Samkomulag um rannsóknir og kennslu í sauðfjárrækt
Rannsóknastofnun landbúnaðarins, hér eftir nefnd RALA, og Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, hér eftir nefndur LBH, gera með sér eftirfarandi samkomulag um kennslu, rannsóknir og þróun í sauðfjárrækt og uppbyggingu og rekstur rannsókna og þróunarbús í sauðfjárrækt. Með samkomulagi þessu setja stofnanirnar sér það markmið að efla rannsóknir, þróun og kennslu í sauðfjárrækt með sameiginlegu átaki.
1. Um rekstur og aðstöðu
1.1 RALA og LBH munu framvegis standa sameiginlega að fjárbúi á tilraunastöðinni á Hesti. Greiðslumark beggja stofnana verður skráð á fjárbúið á Hesti. Beingreiðslur greiðist hvorri stofnun í hlutfalli við greiðslumark þeirra á hverjum tíma.
1.2 RALA sér um rekstur tilraunastöðvarinnar á Hesti og ber rekstrarlega og fjárhagslega ábyrgð á honum.
1.3 RALA og LBH nýta aðstöðu á Hesti sameiginlega til rannsókna, kennslu og námskeiðahalds. Starfsemi á Hesti verður rekin og kynnt undir merkjum beggja stofnana. Á sama hátt geta stofnanirnar nýtt aðstöðu í peningshúsum eða í landi LBH á Hvanneyri ef það þykir henta fyrir rannsókna- og þróunarverkefni í sauðfjárrækt.
1.4 LBH fær alla aðstöðu til verklegrar kennslu í sauðfjárrækt í fjárhúsunum á Hesti. Kennslustjóri LBH gerir áætlun um aðstöðuþörf LBH fyrir hvert skólaár og leggur hana fyrir faglegan yfirmann eigi síðar en 1. september.
1.5 Rekstur búsins á Hesti verður fjárhagslega aðskilinn frá tilraunastarfsemi og kennslustarfi. Beinn kostnaður vegna rannsóknaverkefna og kennslu/námskeiða í sauðfjárrækt greiðist af þeim aðilum sem standa að verkefnunum. Þetta gildir jafnt um verkefni sem unnin eru á Hvanneyri að þau greiða fyrir kostnað þar.
1.6 Aðstaða á Hesti verður einnig opin öðrum fagsviðum svo sem jarðrækt, bútækni, umhverfi o.fl. með sömu skilmálum.
2. Um rannsóknir og þróunarstarf
2.1 Rannsókna- og þróunarstarf LBH og RALA á sviði sauðfjárræktar verður unnið sameiginlega samkvæmt rammaáætlun um rannsóknir og þróun, sem er fylgiskjal með samningi þessum. Gerð verður verkáætlun til þriggja ára í senn sem er endurskoðuð árlega. Áætlunin verður kynnt í fagráði í sauðfjárrækt.
2.2 Faglegur yfirmaður verður ráðinn að hálfu við hvora stofnun. Hann ber ábyrgð á rannsókna- og ræktunarstefnu búsins á Hesti og ber jafnframt stjórnunarlega ábyrgð á námsframboði LBH í sauðfjárrækt.
2.3 Stofnuð verður þriggja manna fagnefnd er í sitji einn fulltrúi frá hvorum samningsaðila ásamt fulltrúa frá Bændasamtökum Íslands. Meginhlutverk nefndarinnar er að vera yfirmanni til ráðuneytis við mótun þessa samvinnuverkefnis.
2.4 Við tilraunastöðina starfar a.m.k. einn sérfræðingur í búfjárrækt sem er starfsmaður RALA og verkstjóri þróunar- og fræðslustarfsins á staðnum og sinnir hann jafnframt kennslu við LBH eftir atvikum. Hvor stofnun greiðir helming launakostnaðar vegna þessa sérfræðings. LBH ver jafnvirði beingreiðslna sinna upp í kostnaðarhlut sinn vegna hans.
2.5 RALA og LBH vinna sameiginlega að því að skapa nemendum með námsverkefni (BS, MS, PhD) í sauðfjárrækt og skyldum greinum rannsóknaaðstöðu við tilraunastöðina á Hesti.
2.6 LBH og RALA munu í sameiningu bjóða fram endurmenntunarnámskeið á sviði sauðfjárræktar. Endurmenntunarstjóri LBH ber ábyrgð á skipulagi, efnistökum, undirbúningi og framkvæmd þeirra í samráði við faglegan yfirmann tilraunastöðvarinnar (sbr. 2.2).
3. Um önnur atriði
3.1 RALA og LBH stefna að samþættingu búrekstrar á Hvanneyri og Hesti með aukna hagræðingu að leiðarljósi. M.a. verði stefnt að sameiginlegu vélaviðhaldi og vélarekstri og að sameiginlegri nýtingu vinnuafls eftir því sem hagkvæmt þykir hverju sinni.
4. Gildistími og endurskoðun samningsins
4.1 Samningur þessi er gerður til þriggja ára frá undirritun hans. Heimilt er þó að endurskoða samninginn að fyrsta samningsárinu liðnu, óski annar aðilinn þess eða báðir.
Gert í oktober 2000
Guðni Ágústsson (sign.)
Magnús B Jónsson (sign.)
Þorsteinn Tómasson (sign.) |