|
|
Búfjársvið
Verkefni búfjársviðs er einkum að vinna að rannsóknum í erfðafræði og lífeðlisfræði búfjár. Helstu viðfangsefni á síðustu árum hafa verið rannsóknir á hagnýtum eiginleikum sauðfjár og möguleikum á bleikjueldi.
Í sauðfjárrannsóknum hefur sérstök áhersla verið lögð á frjósemi, vænleik lamba, vaxtarlag og kjötgæði. Áhersla hefur verið lögð á að rækta fé sem gefur vöðvamikil föll og mikil kjötgæði.
Verkefni í fiskeldi hafa fyrst og fremst beinst að þróun aðferða til að stjórna kynþroska og auka vaxtarhraða hjá bleikju. Rannsóknir á fóðurþörfum, meltanleika og áti hjá laxfiskum fara vaxandi í samvinnu við fóðursvið RALA. Búfjársvið hefur yfir að ráða tilraunabúi í sauðfjárrækt að Hesti í Andakíl í Borgarfirði og tilraunastöð í fiskeldi á Keldnaholti í Reykjavík.
|
|
|