|
|
Könnun á notkun heilfóðurs fyrir mjólkurkýr
|
 |
| Verkefnisstjóri | Upphafsár | Lokaár (áætlað) | Stofnun |
| Louise Mölbak LBH | 2000 | | RALA |
 |  |  |  |
| Mannmánuðir á ári | Fjármögnun | Framkvæmdarstaðir |  |
| | Hvanneyri |  |
 |  |  |  |
| Samstarfsaðilar | Birting/kynning niðurstaðna | Númer rannsóknar |  |
| RALA, LBH, Bújöfur-Búvélar | | |  |
 |  |  |  |
Lýsing verkefnis:
Vorið 2000 hófst samstarfsverkefni milli Stóra Ármóts, Hvanneyrar og Bújöfurs-Búvéla um athugun á notkun heilfóðurs fyrir mjólkurkýr. Bújöfur-Búvélar ehf. flutti inn 18 rúmmetra heilfóðurvagn með láréttum sniglum frá Lydersen í Danmörku. Vagninn tekur rúllur í heilu lagi, saxar og blandar. Vorið 2000 var lögð áhersla á að kynnast notkun vagnsins og reyndist hann vel, auk þess sem kúnum líkaði vel við blönduna. Fyrri hluta vetrar 2000-2001 var svo vagninn í tilraun á Hvanneyri, þar sem rannsökuð var átgeta og orkujafnvægi gripanna. Fyrirhugaðri rannsókn með vagninn á Stóra Ármóti síðla vetrar var aflýst vegna meira umfangs og seinkunar á tilraun um áhrif fóðrunar á efnainnihald í mjólk, sem var aðalverkefnið síðastliðinn vetur. Unnið er nú að uppgjöri niðurstaðna tilraunarinnar á Hvanneyri og mun það væntanlega liggja fyrir fljótlega. |
|
|