|
|
Frærækt innlendra landbótaplantna
|
 |
| Verkefnisstjóri | Upphafsár | Lokaár (áætlað) | Stofnun |
| Jón Guðmundsson | 1997 | (2003) | RALA |
 |  |  |  |
| Mannmánuðir á ári | Fjármögnun | Framkvæmdarstaðir |  |
| Rannís | Geitasandur |  |
 |  |  |  |
| Samstarfsaðilar | Birting/kynning niðurstaðna | Númer rannsóknar |  |
| Rannsóknarstöð skógræktar ríkisins Mógilsá | sjá neðar | 132-9346 |  |
 |  |  |  |
Lýsing verkefnis:
Meginmarkmið rannsóknanna er öflun fræs af innlendum níturbindandi tegundum, svo og öðrum tegundum sem hafa svipaða eiginleika með tilliti til fræræktar.
Unnið hefur verið að því á undanförnum árum að rækta fræ af nokkrum tegundum (umfeðmingi, giljaflækju, baunagrasi, blámjöltu, strábelg og vallertu). Mældir hafa verið allmargir þættir svo sem fræuppskera og ákvörðum hagstæðasta sláttutíma sem er mælt með þvi að finna hvenær mest er af fræi á plöntunni.
Frævarar eru þekktir og nokkur vitneskja um hvar þá er að finna og hvernig má auka lífskilyrði þeirra.
Áburðargjöf er vel þekkt.
Nýting fræs í sáningum er ekki góð og það gildir um nærri allar sáningar nema sáningar í gróðurhúsi. Þetta gildir einnig um náttúrulega sáningu-dreifingu, þar sem þessar plöntur er að finna.
Tilgátu um afrán á fræi hefur verið hafnað eftir tilraunavinnu.
Nú er verið að rannsaka hvaða þýðingu örverur hafa í spírunarfasa og svarðarmyndun og hvaða rótarhnýðisbakteríur geta smitað hvaða tegundir.
Birting niðurstaðna:
Jón Guðmundsson 1997. Innlendar belgjurtir - fræræktarmöguleikar. Búvísindi s. 41-48
Jón Guðmundsson, 1999. Innlendar belgjurtir – ræktunarmöguleikar. Í: Líffræðirannsóknir á Íslandi. Reykjavík: Háskóli Íslands, Líffræðifélag Íslands, bls. 120 (Veggspjald, VFÖ-45).
Jón Guðmundsson 2001: Innlendar belgjurtir – fræræktarmöguleikar. Veggspjald á Ráðunautafundi
|
|
|