Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst á vefstjóra
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning
Vefpóstur Rala

Nýtt fóðurmatskerfi fyrir mjólkurkýr byggt á hermilíkönum.

VerkefnisstjóriUpphafsárLokaár (áætlað)Stofnun
Jóhannes Sveinbjörnsson2001(2003)RALA
Mannmánuðir á áriFjármögnunFramkvæmdarstaðir
6RannísKeldnaholt
SamstarfsaðilarBirting/kynning niðurstaðnaNúmer rannsóknar
NKJ-samstarfverður við lok verkefnis123-9473


Lýsing verkefnis:
Þetta verkefni er íslenski hlutinn af samnorrænu verkefni á vegum NKJ (Nordisk kontaktorgan för jordbrugsforskning). Auk Íslendinga taka þátt í verkefninu vísindamenn frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi. Norræna verkefnið er sjálfstætt framhald af NKJ-verkefni-89 sem sömu þjóðir unnu að á árunum 1994-1998. Það verkefni snerist um að þróa hermilíkan (Karoline) af áti, meltingu, og uppsogun næringarefna hjá mjólkurkú. Niðurstöður verkefnisins voru ítarlega kynntar á ráðstefnu í Svíþjóð í júní 1998. Það líkan sem fyrir liggur eftir þá vinnu hermir þá ferla sem því var ætlað í upphafi og er nákvæmni allgóð í mörgum tilvikum. Í hinu nýja samnorræna verkefni sem samþykkt hefur verið af NKJ og er þar skráð sem NKJ-verkefni-111, er ætlunin að færa út kvíarnar og þróa líkanið áfram þannig að það taki einnig til efnaskipta skepnunnar og sé þar með fært um að spá fyrir um afurðamyndun (mjólk,, mjólkurefni, þungabreytingar) út frá upplýsingum um eiginleika fóðursins og skepnunnar. Þar með væri kominn grunnur að algerlega nýjum aðferðum við fóðurmat fyrir mjólkurkýr, mun nákværi en þeim sem hingað til hafa verið notaðar. NKJ-verkefni-111 skiptist í líkanhluta; þar sem áherslan er á smíði sjálfs líkansins; og rannsóknahluta; þar sem framkvæmdar verða rannsóknir sem nauðsynlegar eru vegna þróunar líkansins. Íslenski hluti verkefnisins mun einkum snúa að því að taka þátt í líkanhlutanum, en einnig verða gerðar rannsóknir er snúa að umsetningu próteins. Að öðru leyti mun íslenka verkefnið styðjast við rannsóknir sem þegar eru í gangi á RALA.

 

 Leit í rannsóknum
Sameiginlegur vefur