Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
- Tilraunastöð
- Útgáfa
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning

Saga tilraunastöðvar


Árið 1904 er stofnuð tilraunastöð á Akureyri að frumkvæði Ræktunarfélags Norðurlands. Um miðja 20. öldina var tilraunastöðin sett undir landbúnaðardeild Atvinnudeildar Háskóla Íslands þar til Rannsóknastofnun landbúnaðarins, RALA, tók við rekstrinum samkvæmt lögum um rannsóknastofnanir atvinnuveganna árið 1965. Starfssemi tilraunastöðvarinnar var sökum þrengsla, flutt frá Akureyri í hálflendu á Möðruvöllum árið 1974 en þar var áður bændaábúð.

En rannsókna- og tilraunastarf á sér lengri sögu á Möðruvöllum. Það er vitað að Grímur Jónsson amtmaður á Möðruvöllum gerði tilraunir með garðyrkju, trjárækt og korn á þriðja áratug 19. aldar. Til eru heimildir um að Bjarni Thorarensen amtmaður hafi flutt inn danskar mjólkurkýr í tilraunaskyni í Möðruvelli um 1840.

Stefán Stefánsson bóndi, náttúrufræðingur og skólameistari á Möðruvöllum rannsakaði og skráði flóru landsins. Hann skrifaði fyrstu nútíma grasafræðihandbókina Flóru Íslands, sem kom út árið 1901. Fáir ef nokkrir staðir á landinu hafa þess vegna eins eins vel skráða flóru og Möðruvallastaður. Naut Stefán dyggrar aðstoðar Ólafs Davíðssonar náttúrufræðings, þjóðsagnasafnara og kennara á Möðruvöllum en hann var einnig mikill og duglegur plöntusafnari. Stefán var búnaðarfrömuður og stóð að ýmsum tilraunum með fóðurjurtir og lét rannsaka sérstaklega fóðurgildi íslenskra fóðurjurta. Hann var brautryðjandi í fóðurjurtarannsóknum hér landi og liggja eftir hann nokkrar greinar um það efni. Hann var einnig mjög áhugasamur um búfjárkynbætur og má nefna að fyrstu kynbótanaut Hörgdæla voru af bústofni hans. Stefán Stefánsson var einn af stofnendum Ræktunarfélags Norðurlands (1903) sem í upphafi hafði það að meginmarkmiði að stunda tilraunastarfssemi í landbúnaði.

Á vegum RALA hafa verið stundaðar rannsóknir á Möðruvöllum í jarðrækt, fóðuröflun og búfjárrækt með kindur, loðdýr og nautgripi. Á síðasta áratug hefur áherlsan verið á jarðræktar- og vetrarþolsrannsóknir, heyverkunarrannsóknir með rúllubagga, fóðurtilraunir með nautgripi og rannsóknir á búrekstrarlegum grunni sem tengjast næringarefnabúskap kúabúa. Þá hafa verið stundaðar all ítarlegar rannsóknir á jarðvegslífi á og við Möðruvelli. Að auki eru á Möðruvöllum gerðar gæðaprófanir á sáðvöru fyrir Aðfangaeftirlit ríkisins, Landgræðslu ríkisins og fleiri aðila.

Möðruvallabúið veitir rannsóknamönnum greiðan og hagkvæman aðgang að bústofni og landi á bújörð í fullum rekstri. Hann er grundvöllurinn að fóður-, heyverkunar- og jarðræktarrannsóknum sem þar eru gerðar, auk þess sem búreksturinn sjálfur er nýttur í rannsókna- og leiðbeiningastarfi. Árlega eru haldin ýmis námsskeið fyrir bændur á Möðruvöllum og víðar, oftast í samstarfi við Búnaðarsamband Eyjafjarðar og Landbúnaðarháskólann. Starfsmenn RALA á Möðruvöllum deila skrifstofuaðstöðu á Búgarði, Óseyri 2, Akureyri, með ráðunautum BSE, ýmsum skógræktarstofnunum, héraðsdýralækni og yfirkjötmatsmanni landbúnaðarráðuneytisins.


     

     Leit á vef
    Sameiginlegur vefur