|
|
Samkomulag um bútækni, rannsóknir og fræðslu
Rannsóknastofnun landbúnaðarins, hér eftir nefnd RALA, og Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, hér eftir nefndur LBH, gera með sér eftirfarandi samkomulag á sviði bútækni um kennslu, rannsóknir og þróun, endurmenntun og ráðgjöf svo og önnur viðfangsefni til hagræðingar og eflingar þjónustu stofnananna við landbúnaðinn.
1. Um húsnæði, land og aðra aðstöðu
1.1 Bútæknihúsið á Hvanneyri verður miðstöð þeirrar starfsemi sem um er samið og rekið sameiginlega af RALA og LBH og kynnt með þeim hætti í ræðu og riti. Bútæknihúsið er rekstrarlega og fjárhagslega á ábyrgð RALA og sviðsstjóri bútæknisviðs RALA hefur yfirumsjón með rekstri þess.
1.2 Kennslustjóri LBH gerir áætlun um aðstöðuþörf LBH í Bútæknihúsi fyrir hvert skólaár og leggur hana fyrir sviðsstjóra bútæknisviðs RALA, sem fer með daglega stjórn Bútæknihúss.
1.3 RALA fær aðstöðu til bútæknirannsókna, búvélaprófana og þróunarverkefna í peningshúsum og á túnum og útjörð LBH samkvæmt samkomulagi við bústjóra skólabúsins.
1.4 RALA nýtur þjónustu skiptiborðs og bókasafns LBH og er tengt upplýsingakerfi hans (tölvukerfi, póstlisti ofl.).
1.5 RALA og LBH skipta rekstrarkostnaði bútæknihúss að jöfnu þar með talin almennum aðföngum og rekstrarkostnaði verkstæðis en RALA annast meiri háttar viðhald.
2. Um kennslu
2.1 Sérfræðingar bútæknisviðs RALA taka að sér kennslu í bútæknigreinum við LBH eftir því sem mannafli sviðsins leyfir. Kennslustjóri LBH og sviðsstjóri bútæknisviðs RALA gera samkomulag um hana til hvers skólaárs í senn. Samkomulagið liggi fyrir eigi síðar en 1. ágúst ár hvert.
2.2 LBH greiðir RALA fyrir hefðbundna kennslu á grundvelli eftirfarandi matstalna:
í háskóladeild:
Fyrirlestrar 3,56 klst/F
Dæmatímar 3,00 klst/F
Flokkakennsla 2,00 klst/F
Námsmat 8%
Stjórnun 8%
í bændadeild:
Fyrirlestrar 1,70 klst/F
Dæmatímar 1,70 klst/F
Flokkakennsla 1,00 klst/F
Námsmat 8%
Stjórnun 8%
2.3 Kennsla í fjarnámi er greidd með 100% álagi m.v. lið 2.2, fyrir áfanga kenndan fyrsta sinni, enda séu nemendur a.m.k. 3 á hverju námskeiði. Álag er miðað við 12 nemendur eða fleiri í námskeiði, sé ekki um kennslu áfangans í fyrsta skipti að ræða.
2.4 LBH greiðir RALA fyrir fjölda vinnustunda fundinn skv. liðunum 2.2-2.3 með mánaðarlegum greiðslum. Greiðsla á vinnustund nemur 0.886% af mánaðarlaunum viðkomandi starfsmanna. Að auki skulu greidd 20% vegna launatengdra gjalda.
2.5 Sviðsstjóri RALA/bútæknisviðs tekur þátt í undirbúningi kennsluáætlunar LBH á sviði bútæknigreina (sbr. 2.1) sem væri hann starfsmaður LBH. Óski LBH eftir því að starfsmenn bútæknisviðs RALA annist gerð kennsluefnis skal sérstaklega samið um það hverju sinni og liggi staðfestur verksamningur fyrir áður en í verkið er ráðist.
3. Um rannsóknir og þróunarstarf
3.1 Samræma skal rannsókna- og þróunarstarf LBH og RALA á bútæknisviði. Í því skyni skal gerð samræmd verkáætlun stofnananna til þriggja ára í senn og endurskoðuð árlega. Áætlunin skal rædd og afgreidd í verkefnaráði fyrir bútækni.
3.2 Rannsóknaverkefni LBH og RALA skv. lið 3.1 skulu skráð (vinna og annar kostnaður) eins og önnur verkefni hjá RALA með verkefnabókhaldi.
3.3 RALA og LBH vinna sameiginlega að útvegun fjármagns til rannsókna- og þróunarverkefna á sviði bútækni.
3.4 RALA og LBH vinna sameiginlega að því að skapa nemendum með námsverkefni (BSc, MSc, PhD) rannsóknaaðstöðu.
3.5 Deildarstjóri bútækni-og rekstrardeildar LBH tekur þátt í undirbúningi rannsóknaáætlana RALA/bútæknisviðs í bútækni sem væri hann starfsmaður RALA.
