Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
- Tilraunastöð
- Fiskeldisstöð
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning

Rannsóknastöð í fiskeldi



    Á Rannsóknastofnun landbúnaðarins hafa verið stundaðar rannsóknir í fiskeldi síðan 1984. Rannsóknastöð í fiskeldi var tekin í notkun í straumfræðihúsi Orkustofnunar á Keldnaholti haustið 1989.

    Allt frá árinu 1989 hefur smám saman verið unnið að því að koma upp fullkominni aðstöðu í stöðinni til rannsókna í fiskeldi. Þar er hægt að stjórna nákvæmlega öllum ytri aðstæðum svo sem birtuskilyrðum, hitastigi vatns, straumi, fóðrun o.s.fr. Þar er einnig fullkomin búnaður til rannsókna á áti og meltanleika fiskafóðurs. Í stöðinni er einnig góð klakaðstaða.
    Húsið fær kalt vatn frá Vatnsveitu Reykjavíkur, um 10 lítra á sekúndu af 4°C heitu vatni. Heitt vatn kemur úr borholu við húsvegg. Holan gefur um 6 sekúndulítrar af 18°C heitu vatni. Dæla þarf heita vatninu. Á bökkum Korpu er dæla sem grípa má til í neyðartilvikum samkvæmt samningum við Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi.
    Í upphafi árs 1999 keypti Rala húsið og borholuna af Orkustofnun.

    Sagan
    Allt frá árinu 1984 hafa starfsmenn Rala átt hlut að rannsóknum og stefnumörkun í fiskeldi. Það ár átti Stefán Aðalsteinsson, þáverandi deildarstjóri á Rala, sæti í verkefnahópi sem Rannsóknaráð ríkisins kallaði saman til að ræða rannsóknaverkefni á sviði fiskeldis. Í febrúar 1985 sendi Stefán Aðalsteinsson frá sér tillögur um kynbætur á laxfiskum og í maí sama ár átti Rala fulltrúa á fundi sem landbúnaðaráðuneytið hélt um fiskeldimál þar sem kallaðir voru saman þeir aðilar sem hefðu með þau mál að gera. Á fundinum kom fram að Rala hefði á að skipa sérfræðingum í fóðurfræði, kynbótum og tölvuvinnslu, sem sjálfsagt væri að nýta í þágu fiskeldis. Á árunum 1985 og 1986 var unnið að nokkrum rannsóknaverkefnum í samvinnu við Veiðimálastofnun og fiskeldisstöðvar. Í lok árs 1986 var orðið ljóst að mikil þörf væri á sérhæfðri aðstöðu til fiskeldistilrauna. Þá þegar var komið í ljós að á tilraunastöðinni í Kollafirði var takmörkuð aðstaða til tilrauna og til að bæta úr því þyrfti verulegt fjármagn til nýbygginga.

    Á sama tíma hafði tekist samstarf milli nokkurra stofnana og fyrirtækja (Rala, RF, Orkust., Veiðim.st., Laxeld.st.rík. Kollaf., H.Í., Lýsi h.f., M.R.) um að nota Straumfræðistöð Orkustofnunar á Keldnaholti til fiskeldisrannsókna. Í byrjun árs 1987 voru áætlanir tilbúnar og hafist handa við að afla vatns og nauðsynlegra leyfa til framkvæmda.
    Samningaviðræðu hófust við Orkustofnun um notkun Straumfræðistöðvarinnar til rannsókna í fiskeldi. Samningar tókust í lok árs 1988. Orkustofnun lagði til húsnæðið en Rala tók að sér að greiða allt venjulegt viðhald hússins ásamt fasteignagjöldum. Var þá hafist handa við að setja upp ker og leggja fyrir vatni. Þegar fram liðu stundir fækkaði í samstarfshópnum og í desember 1989 gerðu Rala, Veiðimálastofnun og Búnaðarfélagi Íslands með sér samkomulag um rannsóknaraðstöðu í Straumfræðihúsi á Keldnaholti.

    Framleiðnisjóður landbúnaðarins styrkti þessar framkvæmdir og hefur styrkt áfram margar af þeim tilraunum sem gerðar hafa verið í húsinu. Á blöðunum hér fyrir aftan eru tilgreind öll verkefni sem unnin hafa verið í stöðinni á vegum eða í samvinnu við Rala

    Allt frá árinu 1989 hefur smám saman verið unnið að því að koma upp fullkominni aðstöðu í stöðinni til rannsókna í fiskeldi. Þar er hægt að stjórna nákvæmlega öllum ytri aðstæðum svo sem birtuskilyrðum, hitastigi vatns, straumi, fóðrun o.s.fr. Þar er einnig fullkomin búnaður til rannsókna á áti og meltanleika fiskafóðurs. Í stöðinni er einnig góð klakaðstaða.
    Húsið fær kalt vatn frá Vatnsveitu Reykjavíkur, um 10 lítra á sekúndu af 4°C heitu vatni. Heitt vatn kemur úr borholu við húsvegg. Holan gefur um 6 sekúndulítrar af 18°C heitu vatni. Dæla þarf heita vatninu. Á bökkum Korpu er dæla sem grípa má til í neyðartilvikum samkvæmt samningum við Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi.
    Í upphafi árs 1999 keypti Rala húsið og borholuna af Orkustofnun.

 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur