|
|
Áhrif erfðaeiginleika og fóðrunar á efnainnihald og vinnslueiginleika kúamjólkur
|
 |
| Verkefnisstjóri | Upphafsár | Lokaár (áætlað) | Stofnun |
| Bragi Líndal Ólafsson | 2001 | | RALA |
 |  |  |  |
| Mannmánuðir á ári | Fjármögnun | Framkvæmdarstaðir |  |
| | Stóra-Ármót, RALA |  |
 |  |  |  |
| Samstarfsaðilar | Birting/kynning niðurstaðna | Númer rannsóknar |  |
| RALA, LBH. Samtök afurðastöðva í mjólkuriðn. | | |  |
 |  |  |  |
Lýsing verkefnis:
Framhald verður á rannsókn um áhrif fóðrunar á efnainnihald í mjólk. Gert er ráð fyrir því að tilraunin hefjist í október 2001og að a.m.k. 36 kýr verði í tilrauninni. Um áramótin 2000-2001 hófst fóðrunartilraun á Stóra Ármóti þar sem rannsökuð voru áhrif fóðrunar á efnainnihald. Þetta er hluti af stærra verkefni, þar sem megin viðfangsefnin eru:
a. Söfnun upplýsinga hjá bændum
b. Erfðafræðilegar rannsóknir – samanburður dætrahópa m.t.t. mjólkurefna
c. Fóður- og lífeðlisfræðilegar rannsóknir þ.m.t. tilraunir með vambaropskýr, vambarhermi, mjólkurkýrnar á Stóra Ármóti og rannsókn á vinnslueiginleikum mjólkur.
Að verkefninu standa auk Rala, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Framkvæmd tilraunar gekk sæmilega og frumathuganir á niðurstöðum benda til mjög áhugaverðra upplýsinga. Stefnt er að því að birta grein í Bændablaðinu nú á næstunni með bráðabirgðaniðurstöðum. |
|
|