|
|
Að ná árangri í kálfauppeldi með sjálvirkum kálfafóstrum?
ÚR BUSKAP nr 1-2000, Lausleg þýðing eftir Eirík Blöndal.
Það eru sífellt fleiri sem hafa hug á að auðvelda sér mjólkurfóðrun með sjálfvirkum kálfafóstrum. Með bakgrunn í rannsóknum og reynslu ráðunauta hefur "Landskontoret for kvæg" í Danmörku bent á nokkur atriði sem eru mikilvæg þegar taka á í notkun þess háttar tækni.
- Aðlögun
Aðlögunin á að vera jákvæð upplifun fyrir kálfinn. Hinkraðu við í 1-2 klst eftir að kálfurinn er kominn í stíuna og plataðu hann síðan inn í fóstruna með túttuflösku og smávegis mjólk. Kálfinn má ekki þvinga inn í tækið!
- Skömmtun
Ef notað er mjókurduft þarf vikulega sannprófa og e.t.v. stilla vatns- og duftmagn.
- Túttur
Erfiðleika með sog á aðra kálfa má fyrirbyggja með því að setja upp túttur rétt við tækið. Kálfarnir hafa ennþá sogþörf þegar þeir koma úr fóstrunni og það er mikilvægt að þeirþað fái útrás á túttu en ekki á öðrum kálfum.
- Hreinlæti
Mikilvægt er að tækinu sé haldið hreinu. Það getur verið góður kostur að skifta um slöngurnar annan hvorn dag þannig að auðvelt sé að koma fyrir almennilegri hreinsun á þeim.
- Vatn
Kálfarnir eiga að hafa greiðan aðgang að vatni, þannig að þeir séu vanir vatnsdrykkju þegar þeir eru vandir af mjólk. Drykkjarbollar með flotventli eru bestir í þessu tilviki.
- Eftirlit
Rafeindatæknin getur ekki komið í staðin fyrir hirði. Aðeins með því að fylgjast vel með þeim er hægt að grípa tímalega inn í ef kálfarnir þurfa sér meðferð.. Norðmennirnir leggja til að það sé mikilvægt að nota nokkuð af þeim tíma sem sparast vegna sjálfvirkninnar til þess að umgangast kálfana og gera þá mannvana. Ef þú sinnir þeim of lítið verða kvígurnar styggar sem erfitt verður að umgangast við mjaltir
|
|
|
|