|
|
Þol Salmonella í rúlluverkuðu heyi
|
 |
| Verkefnisstjóri | Upphafsár | Lokaár (áætlað) | Stofnun |
| Grétar Hrafn Harðarson | 2000 | 2001 | RALA |
 |  |  |  |
| Mannmánuðir á ári | Fjármögnun | Framkvæmdarstaðir |  |
| | |  |
 |  |  |  |
| Samstarfsaðilar | Birting/kynning niðurstaðna | Númer rannsóknar |  |
| RALA, LBH | | |  |
 |  |  |  |
Lýsing verkefnis:
Salmonella typhimurium hefur valdið miklum erfiðleikum í landbúnaði á Suðurlandi nú í vetur. Áður hefur Salmonella typhimurium valdið tjóni í hrossum í Landeyjum (1989 – 1991). Þá var þetta bundið við stóðhross sem smituðust í haga að sumarlagi. Talið var að smitið væri að finna í grunnum tjörnum, þar sem hrossum var beitt og að smitið bærist í tjarnirnar einkum með máfum.
Í vetur, hins vegar, fór að bera á smiti í búfénaði í nóvember fyrst í mjólkurkúm og síðan í útigangshrossum, sem komin voru á gjöf. Í þessum tilfellum eru smitleiðir óljósar. Hugsanlegt er að heilbrigðir smitberar hafi leynst í bústofninum. Smit, sem getur síðan magnast upp við aukið álag (stress) og valdið sýkingum. Annar möguleiki er að Salmonella hafi verið í fóðrinu og þá beinast sjónir okkar að heyinu.
Sumarið 1999 var mjög sólarlítið og rakt og þar með hagstætt Salmonella. Heyverkun hefur breyst mikið síðustu 15 ár, frá því að vera mest þurrhey yfir í um 70% rúlluhey. Vitað er að Salmonella lifir við mjög breytileg skilyrði og ekki ólíklegt að Salmonella þoli rúlluverkun.
Markmið tilraunarinnar er að kanna hvort Salmonella typhimurium lifir í rúlluverkuðu heyi. Notaðar eru sérgerðar krukkur til að líkja eftir rúlluverkun. Hey er verkað á mismunandi vegu sbr. töflu um tilraunaskipulag og smitað með því að grisjum menguðum Salmonella er stungið í krukkurnar. Að loknu 6 mánaða verkunartímabili eru krukkurnar opnaðar og grisjur rannsakaðar með tilliti til Salmonella. Einnig verður heyið efnagreint, sýrustigsmælt og mælt með tilliti til fitusýra. Samtals voru notaðar 72 krukkur í verkefnið. Líkt er eftir gallaðri verkun (gatað plast) með því að hleypa súrefni að heyinu.
Tilraunaskipulag:
| Þurrkstig | Krukkur
Kontról | Krukkur
Kóntról
Gölluð verkun | Krukkur
Salmonella | Krukkur
Salmonella
Gölluð verkun |
| 30% | 6 | 6 | 6 | 6 |
| 45% | 6 | 6 | 6 | 6 |
| >65% | 6 | 6 | 6 | 6 |
.
Markmið tilraunarinnar var að kanna hvort Salmonella typhimurium lifir í votverkuðu heyi. Notaðar voru sérgerðar krukkur til að líkja eftir votverkun. Hey var verkað á mismunandi vegu og smitað með því að grisjum menguðum Salmonella er stungið í krukkurnar. Í apríl voru krukkurnar opnaðar og grisjur rannsakaðar með tilliti til Salmonella og heysýni send í efnagreiningu. Samtals voru notaðar 72 krukkur í verkefnið. Líkt var eftir gallaðri verkun (gatað plast) með því að hleypa súrefni að heyinu. Þurrkstig hafði afgerandi áhrif á þol Salmonellunnar, þannig reyndist allt þurrlegt hey (>60% þe) enn smitað (12/12) meðan ekkert smit (0/12) fannst í því blautasta (25% þe). Í meðalaþurru heyi (45% þe) reyndust hluti smitaður (8/12). Þetta eru vissulega athyglisverðar niðurstöður og mikilvægar í greiningu á faraldursfræði salmonellusýkinga í búfénaði. Endanlegt uppgjör tilraunar mun væntanlega liggja fyrir í árslok. Ábyrgðarmenn: Grétar Hrafn Harðarson Rala og Bjarni Guðmundsson LBH |
|
|