|
|
Fóðursvið
Verkefni sviðsinns eru tvíþætt, annars vegar að vinna að rannsóknum á sviði fóðurfræði búfjár, þ.m.t. beitarrannsóknum, og hins vegar að sinna þjónustu við landbúnaðinn, t.d. á sviði gæðamælinga fóðurs. Einnig hefur verið unnið að fóðrunartilraunum með eldisgrísi.
Á deildinni eru gerðar mælingar á orkuinnihaldi ("Bomb-Calorie Meter"), meltanleika fóðurs (in vitro) mælingar þar sem líkt er eftir meltingu og niðurbroti hjá jórturdýrum) og að auki eru gerðar mælingar á fóðri með svokallaðri "NIR" (Near Infrared Reflectance) mælitækni. Slíkar mælingar eru hlutfallslega ódýrar og fljótlegar. Með NIR er hægt að mæla meltanleika fóðurs og að auki helstu næringarefni í sýnum á sama tíma.
Þessi mælitækni er þó nær eingöngu nothæf til mælinga á fóðri (grasi) sem stendur. Þessi þjónusta stendur öllum utanaðkomandi aðilum til boða skv. gjaldskrá stofnunarinnar. Deildin sér einnig um gæðamælingar á hágæða fiskimjöli fyrir fiskimjölsframleiðendur með svokallaðri "Mink-test" aðferð. Á sviðinu er að finna ýmsan tækjabúnað til ofangreindra rannsókna á fóðurgæðum og til efnamælinga. Ýmis tækjabúnaður til efnarannsókna er einnig til staðar á efnagreiningastofu.
Fóðursvið hefur einnig yfir að ráða sérstöku rannsóknahúsi fyrir fóðrunartilraunir á búfé. Núverandi aðstaða býður upp á að gera nákvæmar fóðrunartilraunir (in vivo) á sauðfé og svínum, og einnig er slík aðstaða til staðar fyrir sambærilegar tilraunir á minkum. Hægt er að fylgjast nákvæmlega með áti og þrifum einstakra dýra á hverri einstakri fóðurgerð, og mæla meltanleika þess fóðurs sem þau éta. Þetta er ein nákvæmasta aðferð sem hægt er að beita við slíkar rannsóknir. Hægt er að veita ofangreinda þjónustu þeim sem áhuga hafa skv. samkomulagi.
Hjá fóðursviði Rala er nú í eldi kýr sem á sér engan sinn líka hérlendis, og þótt víðar væri leitað. Hún er úr plasti, gleri og járni og fengi vafalaust ekki háan byggingardóm eftir hefðbundnum skala.
Þó er hún mjög fríð og fögur eins og meðfylgjandi mynd ber með sér.
Sjá nánar hér....
|
|
|