Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst á vefstjóra
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning
Vefpóstur Rala

Hreinlæti og þrif

VerkefnisstjóriUpphafsárLokaár (áætlað)Stofnun
Hjörleifur Einarsson19941997RALA
Mannmánuðir á áriFjármögnunFramkvæmdarstaðir
3RALA, Norræni Iðnþróunarsjóðurinn, RANNÍS og fyrirtæki
Kjötvinnslur og sláturhús á Norðurlandi, fundarstaðir á Norðurlöndum
SamstarfsaðilarBirting/kynning niðurstaðnaNúmer rannsóknar
Rf , sláturhús og kjötvinnslur, rannsóknastofnanir á Norðurlöndunum160-9308


Lýsing verkefnis:
Þrif og hreinlæti eru drjúgur og kostnaðarsamur þáttur í daglegri starfsemi matvælafyrirtækja. Niðurstöður benda til þess að árangur hafi farið batnandi á síðustu árum. Á sama tíma hafa komið upp ný heilnæmisvandamál, auknar kröfur yfirvalda og kaupenda um heilnæmi og lága gerlamengun og aukinn áhugi á fullvinnslu og kælingu gerir auknar kröfur til hreinlætis. Fyrirtæki hafa ítrekað gefið í skyn að tími og kostnaður við hreinlætisaðgerðir sé alltaf að aukast án þess að árangur hafi skilað sér. Helstu ástæðurnar eru :

1. tæki og vinnsla ekki hönnuð með tilliti til þrifa.
2. þjálfun starfsfólks er ábótavant,
3. verklýsingar eru af skornum skammti.
4. tæki og efni til þrifa ekki notuð rétt.
5. úttektir á þrifum og hreinlæti seinvirkar og óhentugar.
6. skortur á innra eftirliti.


Markmiðið með verkefninu er að gera úttekt á hreinlæti í íslenskum matvælaiðnaði til að fá fram bættar forsendur fyrir hönnuði tækja, efna og vinnsluferla í matvælavinnslu.

Einnig verða samdar verklagslýsingar fyrir þrifagengi . Þá verða aðferðir úttektir á þrifum prófaðar. Loks verður fyrirtækjum boðið upp á faglega ráðgjöf í ákveðnun hlutun innra eftirlits. Niðurstöður verkefnisins eiga að nýtast öllum sem starfa við matvælaframleiðslu, hönnun og framleiðslu tækja til matvælavinnslu sem og þeim sem selja efni og tæki til þrifa.


Verkefnið er á vegum kjötframleiðenda og skýrslur um verkþætti eru sendar þeim og áfangaskýrslur til RANNÍS í október 1995 og janúar 1996

 

 Leit í rannsóknum
Sameiginlegur vefur