|
|
Upptaka og losun eiturefna í eldisfiski
|
 |
| Verkefnisstjóri | Upphafsár | Lokaár (áætlað) | Stofnun |
| Þuríður E. Pétursdóttir | 2002 | (2004) | RALA |
 |  |  |  |
| Mannmánuðir á ári | Fjármögnun | Framkvæmdarstaðir |  |
| Rannís, Laxá hf, Rala, Rf. | Keldnaholt, Rf |  |
 |  |  |  |
| Samstarfsaðilar | Birting/kynning niðurstaðna | Númer rannsóknar |  |
| Rala, Rf, Laxá hf | | 121-9495 |  |
 |  |  |  |
Lýsing verkefnis:
Eiturefni í umhverfinu (dioxin, PCB, bromuð difenylsambönd (eldhemjandi efni), lífræn tinsambönd, DDT efni, HCH efni, toxafen, þungmálmar) valda stöðugt meiri áhyggjum heilbrigðisyfirvalda (ES, WHO). Framleiðsla PCBs hefur verið bönnuð, sett hefur verið hámark á hversu mikið má vera af dioxini í fóðurefnum dýra til manneldis og reglur um fleiri efni eru í farvatninu auk þess sem það er opinber stefna ES og WHO að lækka leyft hámark efnanna í fóðri innan fárra ára. Fylgst er grannt með styrk eiturefnanna í lýsi og mjöli en lítið sem ekkert er vitað um upptöku* þeirra í eldisfiski þegar gefið er venjulegt fóður með mismunandi fituinnihaldi.
Markmið verkefnisins er að bera saman upptöku og losun ýmissra efna úr umhverfinu, sem eldisfiskur fær með fóðri, í fiski sem alinn er á mismunandi feitu fóðri við lágt hitastig. Jafnframt verði tekin, til samanburðar, fisksýni úr tveimur vatnasviðum, öðru á eldvirku svæði og hinu utan eldvirkra svæða.
Eldisfiskur (bleikja) verður alinn á tvenns konar fóðri, mjög feitu fóðri og fóðri með lítilli fitu, frá því skömmu eftir frumfóðrun og fram að slátrun. Í upphafi, um miðbik og í lok eldisins verður át fisksins mælt með því að gefa fóður blandað merkiefnum og safna saur, um leið verður mæld upptaka efna úr fóðri. Sýni verða tekin af fiskinum á sama tíma. Mæld verða eiturefni í fóðrinu, heilum fiski, ætum hlutum fisksins (roðflett flök) og í saursýnum. Jafnframt verða eiturefni mæld í villtum fiski af tveimur vatnasviðum. |
|
|