|
|
Uppbygging jarðvegs í kjölfar uppgræðslu
|
 |
| Verkefnisstjóri | Upphafsár | Lokaár (áætlað) | Stofnun |
| Hólmfríður Sigurðardóttir | 1994 | 1996 | RALA |
 |  |  |  |
| Mannmánuðir á ári | Fjármögnun | Framkvæmdarstaðir |  |
| 4,2 | RANNÍS - Vísindasjóður | RALA |  |
 |  |  |  |
| Samstarfsaðilar | Birting/kynning niðurstaðna | Númer rannsóknar |  |
| Efnagreiningar RALA | Sjá í lok lýsingar verkefnis | 140-9276 |  |
 |  |  |  |
Lýsing verkefnis:
Markmið rannsóknanna er að kanna ástand gamalla landgræðslusáninga á Suðurlandi sem liggja í mismunandi hæð yfir sjávarmáli. Þar var sáð grastegundum sem henta vel til uppgræðslu á hálendinu. Frjósemi jarðvegs ræðst af framboði á næringarefnum og skilyrðum til að nýta þau, en jarðvegslífverur leika aðalhlutverkið í hringrás næringarefna í öllum vistkerfum. Samanburður á virkni jarðvegslífvera á mismunandi landgræðslusvæðum getur varpað ljósi á hvort uppgræðsla hefur leitt til sjálfbærs vistkerfis. Aflað verður upplýsinga um hversu hratt sina grastegunda brotnar niður, hvort munur sé þar milli tegunda og hvaða breytingar hafa orðið á jarðvegslífi og jarðvegi. Niðurstöðurnar verða nýttar sem kvarði á frjósemi jarðvegs. Þannig er leitast við að leggja grunn að einföldu kerfi til að meta árangur uppgræðsluaðgerða. Þessar rannsóknir tengjast því beint markvissu landgræðslustarfi.
Birting/kynning niðurstaðna:
Erindi:
Hólmfríður Sigurðardóttir, 1995. Lífið í jarðveginum. Fyrirlestur fyrir starfsmenn Landgræðslu ríkisins, 6. apríl.
Hólmfríður Sigurðardóttir, 1995. Lífið í jarðveginum. Fyrirlestur fyrir starfsmenn Landsvirkjunar, 22. júní.
Veggspjald:
Hólmfríður Sigurðardóttir, 1995. Decomposition in soils of restored areas in Iceland. Nordic Soil Zoology Symposium. Soil faunal diversity in relation to environment and ecosystem processes. Konnevesi,Finnlandi, 28. september - 1. október. |
|
|