|
Um vefsíðu Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Nokkrar stofnanir og samtök í íslenskum landbúnaði hófu samstarf um
sameiginlegan upplýsingavef í ársbyrjun 2001. Vefurinn er byggður á FOCAL
WebGuard vefútgáfukerfinu.
Markmiðið með samstarfinu er að auðvelda bændum, starfsmönnum
landbúnaðarstofnana og raunar öllum almenningi að nálgast upplýsingar um
landbúnað hér á landi.
Greinasafnið vegur þungt í samstarfinu um landbúnaðarvef en augljós er sá
ávinningur að geta flett upp í sameiginlegum gagnabanka með öllu því efni
sem aðstandendur vefsins hafa samið og gefið út.
Aðstandendur Landbunadur.is eru: Aðfangaeftirlitið, Bændasamtök Íslands,
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Lífeyrissjóður bænda, Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins, Landgræðsla ríkisins og Yfirkjötmat ríkisins.
Upplýsingar um stofnunina er að finna hér til vinstri undir liðnum "Um stofnunina" |