum og fræðslu í þágu íslensks landbúnaðar. sérþekking starfsmanna nýtist við lausn brýnna rannsóknaverkefna án tillits til hvaða stofnun þeir tilheyra. auka samspil kennslu í búvísindum og landbúnaðarrannsókna þannig að sérfræðingar RALA komi með markvissum hætti að kennslu sem og leiðsögn í lokaverkefnum nemenda í háskólanum og að stofnanirnar tengist sameiginlega háskólastofnunum innan lands og utan. Efla símenntun starfsmanna bæta tengsl endurmenntunar ráðunauta og bænda við rannsóknastarfsemina.
2. Leiðir
Sameiginleg stefnumótun í rannsóknum og kennslu
Skipaðir verða tengslahópar innan einstakra fagsviða (grunngreinar, jarðrækt, búfjárrækt, bútækni, landnýting og umhverfi). Í hópunum sitja aðalkennari Landbúnaðarháskólans og sviðsstjóri viðkomandi fagsviðs á Rannsóknastofnun landbúnaðarins eða aðrir starfsmenn eftir því sem við á hverju sinni.
Hlutverk tengslahópsins er að: móta kennslu á viðkomandi fagsviði. Formleg ábyrgð gagnvart kennslumálefnum hvílir þó á aðalkennurum háskólans á viðkomandi sviði, móta sameiginlega rannsóknastefnu. Ljóst er að allir starfsmenn á viðkomandi sviði hljóta að leggja þar nokkuð að mörkum og að samráð verði milli fagsviða. stuðla að sameiginlegum rannsóknaverkefnum með samnýtingu mannafla og aðstöðu í huga að því marki sem hentugt þykir og ræða val á lokaverkefnum nemenda í háskólanum gera tillögur um endurmenntun fyrir rannsóknamenn, ráðunauta og bændur.
2.2. Vinnuskipti einstakra starfsmanna milli rannsókna og kennslu.
Stofnanirnar eru sammála um að gera starfsmönnum kleyft að dvelja tímabundið á hinni stofnuninni við kennslu eða rannsóknir. Gerður verður samningur milli stofnananna um þátttöku RALAmanna í kennslu við háskólann. Starfsmenn sem ráða sig til starfa við aðra stofnunina skuldbinda sig, ef við á, jafnframt til þess að sinna verkum á sérsviði sínu hjá hinni stofnuninni. Samið skal við núverandi starfsmenn RALA um kennsluskyldu eftir því sem við á. Kennsluábyrgð RALA manna á að koma fram í starfslýsingu þeirra.
Samnýting á aðstöðu og samráð um breytingar á núverandi aðstöðu og framtíðaruppbyggingu nýrrar aðstöðu.
bestri nýtingu þeirrar aðstöðu sem nú er fyrir hendi og samráð skal vera um að leggja af þá aðstöðu sem ekki nýtist í rannsóknastarfinu. Í sérsamningi er lýst þeirri aðstöðu sem hvor stofnun getur látið hinni í té hverju sinni. Þar kemur jafnframt fram stjórnunarleg ábyrgð og kostnaður eftir því sem við á. Gert er ráð fyrir að samið verði um skiptingu kostnaðar í hverju tilfelli.
Samstarf við Háskóla Íslands
Stofnanirnar tvær skulu standa sameiginlega að gerð rammasamnings við Háskóla Íslands um rannsóknir og kennslu á háskólastigi.
Samstarf við norrænu landbúnaðarháskólana (NOVA)
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri er hinn formlegi aðili Íslands að NOVA. Skólinn sér því um öll stjórnunarleg samskipti, þ.e.a.s. þátttöku í stjórn og skipulagsnefndum. Háskólinn mun miðla upplýsingum um NOVA samstarf til Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. Fagleg vinna við undirbúning námskeiða og framkvæmd er með þeim hætti að um hvert verkefni, sem ástæða þykir til að Íslendingar sinni, verður valinn sá fulltrúi sem hæfastur þykir hverju sinni. Ákvörðun er tekin af deildarstjóra Landbúnaðarháskólans og rannsóknastjóra RALA. Skólinn tilkynnir um nafnið til NOVA. Hvor stofnun ber kostnað af sínu fólki. Þegar við á, t.d. þegar halda á námskeið á Íslandi, verður skipuð sérstök undirbúningsnefnd með fulltrúum BÚV og RALA og fleiri einstaklingum eftir eðli málsins hverju sinni.Meginreglan er að hver stofnun kosti laun "sinna" nefndar-manna, en um annan kostnað verður gert samkomulag í byrjun undirbúningsferils.
Upplýsinga- og kynningarmál
Skipaður verður tengslahópur um upplýsinga- og kynningarmál. Honum er ætlað að tryggja samvinnu um ýmsa þætti við miðlun upplýsinga. Brýnt er að stofnanirnar kynni vel hvor annarri þann ritakost sem til er á bókasöfnum þeirra til þess að hann nýtist sem best. Þetta má gera með því að tryggja að upplýsingar um ritakost liggi frami og senda út tilkynningar til starfsmanna (í tölvupósti) um nýtt efni um leið og það berst. Stefnt er að útgáfu sameiginlegrar ritraðar sem leysa mun af hólmi Fjölrit RALA og Rit búvísindadeildar
3. Efndir
Yfirstjórn
Til að tryggja framgang samningsins skulu forstöðumenn ásamt staðgenglum sínum hittast eigi sjaldnar en ársfjórðungslega og oftar eftir þörfum. Á fundunum skulu tekin fyrir erindi sem borist hafa og mál er snerta innra starf. Skrá skal fundargerðir þar sem fram komi fyrirlögð mál og afgreiðsla þeirra. Þær skulu vera aðgengilegar öllum starfsmönnum stofnananna. Ritari skal sitja fundina. Undirbýr hann fundi og ber ábyrgð á að kalla eftir erindum, t.d. frá formönnum tengslahópa og öðrum eftir því sem við á.
Tengslahópar
Tengslahóparnir velja sér sjálfir formann og skal hann bera ábyrgð á að kalla til fundar. Skulu þeir hittast hið minnsta um miðjan september vegna umsókna í rannsóknasjóði og í tengslum við ráðunautafund til þess að leggja drög að næstu tilraunavertíð og kennslu komandi vetrar. Skrá skal fundargerðir sem eru aðgengilegar öllum. Eru þær jafnframt skýrsla til yfirstjórnar.
Kostnaður vegna samstarfs
Hver stofnun ber kostnað af vinnuframlagi og ferðum eigin starfsmanna.
4. Endurskoðun samnings
Samninginn skal endurskoða eigi síðar en í árslok 1998
28/11.1997
Þorsteinn Tómasson forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
Magnús B. Jónsson rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri
|
|
|
|