|
|
Áhrif aukins koldíoxíðs á kolefnisjöfnuð aspar
|
 |
| Verkefnisstjóri | Upphafsár | Lokaár (áætlað) | Stofnun |
| Halldór Þorgeirsson | 1994 | 1997 | RALA |
 |  |  |  |
| Mannmánuðir á ári | Fjármögnun | Framkvæmdarstaðir |  |
| 15 | Umhverfissjóður NKJ og SNS. Vísindasjóður | Gunnarsholt |  |
 |  |  |  |
| Samstarfsaðilar | Birting/kynning niðurstaðna | Númer rannsóknar |  |
Landb.háskólarnir í Uppsölum, Ási og Kaupmannahöfn, Háskólinn í Joensuu, Rannsóknastöð SR Mógilsá, Landgræðsla ríkisins.
| Sjá í lok lýsingar verkefnis | 140-9226b |  |
 |  |  |  |
Lýsing verkefnis:
Styrkur koldíoxíðs (CO2) í andrúmslofti er um 358 ppm. Hann eykst nú að jafnaði um 1- 2 ppm á ári og er talinn hafa hækkað um 28 % síðan um iðnbyltingu. Þessi aukning er einkum rakin til losunar sem verður við bruna á kolum, olíu og gasi í heiminum. Markmið þessa verkefnis er að kanna langtímaáhrif aukins styrks koldíoxíðs á vöxt plantna á Íslandi. Einnig er athugað hvernig framboð næringarefna hefur áhrif á svörunina við CO2. Rannsóknirnar fara fram á alaskaösp í Gunnarsholti. Tilraunasvæðið hentar einkar vel til rannsóknanna vegna ítarlegra upplýsinga um umhverfisþætti og vöxt aspanna. Viðbrögð aspar við auknum styrk CO2 verða mæld með því að gefa ungum trjám 700 ppm CO2 samfellt í fimm ár. Fylgst verður með vaxtar- og þroskabreytingum trjánna. Jafnframt sem gerðar verða mælingar á ljóstillífunarhraða, leiðni loftaugna fyrir vatn og CO2, styrk kolvetna og næringarefna í einstaka plöntuhlutum og breytingum á laufflatarmáli. Rannsóknirnar eru hluti af norrænu samvinnuverkefni þar sem niðurstöðurnar verða meðal annars nýttar sem innlegg í stærðfræðilegt hermilíkan sem notað verður til að spá fyrir um áhrif aukningar CO2 á vöxt skóglenda á norðurslóðum. Norræna verkefnið er formlega tengt öðru stærra samstarfsverkefni, ECOCRAFT, sem styrkt hefur verið af ESB.
Birting/kynning niðurstaðna:
Halldór Þorgeirsson. Erindi á ársfundi Bandaríska vistfræðifélagsins, Snowbird, Utah, 31. júlí, 1995. Plant-atmosphere interactions and effects of elevated carbon dioxide on growth and photosynthesis of black cottonwood at ambient and optimal nutrient suppply.
Halldór Þorgeirsson. Erindi á Ársfundi Skógræktarfélags Íslands, 2. september, 1995. Rannsóknir á alaskaösp og umhverfi hennar í tilraunareit í Gunnarsholti.
Bjarni D. Sigurðsson. RALA erindi 30. nóvember, 1995. Hvaða áhrif getur aukin styrkur CO2 í andrúmslofti haft á trjávöxt á Íslandi? Niðurstöður rannsókna á alaskaösp. |
|
|