Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
- Búvélaprófanir
- Bútæknitenglar
- Gjaldskrár
- Lög og reglugerðir
- Sértækar greinar
- Rekstur - stjórnun
- Tölvutækni við bústörf
- Heimildasafn
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa

AVANT - fjósvél Nr. 70
    AVANTprofil.pdf
Búvélaprófun 1998

Bráðabirgðaskýrsla.

Gerð: AVANT Profi Framleiðandi: AVANT TECNO OY, Finnlandi. Innflytjandi: Orkutækni hf., Reykjavík.

YFIRLIT

AVANT fjósvélin var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins veturinn 1998-99. Vélin var notuð í rúma tvo mánuði við gjafir á ferböggum, rúlluböggum og lausu þurrheyi í fjósi með um 50 kúm.

Fjósvélin er ætluð til fóðurflutninga við gjafir í fjósum og öðrum gripahúsum eftir því sem aðstæður gefa tilefni til. Vélinni fylgja jafnframt skófla og lyftaragafflar. Vélin er knúin með 13 hestafla bensínhreyfli með rafstarti og hún vegur um um 480 kg. Drifhjól eru knúin með vökvamótorum og lyftibúnaði er stjórnað með vökvatjökkum.

Gerður var samanburður á afköstum við gjafir í fjósi, annars vegar með vélinni og hins vegar með hjólakvísl. Niðurstöður má sjá í meðfylgjandi mynd.

Hægt er að athafna sig við tiltölulega þröngar aðstæður, og er í raun bara breidd vélarinnar sem er takmarkandi, ásamt lengd þar sem um beygjur er að ræða. Vegna þess að tækið er ekki mjög þungt er ekki hægt að lyfta venjulegri rúllu, en hægt er að draga rúllu til nokkuð auðveldlega.

Þegar unnið er við heygjafir þarf að gæta sérstakrar varúðar vegna slysahættu bæði m.t.t. manna og gripa. Fjósvélin er traustlega smíðuð og er til mikils vinnuléttis miðað við hefðbundnar aðferðir við gjafir. Það getur þó verið háð aðstæðum á hverjum stað.

Á fyrstu dögum prófunarinnar bar nokkuð á því að kerti mótorsins gaf sig og þurfti að setja nýtt nokkrum sinnum. Eftir það bar ekki á þessu vandamáli án þess þó að sérstök skýring kæmi í ljós, nema ef vera skyldi klaufaskapur og vankunnátta við gangsetningu.

Tvisvar á reynslutímanum gerðist það að talsvert magn af bensíni hafði blandast við smurolíu mótorsins, og þurfti að skipta um olíuna af þeim sökum. Skýring á þessu er líklega sú að innsog hefur verið ofnotað, en vélin var yfirleitt í notkun stutta stund í einu og fékk ekki að hitna sem skyldi.

Nokkra leikni þarf við stjórnun vélarinnar og ætla má að það taki um vikutíma að ná viðunandi leikni þannig að afkastageta tækisins nýtist sem skyldi.

Vélin var notuð í um 40 klst og komu engar meiri háttar bilanir fram á þeim tíma.


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur
 

Búvélaprófanir

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2003 2004

Ýmislegt

Ábendingar

Dreifing búfjáráburðar

Dreifing tilbúins áburðar

Dreifing sáðvöru

Dráttavélar

Framræsla

Jarðvinnsla

Heyskapur

Kornrækt

Gripahús

Landnýting

Girðingar

Námskeið

Annað