|
|
Búrekstrarsvið
Búrekstrarsvið er þverfaglegt svið sem nálgast viðfangsefni sín út frá búrekstrarlegum forsendum. Búreksturinn er uppspretta að nýjum hagnýtum verkefnum sem hafa beina og áþreifanlega þýðingu fyrir bændur.
Viðfangsefnin krefjast oft skjótra úrlausna vegna nýjunga sem bændur eru að prófa eða vegna breyttra aðstæðna í landbúnaði. Sem dæmi um þannig verkefni má nefna, nýtt mjólkurduft fyrir smákálfa, ídreifing mykju, efnamagn í rúllum og stórböggum, heilfóðrun, ísáning í kalið land, fóðurnýting og vöxtur kjötblendinga o.fl.
Búrekstrarsviði, ber að prófa á búrekstrargrunni áhugaverðar rannsóknaniðurstöður í t.d. jarðrækt, búfjárrækt eða bútækni í samráði við viðkomandi fagsvið RALA.
Tilraunabúið að Möðruvöllum er í umsjá búrekstrarsviðs en skrifstofuaðsetur er í Búgarði á Akureyri. Á Möðruvöllum eru einnig stundaðar þjónusturannsóknir í tengslum við mælingar á vetrarþoli plantna og á gæðum sáðvöru. Starfsmenn eru í samstarfsverkefnum með Búnaðarsamböndum, tilraunastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá, Landgræðslu ríkisins og Aðfangaeftirliti ríksins.
 |
|
|