3.6 Niðurstöður rannsókna- og þróunarverkefna svo og sameiginleg námsskeið skulu kynntar undir nöfnum stofnananna beggja.
4. Um endurmenntun og ráðgjöf
4.1 RALA og LBH skulu í sameiningu bjóða fram endurmenntunarnámskeið á sviði bútækni. Endurmenntunarstjóri LBH ber ábyrgð á skipulagi, efnistökum, undirbúningi og framkvæmd þeirra í samráði við sviðsstjóra Bútæknisviðs RALA.
4.2 RALA hefur gert sérstakan samning við Bændasamtök Íslands um ráðgjöf í bútækni. Heimilt er að nýta allt að 200 vst sérfræðinga LBH á bútæknisviði til þess verkefnis. Með sama hætti er gert ráð fyrir að nýta megi allt að 200 vst af vinnutíma sérfræðinga RALA til verkefna skv. lið 4.1 án sérstakra milligreiðslna á milli LBH og RALA . Kennsla á námskeiðum skal metin eftir sömu reglum og gilda fyrir kennara við LBH. Greiðsla ferða- og dvalarkostnaðar fer eftir reglum sem gilda fyrir ríkisstarfsmenn.
4.3 RALA og LBH vinna saman að gerð ráðgjafar- og fræðsluefnis um bútækni, t.d. á heimasíðum. Sérstaklega skal samið um gerð þess hverju sinni og skal samningur liggja fyrir áður en í verkið er ráðist, sbr. 2.5.
5. Um aðra þjónustu
5.1 RALA og LBH reka sameiginlega bútækniverkstæði. Hlutverk þess er fyrst og fremst að annast skipulegt eftirlit, meiri háttar viðhald og eftir hætti nýsmíði tækja og búvéla sem nota þarf vegna verkefna sem um er fjallað í þessum samningi. Gert er ráð fyrir að LBH hafi áfram einfalda verkstæðisaðstöðu til smáviðgerða á vélum og verkfærum.
5.2 Verkstæðisformaður RALA/bútæknisviðs annast daglega umsjón verkstæðis og ber hann ábyrgð á því. Hann skráir vinnutíma við hin einstöku verk sem þar eru unnin og ber ábyrgð á nauðsynlegum innkaupum s.s. á varahlutum og smíðaefni, sbr. 5.3.
5.3 Með verkstæðisformanni gerir bústjóri bús LBH áætlun um viðhald véla skólabúsins og stærri verkefni sem verkstæðinu eru falin í þágu þess. Áætlunin sé gerð til ársfjórðungs í senn.
5.4 Búvélakostur LBH og RALA/bútæknisviðs og Tilraunabúsins á Hesti verði samræmdur á næstu þremur árum. Fjallað verði sameiginlega um búvélakaup og –sölu af sviðsstjóra bútæknisviðs RALA, deildarstjóra bútækni- og rekstrardeildar LBH og yfirmanns tilraunastöðvarinnar Hestbúsins. Eignarhald á hverri vél verði skráð hverri stofnun í samræmi við fjármögnun kaupa hverju sinni. Umráðarréttur verði í höndum eignaraðila, vélarnar merktar viðkomandi stofnun og einkaafnot ekki heimil. Vélar sem eru sérstaklega ætlaðar til mælinga og með sérbúnum mælitækjum verði sem minnst notaðar til almennra bústarfa heldur nýttar til rannsókna og kennslu. Notkun vélanna verður skráð á hvert verkefni og gerð upp samkvæmt samþykktum taxta. Með rannsókna- og mælitæki í þágu bútæknirannsókna stofnananna verði farið með sama hætti. Í upphafi samningstímabils skal skrá nákvæmlega og merkja hvaða rannsókna- og mælitæki eru í eigu hvorrar stofnunar.
5.5 Árlega skulu bústjóri, deildarstjóri bútækni- og rekstrardeildar LBH og sviðsstjóri bútæknisviðs RALA gera verkáætlun með það að markmiði að vinna, vélar og aðstaða nýtist sem best báðum stofnunum og í samræmi við þau verkefni sem um er fjallað í þessum samningi. Áform og reynd þeirra skal kynna og ræða a.m.k. einu sinni á ári með þeim hætti að allir starfsmenn beggja samningsaðila eigi kost á þátttöku.
6. Gildistími og endurskoðun samningsins
6.1 Samningur þessi er gerður til þriggja ára frá undirritun hans. Ákvæði um skiptingu rekstrarkostnaðar bútæknihúss gildir fyrir allt árið 2000. Heimilt er að endurskoða samninginn að fyrsta samningsárinu liðnu, óski annar aðilinn þess eða báðir. Ákvæði þessa samnings um kennslu einstakra starfsmanna RALA er háð samkomulagi við þá um hana.
Gert í október 2000
Guðni Ágústsson (sign.)
Magnús B Jónsson (sign.)
Þorsteinn Tómasson (sign.)
|
|
|
|