|
|
Skógarsjúkdómar
|
 |
| Verkefnisstjóri | Upphafsár | Lokaár (áætlað) | Stofnun |
| Halldór Sverrisson | 2000 | (2003) | RALA |
 |  |  |  |
| Mannmánuðir á ári | Fjármögnun | Framkvæmdarstaðir |  |
| Rannís, Framleiðnisj. Landb., Reykjavíkurborg | Reykjavík, Böðmóðsstaðir, Árn., Tumastaðir |  |
 |  |  |  |
| Samstarfsaðilar | Birting/kynning niðurstaðna | Númer rannsóknar |  |
| Skógrækt Ríkisins Mógilsá, Náttúrufræðistofnun Íslands | Sjá neðar | 132-9431 |  |
 |  |  |  |
Lýsing verkefnis:
Markmið: Finna arfgerðir gljávíðis og aspar sem hafa mikinn viðnámsþrótt gegn ryðsjúkdómum og henta að öðru leyti til ræktunar hér á landi. Einnig að fylgjast með útbreiðslu ryðsjúkdóma.
Aðferð: Viðnámsþróttur verður ákvarðaður með prófunum á plöntum í tilraunareitum. Slíkir tilraunareitir eru nú þegar til hvað öspina varðar, en koma þarf upp tilraunareitum fyrir gljávíði. Asparplöntur verða smitaðar með gróum af ryðsveppnum Melampsora larici-populina en gljávíðir með Melampsora salici-pentandrae. Þróun sjúkdómsins og afleiðingar hans verða síðan ákvörðuð.
Gildi: Verkefnið hefur fyrst og fremst hagnýtt gildi. Gljávíðir er ein algengasta runnategundin í limgerðum hér á landi og ösp eru mikið notuð í ræktun í garðrækt á útivistarsvæðum og í skógrækt. Verkefnið hefur því mjög verulegt hagnýtt gildi fyrir framleiðendur garð- og skógarplantna og fyrir ræktendur.
Verkefnið hefur einnig visst umhverfislegt gildi. Til þess liggja eftirfarandi rök: Leiða má að því líkum að ef ekki tekst að finna arfgerðir aspar og gljávíðis sem hafi nægan viðnámsþrótt gegn ryðsjúkdómum muni annað af tvennu gerast. a) Garðeigendur munu bregðast við með notkun sveppaeiturs. b) Garðeigendur munu skipta yfir í aðrar trjá-/ runnategundir. Flestar þær tegundir sem kæmu til greina eru hinsvegar ásóttar af meindýrum en það eru ösp og gljávíðir ekki. Afleiðingarnar yrðu því aukin notkun skordýraeiturs.
Birting/kynning niðurstaðna:
Guðmundur Halldórsson, Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, Edda SigurdísOddsdóttir, Aðalsteinn Sigurgeirsson og Halldór Sverrisson (2001). Viðnámsþróttur Alaskaaspar gegn asparryði. Skógræktarritið 2001; 43-48.
Guðmundur Halldórsson, Halldór Sverrisson, Edda Sigurdís Oddsdóttir, Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (2001). Trjásjúkdómar. Rit Mógilsár Rannsóknastöðvar Skógræktar 4/2001.
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, Guðmundur Halldórsson, Edda Sigurdís Oddsdóttir & Halldór Sverrisson (1999) Sveppafár á Suðurlandi. (Field evaluation of fungal diseases on trees in southern Iceland). Skógræktarritið 114-126
Halldór Sverrisson, Guðmundur Halldórsson, Guðríður G. Eyjólfsdóttir og Edda S. Oddsdóttir. Asparryð. Veggspjald á Ráðunautafundi 2001. |
|
|